Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.10.2012, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 20.10.2012, Qupperneq 42
KYNNING − AUGLÝSINGÚlpur & yfirhafnir LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 20122 Dagblöð um alla Evrópu hafa birt myndir af Merkel í „sama“ jakkanum í flestum mögulegum litum. Þá hefur hún verið tekin fyrir á vefsíðum undir orðinu: HÖRMUNG. Blöðin tengja litaval hennar á jökkum við erindi hennar víðs vegar um heiminn. Þannig segir The Guardian að það hafi ekki verið tilviljun að Angela Merkel hafi klæðst róandi grænum lit þegar hún hitti valdamestu menn í Grikklandi. „Hún er föst í ákveðnu formi frá þýska hönnuðinum Bettina Scho- enbach en Merkel hefur leitað til hennar frá árinu 2005,“ segir The Guardian. The Wall Street Journal sá ástæðu til að taka viðtal við Bettinu Scho- enbach og kallar hana ráðgjafann á bak við jakka Angelu Merkel. Scho- enbach þykir hafa hlutlausan stíl en hún segist skilja vel þarfir viðskipta- vina sinna. „Sumum konum líður vel í kynþokkafullum fatnaði í vinnunni en aðrar velja sér þægilegan og lítt áberandi fatnað. Það veltur á pers- ónuleika þeirra,“ segir hún. „Að finna rétta stílinn er ekki alltaf auðvelt en ég er afar stolt af því að hafa hjálpað Merkel. Þar sem hún er mjög valda- mikil kona vekur klæðnaður hennar að vonum athygli.“ Schoenbach nýtir sér ánægju Merkel með jakkana en notar ný efni og liti til að auka safn hennar, segir blaðið. Merkel, 58 ára, klæðist svörtum jakka í þýska þinginu, fjólu- bláum á fundi með forseta Frakk- lands og brúnum á leiðtogafundi ESB í Brussel. „Fötin eru notuð í ákveðn- um tilgangi og þau eiga að undir- strika að þarna fer valdamikil kona. Þegar kona kemur inn á fund og eftir henni er tekið nær hún frekar mark- miðum sínum,“ segir Schoenbach. Þegar hinn frægi þýski hönnuður, Karl Lagerfeld, var spurður um klæðnað Merkel, svaraði hann: „OK.“ Og bætti síðan við: „Hún ætti þó frekar að vera í opnum jakka yfir fallega skyrtu og sniðið á buxunum mætti vera betra. Þýska sjónvarpið tekur oft fram hvernig Angela Merkel er klædd við hinar ýmsu opinberu athafnir. Þetta hefur verið gagnrýnt harkalega og áhorfendur fullyrða að klæðnaðurinn væri ekki til umræðu væri hún karlmaður. Daily Mail segir að Angela Mer- kel sé kona með mikið sjálfstraust en með afar sérstakan fatastíl. Hún kemur fram um allan heim, frá Berlín og Brussel til Japans, Sydney og Washington klædd þessum jökk- um sem hún virðist svo mjög hrif- in af, sama snið í öllum mögulegu litum. Það er ljóst að Merkel á mikið safn af jökkum en enn hefur engum tekist að fá uppgefið hversu margir eru í fataskápnum. elin@365.is Margir litir af jökkum en eitt útlit Klæðnaður einnar valdamestu konu heims, Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, hefur verið umtalaður á síðum margra þekktra dagblaða. Tekið hefur verið eftir að Merkel er alltaf í beinsniðnum jakka með þremur tölum að framan og hún á þá í mörgum litum. Ljósgrænn jakki í Aþenu þar sem Merkel átti fund með forsætisráðherranum, Antonis Samaras, 9. október sl. Rauður jakki í Berlín í júní. Merkel tók þar á móti Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Blár jakki í Berlín í júní. Valdakona í bláu með Jens Stoltenberg og David Cameron. Bleikur jakki í Berlín í júlí. Þarna tók Merkel á móti Yingluck Shinawatra, forsætisráðherra Taílands. Ljós jakki í Berlín nú í október þegar Merkel tók á móti Abrabuh Mansur Hadi, forseta Jemens. Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s 512-5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. HLÝTT FYRIR VOFFANA Hundar eru ekki undan- skildir tískunni. Stór iðnaður er í kringum hundafatnað og fylgihluti fyrir þá. Sum fötin eru sérstaklega hlý og veita gott skjól fyrir kulvísa hunda, en smáhundum verður fljótt kalt ef þeir eru úti í köldu veðri. Silky terrier og chihuahua eru dæmi um hunda sem ágætt er að klæða í einhvern hlífðarfatnað áður en farið er með þá út í mikinn kulda. Ef fólk ætlar að kaupa föt á hund er best að taka hann með í búðina og máta fötin til að vera viss um að þau passi og að hundurinn sé sáttur við að klæðast þeim. ENDURSKINSMERKI Á HÖNDUM OG FÓTUM Ökumaður á bíl sér dökklædda manneskju sem gengur um í myrkri án endurskinsmerkja í 26 metra fjarlægð. Manneskja í ljósum fötum sést í 38 metra fjarlægð. Manneskja með endurskinsmerki sést hins vegar í 136 metra fjarlægð. Að ofansögðu er ljóst að endurskinsmerktur fatnaður er gríðarlega mikilvægt öryggistæki í umferðinni. Þó algengt sé að yfir- hafnir séu með endurskins- merkjum þá er það því miður ekki algilt. Því er þó hægt að bæta úr sjálfur og fást ýmiss konar endurskinsmerki í flestum apótekum, stórmörkuðum og bensínstöðvum. Þá er hægt að kaupa látlausa endurskinsborða sem hægt er að líma á fatnað í föndur- og vefnaðarvöruverslunum. Best er að hafa endurskinsmerki fremst á ermum eða neðarlega á buxnaskálmum. Hreyfing handa og fóta gerir það að verkum að þannig virka þau eins og blikkljós þegar ljós fellur á þau. Heimild: www.umferdarstofa.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.