Fréttablaðið - 20.10.2012, Síða 70

Fréttablaðið - 20.10.2012, Síða 70
KYNNING − AUGLÝSINGÚlpur & yfirhafnir LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 20126 Intersport er leiðandi sport-vöruverslanakeðja og rekur yfir 4700 verslanir í 25 löndum víðs vegar um heim. „Fyrsta versl- un Intersport á Íslandi var opnuð 18. apríl 1998 að Bíldshöfða 20. Sú verslun var þá jafnframt sú fimmta stærsta á Norðurlöndunum. Tíu árum síðar opnaði önnur verslun í Lindum í Kópavogi. Tvær versl- anir opnuðu svo á landsbyggðinni á næstu tveimur árum, 2009 á Sel- fossi og 2010 á Akureyri,“ segir Elín Fanney Guðmundsdóttir deildar- stjóri hjá Intersport. Eitthvað fyrir alla „Við erum með ótrúlega breitt vöruúrval og marga verðflokka. Hér er að finna yfirhafnir fyrir alla fjölskylduna, svo ekki þarf að fara á marga staði til að versla nauð- synlegan vetrarfatnað. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi; létt- ar úlpur, dúnúlpur, regnfatnað, skíða- og brettafatnað, útivistar- skeljar og margt fleira.“ Hvað skiptir máli? „Ég myndi segja að útlit og snið skipti höfuðmáli og að flíkin veiti skjól fyrir það tilefni sem hún skal notuð í. Það getur eyðilagt annars skemmtilega upplifun að klæða sig vitlaust eða illa. Því þarf fólk að spyrja sig að því áður en það kaupir flík, í hvaða tilgangi og að- stæðum hún skuli notuð. Þann- ig er hægt að komast að því hvort það þurfi vatns- og vindhelda flík eða mjög hitaeinangrandi og svo framvegis. Fatnaðurinn verður að skýla okkur fyrir veðri og vindum og halda okkur þurrum, en geta jafnframt andað þegar við svitn- um. Rennilás undir höndum á úlpum og jökkum er til dæmis góður eiginleiki hvað slíka öndun snertir og mörgum finnst mikill kostur að geta tekið hettuna af.“ Reynslumikið starfsfólk „Hjá okkur starfar reynslumikið sölufólk með mikla þekkingu á vör- unum. Vegna mikillar breiddar í vöruúrvali í okkar verslunum skiptir gríðarlega miklu máli að umfangs- mikil vöruþekking sé til staðar til að geta veitt góða og faglega þjónustu.“ Mikið úrval vörumerkja „Etirel er eitt af okkar ódýrari merkjum, við bjóðum upp á gott úrval af úlpum frá þeim sem eru bæði hlýjar og vatnsfráhrindandi. Herra- og dömuúlpurnar frá Etirel kosta frá 17.990. Firefly er einnig ódýrt merki sem við bjóðum upp á; þykkar og hlýj- ar úlpur á börn ásamt snjófatn- aði. Við eigum flottar parka úlpur á krakka í þremur litum sem eru á tilboði núna á 12.990. Didrikson er eitt vinsælasta merkið okkar með kuldagalla, úlpur og flís- fatnað í stærðum frá 80-130. Úlpur og pollagalla í stærð 90-120. Didrik- son úlpur og snjóbuxur eru líka til fyrir skólakrakka, upp í stærð 170. Þá erum við með eina gerð af herraúlpu og tvær gerðir af dömuúlpum sem eru vindheldar með öndunarfilmu. McKinley er merki sem margir þekkja. Virkilega flottar dúnúlp- ur, skíðafatnaður, útivistarfatnað- ur og skór. Við erum með frábærar vatns- og vindheldar hlífðarbux- ur á dömu og herra á 7.490 og flís- peysur á herra og dömur á 4.990 svo dæmi séu tekin. Altitude 8848 er gæðamerki í skíðafatnaði. Vatns- og vindheld- ar parka úlpur í herrastærðum, Techno Stretch peysur á dömur og herra. Vatnsheldni í Altitude 8848 vörunum er yfirleitt 10.000 millimetra. Haglöfs er eitt af okkar bestu úti- vistarvörumerkjum. Léttir dún- jakkar, gönguskór, bakpokar, há- gæða göngubuxur og tveggja laga skeljar með allt að 30.000 milli- metra vatnsheldni.“ Fylgihlutir „Frá öllum þessum merkjum bjóðum við upp á fylgihluti eins og húfur, hanska, vettlinga, hring- trefla, ullarsokka, þunnar lamb- húshettur og polyester- og ullar- nærfatnað.“ Opnunartími og aðgengi „Mjög gott aðgengi er í verslunum Intersports, sérstaklega í Lindum þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja. Fólk í hjólastólum og for- eldrar með barnavagna geta því hæglega athafnað sig hjá okkur án nokkurra vandkvæða. Næg bílastæði er að finna við allar okkar verslanir.“ Í Intersport að Bíldshöfða er opið alla virka daga frá 10-19. Á laugardögum frá 10-18 og sunnu- dögum frá 12-18. Í Lindum er opið alla virka daga frá 11-19. Á laugar- dögum er opið frá 11-18 og 12-18 á sunnudögum. Á Akureyri og Sel- fossi er opið virka daga frá 10-18 og frá 10-16 á laugardögum. Heimasíða og vefverslun Á heimasíðunni www.intersport. is eru góðar upplýsingar um allt sem tengist íþrótta- og útivistar- vörum. Þar er líka að finna öfluga vefverslun með miklu úrvali sem sendir hvert á land sem er. Intersport með útivist á hreinu Intersport er alþjóðlegt fyrirtæki og rekur fjórar verslanir á Íslandi. „Við erum með hágæða vetrarfatnað á hagstæðu verði á alla fjölskylduna. Hér fæst allt sem þarf til að halda sér heitum og þurrum í hvaða veðri sem er,“ segir Elín Fanney Guðmundsdóttir, deildarstjóri hjá Intersport. Hjá Intersport starfar reynslumikið sölufólk með mikla þekkingu á vörunum. Elín Fanney er þar á meðal. MYNDIR/VILHELM ETIREL ALBANY PARKA Létt vattstungin úlpa með polyester fyllingu og hettu sem taka má af. Hægt að draga saman í mittið. Til í svörtu og rauðu í stærð 38-44. DIDIRIKSON LINDSEY PARKA Létt úlpa með þunnu loðfóðri í hettu og baki. Hægt að draga saman í bakið. Vindheld og vatnsfráhrindandi að 2.000 millimetrum. MCKINLEY DENVER PARKA Dúnúlpa með 70/30 dún og 5.000 millimetra vatnsheldni. Fæst einnig mosagræn. Stærðir S-XL. ETIREL ANTHONY PARKA Vattfóðruð létt herraúlpa með loðfóðraðri hettu, fæst í stærð XS-L.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.