Fréttablaðið - 20.10.2012, Side 53
LAUGARDAGUR 20. október 2012 5
LJÓSGJAFINN
rafverktakar Akureyri
Leitar eftir vönum
rafvirkja til starfa.
Um framtíðarstarf er ræða.
Nánari upplýsingar veittar og tekið
á móti umsóknum í netfanginu:
gummi@ljosgjafinn.is
Umsóknarfrestur til 26.október
Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða
kerfisstjóra til að sinna rekstri og viðhaldi
vefkerfa Veðurstofunnar. Kerfisstjórinn
mun starfa í upplýsingatæknihóp Veður-
stof unnar sem er hluti af Fjármála- og
rekstrarsviði.
Hlutverk
Kerfisstjóri vefkerfa Veðurstofunnar hefur
umsjón með, setur upp, prófar og rekur
marga ytri og innri vefi, vefþjónustur
og aðra bakenda. Kerfisstjórinn sér um
innleiðingaferli (deployment) og tekur
þátt í viðmótsprófunum vefja. Hann sér
um samskipti við aðra þjónustuaðila
vefkerfa og kemur að kerfishönnun. Einnig
er möguleiki á að hann taki að sér minni
vefþróunarverkefni.
Menntun og hæfniskröfur
Menntun eða reynsla á sviði kerfis-
fræða, s.s. tölvunar- eða kerfisfræði
Reynsla af umsjón og rekstri tölvukerfa
og þá sérstaklega vefkerfa
Hæfni í mannlegum samskiptum
og teymisvinnu
Reynsla af innleiðingu vefkerfa
Góð þekking á Linux stýrikerfum
og skeljaskriftum
Þekking á vefkerfum, s.s. Apache
HTTP Server og Tomcat
Þekking á notkun gagnagrunna s.s.
MySQL, DB2 eða SQLserver, er kostur
Kunnátta í forritunarmálum, s.s.
Python, Java, JavaScript er kostur
Gott vald á íslensku og ensku
Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða
sér fræðing í upplýsingatækni. Sérfræð-
ingur inn mun starfa í upplýsingatæknihóp
Veður stofunnar sem er hluti af Fjármála-
og rekstrarsviði.
Hlutverk
Hlutverk sérfræðingsins er tví þætt.
Annars vegar að sjá um upp setn ingu
og rekstur á kerfum frá Microsoft og
sér hæfðum kerfum Veður stof unnar, og
hins vegar að taka þátt í þróun. Sérhæfðu
kerfin keyra flest í Micro soft umhverfi og
eru upp lýsinga kerfi tengd vatna fræði,
jarð vísindum og landfræði.
Menntun og hæfniskröfur
Menntun eða reynsla á sviði kerfis-
fræða, s.s. tölvunar- eða kerfisfræði
Reynsla af umsjón og rekstri tölvukerfa.
Hæfni í mannlegum samskiptum og
teymisvinnu
Góð þekking á Microsoft hugbúnaði,
s.s. Windows Server, IIS og SQL Server
Æskileg er þekking á Landfræðilegum
upplýsingakerfum, s.s. ArcGIS,
landfræðilegum grunnum
Þekking á vefþjónustum (SOA) s.s.
SOAP eða REST, er kostur
Þekking og reynsla í forritun, s.s. .NET,
ASP.NET, Visual Studio, Java, JavaScript
Gott vald á íslensku og ensku
www.vedur.is
522 6000
Kerfisstjóri Sérfræðingur í
upplýsingatækni
Nánari upplýsingar um starfið
veita Vigfús Gíslason hópstjóri UT
(gislason@vedur.is , 5226000) og
Borgar Ævar Axelsson mannauðsstjóri
(borgar@vedur.is, 5226000).
Laun taka mið af kjarasamningum
ríkisins og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur til og með
5. nóvember 2012
Gildi Veðurstofunnar eru þekking,
áreiðanleiki, samvinna og framsækni.
Ráðningar hjá stofnuninni munu taka
mið af þessum gildum.
Tollstjóri leitar að háskólamenntuðu fólki til að verða sérfræðingar í tollamálum.
Verkefni Tollstjóra taka mið af bestu framkvæmd og alþjóðlegum stöðlum og fela
meðal annars í sér alþjóðleg samskipti, verkefnastjórnun, ferlaþróun, samskipti
við atvinnulíf, ráðuneyti og aðrar stofnanir. Í boði eru mikil tækifæri og starfsnám
fyrir rétta aðila, áhugaverð og krefjandi störf sem henta jafnt konum sem körlum.
>> Endurhönnun verkferla.
>> Samskipti við atvinnulíf, ráðuneyti og aðrar stofnanir og samstarfsaðila.
>> Alþjóðleg samskipti.
>> Skýrslugerð.
>> Tölfræði.
>> Rannsóknarvinna.
>> Rafræn tollafgreiðsla.
>> Verkefnastjórnun.
>> Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Til dæmis kennaramenntun, stjórnmálafræði, félagsfræði,
lögfræði, viðskiptafræði eða hagfræði.
>> Góðir greiningarhæfileikar, talnalæsi, samskiptafærni, yfirsýn, frumkvæði, skipulagshæfileikar,
sjálfstæð vinnubrögð, tölvufærni og góð enskukunnátta.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnur Ýr Kristjánsdóttir í síma 560-0379. Umsókn merkt
„sérfræðingur í tollamálum“ skal skila rafrænt á netfangið starf@tollur.is fyrir 3. nóvember nk.
Við verndum samfélagið og tryggjum ríkinu tekjur
Traust - Samvinna - Framsækni
starf@tollur.is
Gildi Tollstjóra eru traust, samvinna og framsækni. Ráðningar hjá embættinu munu taka mið af þessum gildum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðeigandi stéttarfélags. Um starfskjör,
réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir gilda í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nurse Jobs in Norway
Helse Personal Ltd seeking dedicated and highly skilled nurses to
various assignments in Bergen and Western
Norway to work within nursing homes and home care.
We offer good salaries and excellent customer support.
You must master the Norwegian, Danish or Swedish
language well, both written and oral.
We are in Reykjavik City Hall, Rådhuset, Tjarnagata 11,
26.10.12 and 27.10.12
Reykjavik City Hall will be open from 16:00-19:00 on Friday
the 26th and from 12:00-17:00 on Saturday the 27th
Please contact us anytime for a personal meeting
on Friday and Saturday.
Contact: Trude Vereide, +47 908 30 003
and Kathrin Omland + 47 918 49 142
email: post@helsepersonal.no, www.helsepersonal.no