Fréttablaðið - 20.10.2012, Síða 88

Fréttablaðið - 20.10.2012, Síða 88
20. október 2012 LAUGARDAGUR56 BAKÞANKAR Tinnu Rósar Steinsdóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. ögn, 6. úr hófi, 8. hestaskítur, 9. gyðja, 11. tveir eins, 12. bit, 14. framvegis, 16. tveir eins, 17. iðka, 18. drulla, 20. pfn., 21. könnun. LÓÐRÉTT 1. harmur, 3. pot, 4. peningar, 5. svelg, 7. þögull, 10. gogg, 13. frjó, 15. máttur, 16. missir, 19. kyrrð. LAUSN LÁRÉTT: 2. moli, 6. of, 8. tað, 9. rán, 11. uu, 12. glefs, 14. áfram, 16. tt, 17. æfa, 18. aur, 20. ég, 21. próf. LÓÐRÉTT: 1. sorg, 3. ot, 4. lausafé, 5. iðu, 7. fálátur, 10. nef, 13. fræ, 15. magn, 16. tap, 19. ró. Ó nei, Ó nei! Setan er uppi! Hvað geri ég?? Ha? Hjálp! Setan er svo þung! Ef ég missi hana gæti allt klósettið brotnað! Hahahaha! Nei! Það er ekki það að ég GETI ekki sett setuna niður! Hvað er þá vandamálið? Viltu skýra það út fyrir mér? Hvað meinaru með „afleiðingar“? Ertu að segja mér að þú lést Pésa klippa á þér hárið án þess að hugsa út í afleiðingarnar? klór klór Jii minn! Þetta er ekki það sem ég held að það sé … jii minn! Þetta er epli! Dr. Leó skildi það sem eiginkona hans var að gefa í skyn og eyðir því annarri nótt í sófanum. Aftur í skólann - föt Aftur í skólann - skóladót Aftur í skólann Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali. Suðurgata 7, 101 Reykjavík - www.hibyli.is - hibyli@hibyli.is - Sími: 585 8800 - Fax: 585 8808 OPIÐ HÚS BRÆÐRABORGARSTÍGUR 7 – 101 REYKJAVÍK OPIÐ HÚS LAUGARDAG MILLI KL. 15 OG 16 Glæsileg og nýlega endur- nýjuð 2ja 3ja herbergja, 101 fm íbúð á 2. hæð í reisulegu lyftuhúsi. Stór og björt stofa með suðursvölum, Eldhús opið við stofuna, ljós viðarinnrétting. Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi. Rúmgott svefnherbergi. Ljóst Parket. Auðvelt er að bæta við svefnherbergi. HÚSIÐ ER ALLT TEKIÐ Í GEGN AÐ UTAN, FRÁBÆR STAÐSETNING. ÍBÚÐIN ER TIL SÝNIS Í DAG, LAUGARDAG MILLI KL. 15 OG 16. GNITAKÓR 3 – 203 KÓPAVOGUR OPIÐ HÚS Í DAG, LAUGARDAG MILLI KL. 15:00 OG 16:00 Einstaklega glæsilegt og vel staðsett 256 fm. einbýlishús á eftirsóttum stað í Kóra- hverfinu í Kópavogi. Um er að ræða eign í grónu hverfi þar sem örstutt er í alla þjónustu. Húsið stendur fyrir neðan götu með víðáttumiklu útsýni. Svalir og sólpallur snúa í suður. Allt skipulag, efnisval og frágangur hússins er fyrsta flokks. Eign í sérflokki á besta stað. Ingibjörg Þórðardóttir, lögg. fasteignasali verður á staðnum. OPIÐ HÚS Í DAG, LAUGARDAG MILLI KL. 15:00 OG 16:00 Rússnesk vinkona mín náði þeim merka árangri á dögunum að gera mig algjör- lega kjaftstopp. Ég var stödd á fundi í Þýskalandi með henni, einni þýskri stelpu og enskum strák þegar umræða um jólin spratt upp. Eftir að við hin þrjú höfðum setið um stund og kvartað yfir öllu því sem þyrfti að gera fyrir jólin lét sú rússneska loks í sér heyra. „Ég öfunda ykkur svo af því að fá að halda jól.“ EKKI misskilja mig, ég elska jólin vand- ræðalega mikið, en á þessari stundu þegar við vorum að leggja niður alla vinnuna sem væri yfirvofandi á næstu mánuðum var umhugsunin um jólaundirbúninginn ekki á það bætandi. ÞESSI orð hennar slökktu þó í okkur öllum. Þökk sé mikilli og náinni vinnu síð- ustu mánuði fannst okkur við vera farin að þekkjast heldur vel. Ég hafði meðal annars gert mikið grín af því hve þessi tiltekna stúlka minnti mig á örlítið yngri útgáfu af sjálfri mér. Þegar við vorum þarna saman komin, að vinna að sama verk- efni og með sömu framtíðarsýnina gleymdist alveg að hafa í huga frá hversu ólíkum uppruna við kæmum, sérstaklega þá hún frá okkur hinum. EFTIR að við höfðum náð að melta þetta innlegg hennar í umræðuna vöknuðu upp gríðar- margar spurningar um hennar lifnaðar- hætti. Hún svaraði þeim öllum með bros á vör og við fengum að kynnast menningunni úr pínulitla 612.000 manna bænum hennar ögn. Það var gaman! ÞEGAR heim var komið sat þetta samtal mikið í mér. Í tengslum við það fór ég að hugsa um verkefnið Jól í skókassa sem er eflaust mörgum kunnugt. Verkefnið er nú að fara af stað í níunda sinn og er lokafrestur til að skila inn kassa 10. nóvember. ÉG hef fengið að kynnast því í gegnum árin hversu gríðarlega mikil vinna liggur að baki verkefni á borð við Jól í skókassa. Ég hef líka fengið að kynnast því hvað margt smátt getur í alvörunni gert eitt stórt og það er einmitt það sem gerir vinnuna þess virði. EIN systir mín fer yfirleitt alla leið og pakk- ar inn ógrynni af skókössum sem hún svo fyllir af gjöfum og skilar inn. Hópur fólks fer þá í gegnum kassana og flytur þá til Úkraínu þar sem munaðarlaus börn fá þá að gjöf. Mér hefur alltaf þótt þetta afskaplega fallegt verkefni, en eftir að hafa átt þetta samtal við rússnesku vinkonu mína varð til- gangur þess og mikilvægi einhvern veginn svo miklu raunverulegri fyrir mér. ÞETTA árið ætla ég að búa til að minnsta kosti þrjá kassa handa börnunum í Úkraínu. Á meðan ætla ég hlusta á jólalög, syngja með og gleðjast yfir því að FÁ að halda jól. Jól í skókassa The Clone Wars Stjörnustríð á Cartoon Network CARTOON NETWORK ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.