Fréttablaðið - 22.11.2012, Blaðsíða 70
22. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| SPORT | 62
asdfasdfasdf
1,0
0,8
0,6
0,4
2006-
2007
0,47
mörk að
meðaltali
2007-
2008
0,40
mörk að
meðaltali
2008-
2009
0,75
mörk að
meðaltali
2009-
2010
0,89
mörk að
meðaltali
2010-
2011
0,96
mörk að
meðaltali
2011-
2012
1,22
mörk að
meðaltali
2012-
2013
1,26
mörk að
meðaltali
Þau ætla að vera fá markametin sem lifa af atlögu
Argentínumannsins Lionels Messi, sem er enn eitt
tímabilið að bæta frábæra markatölfræði sína.
Hvort sem þeir heita Pele, Alfredo Di Stefano,
Gerd Müller eða Diego Maradona þá hafa þeir ekki
roð við litla og hógværa snillingnum sem hefur
gerbreytt viðmiðum okkar um hinn fullkomna fót-
boltamann.
Lionel Messi skoraði tvö mörk á þriðjudags kvöld
þegar Barcelona tryggði sér sæti í 16 liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar með 3-0 sigri á Spartak í
Moskvu. Hann var að skora tvennu í þriðja Barce-
lona-leiknum í röð og það þykir varla merkilegt
lengur ef hann skorar, því tvö mörk eru eiginlega
orðin lágmarkið hjá þessum magnaða leikmanni.
Messi hefur nú spilað 19 leiki með Barcelona á
tímabilinu, skoraði tvennu í níu þeirra og þrennu
í þeim tíunda. Honum hefur aðeins mistekist að
skora í sex leikjum á leiktíðinni en hefur lagt upp
mark í þeim öllum nema tveimur. Fyrir vikið þykir
það oft meiri frétt en þegar hann skorar mark.
Messi er þarna fórnarlamb eigin velgengni og
meðfylgjandi línurit sýnir þessa þróun svart á
hvítu. Hann hefur hækkað sig á hverju ári og virðist
ekkert ætla að slaka á.
Messi var nýorðinn 21 árs þegar Pep Guardiola
tók við liðinu og var þá þegar búinn að spila með
aðalliði Barcelona í þrjú ár. Guardiola tók hann
hins vegar út úr skugga „stóru“ nafnanna og ákvað
að leikur liðsins skyldi snúast um Messi, sem jafn-
framt var kominn framar á völlinn.
Það var ekki að sökum að spyrja, Messi blómstr-
aði og hjálpaði Barca að vinna alla titlana á fyrsta
tímabili Guardiola. Messi fór frá því að skora 0,4
mörk í leik (16 mörk í 40 leikjum) í það að skora
0,75 mörk að meðaltali í hverjum leik (38 mörk í
51 leik).
Síðan hefur Messi bætt við meðalskor sitt á
hverju tímabili og hann virðist alltaf vera að bæta
met eða nálgast met. Þau verða nú fljótlega ekki
mörg eftir. Hann skoraði í fyrsta sinn yfir mark að
meðaltali í leik á síðasta tímabili og er að gera enn
betur í vetur.
Stóra spurningin nú er hvenær þessi ótrúlega
markakúrfa Messi nær hámarkinu. Messi er ekki
nema 25 ára og á því eftir að bæta við hæfileika
sína sem knattspyrnumaður í mörg ár enn. - óój
Messi á stanslausri uppleið
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU OG FLÓAHREPPI
Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunamannahreppi,
Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitarstjórnar varðandi eftirfarandi breytingu
á aðalskipulagi.
1. Breyting á Aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012, í Bláskógabyggð, innan þéttbýlisins Laugarvatn.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:
2. Breyting á deiliskipulagi Kiðjabergs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Fjölgun frístundahúsalóða og ýmsar lagfæringar.
3. Breyting á deiliskipulagi Sólheima í Grímsnes- og Grafningshreppi. Fjölgun íbúðarhúsalóða, menningarhús og
breyting á athafnasvæði.
4. Breyting á deiliskipulagi Grundar á Flúðum í Hrunamannahreppi. Stækkun skipulagssvæðis til vesturs vegna
viðbyggingar við Hótel Flúðir.
5. Breyting á deiliskipulagi orlofs- og frístundasvæðis Félags bókagerðarmanna í Miðdal, Bláskógabyggð.
Tvö ný orlofshús auk lagfæringa á lóðarmörkum og byggingarreitum.
6. Deiliskipulag fyrir fjallaselið Þverbrekknamúli í Bláskógabyggð ásamt umhverfisskýrslu.
7. Deiliskipulag fyrir fjallasel í Þjófadölum í Bláskógabyggð ásamt umhverfisskýrslu.
Samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitarstjórnar varðandi eftirfarandi deiliskipulagstillögu:
8. Deiliskipulag fyrir þéttbýli Laugarvatns í Bláskógabyggð.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags og skrifstofu skipulagsfull-
trúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu
á tillögunum og tillögurnar sjálfar á http://www.granni.is/uppsveitirogfloahr/auglysingar.htm. Skipulagstillögur nr. 2 til
7 eru í kynningu frá 22. nóvember 2012 til 4. janúar 2013. Athugasemdir og ábendingar við tillögur nr. 2 til 7 þurfa að
berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 4. janúar 2013 og skulu þær vera skriflegar.
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps
Rauði krossinn óskar eftir að ráða til
starfa verslunarstjóra fyrir fataverslanir á
höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða fullt starf og
þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Starfssvið:
• Umsjón með rekstri verslana
• Dagleg samskipti við sjálfboðaliða s.s. skráning og
mönnun á vaktir
• Samskipti og samvinna við fataflokkunarstöð
Hæfniskröfur:
• Þekking og áhugi á verslunarstörfum og tísku
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar veitir Linda Ósk Sigurðardóttir
í síma 554 6626.
Umsóknarfrestur er til 1. desember og sendist á
linda@redcross.is. Farið verður með umsóknir sem
trúnaðarmál og öllum svarað.
Verslunarstjóri
BOLTAVAKTIN
Staða og úrslit leikja í beinni
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag