Fréttablaðið - 22.11.2012, Blaðsíða 58
22. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 50
Hrollvekjan The Possesion eftir
danska leikstjórann Ole Bornedal
verður frumsýnd í kvikmynda-
húsum annað kvöld. Bornedal
vakti fyrst athygli með spennu-
myndinni Nattevagten frá árinu
1994. Sú mynd hlaut frábæra
dóma og aðsókn en var síðar
endurgerð í Hollywood með
þeim Ewan McGregor og Patriciu
Arquette í aðalhlutverkum og
farnaðist þá verr í kvikmynda-
húsum
Kvikmyndin segir frá Clyde
Brenek sem er nýskilinn við
eiginkonu sína, Stephanie, og
eiga þau saman tvær unglings-
dætur; Emily og Hönnuh. Þegar
stúlkurnar heimsækja föður
sinn á nýju heimili hans í fyrsta
sinn, detta þau inn á garðsölu í
nágrenninu. Þar finnur Emily
gamlan kistil sem hún heillast af
og ákveður Clyde að kaupa hann
handa dóttur sinni.
Við nánari athugun virðist
ómögulegt að opna kistilinn, en
Emily tekst það að lokum og í
kjölfarið byrja óútskýranlegir og
hræðilegir hlutir að henda stúlk-
una og fólkið í kringum hana.
Leikarinn Jeffrey Dean
Morgan fer með hlutverk Clydes
Brenek og leikur Kyra Sedgwick
fyrrverandi eiginkonu hans,
Stephanie. Natasha Calis og
Madison Davenport fara með
hlutverk systranna Emily og
Hönnuh Brenek. Með önnur
hlutverk fara Grant Daven-
port og reggítónlistarmaðurinn
Matisyahu.
Kvikmyndin hefur fengið mis-
jafna dóma. Kvikmyndagagnrýn-
andinn Roger Ebert gefur The
Possesion næstum fullt hús stiga
og segir hana vera frábæra hroll-
vekju. „The Exorcist hefur verið
fyrirmynd fjölda kvikmynda,
og þessi [The Possesion] er ein
af þeim bestu,“ sagði Ebert um
myndina.
Aðrir gagnrýnendur fara
ekki jafn lofsamlegum orðum
um myndina og segja hand ritið
klisjukennt og fyrirsjáanlegt.
The Possesion fær 39 prósentu-
stig í einkunn frá gagnrýnendum
á vefsíðunni Rottentomatoes.com
og 52 prósentustig frá áhorfend-
um.
ára er Natasha
Calis, sem fer með
hlutverk Emily Brenek.
í einkunn
fær myndin
á kvikmyndavefnum Rotten-
tomatoes.com.
13
39%
Barist við
illan anda
The Possession er ný mynd eft ir Ole Bornedal. Illur
andi tekur yfi r líkama ungrar stúlku. Gagnrýnandinn
Roger Ebert gefur myndinni nánast fullt hús stiga.
Handrit The Possession er innblásið af dularfullum
kistli sem gekk kaupum og sölum á sölusíðunni eBay.
com. Kistillinn var sagður hýsa „dybbuk“ sem sam-
kvæmt þjóðsögum Gyðinga er illur andi sem fastur er í
þessum heimi. Eigandi kistilsins, Jason Haxton, bauðst
til þess að senda framleiðanda The Possession, Sam
Raimi, kistilinn til að nota í myndinni en sá afþakkaði
boðið. „Ég vildi ekkert með þennan kistil hafa. Ég er
dauðhræddur við hlutinn. Ég hafði aldrei heyrt talað
um dybbuk í samkunduhúsinu, en þekkti söguna um
The Exorcist vel. Þegar ég kynnti mér frekar þjóðsögur
Gyðinga fékk ég hroll inn að beini,“ sagði Raimi í við-
tali við Entertainment Weekly.
Jeffrey Dean Morgan, aðalleikari myndarinnar,
sagðist ekki geta hugsað sér að handleika hinn raun-
verulega kistil. „Á meðan ég vann rannsóknarvinnuna
fór ég að finna fyrir mikilli hræðslu. Kærasta mín bað
mig um að halda mig fjarri kistlinum.“
➜ Kistillinn sem hræddi alla
ANDSETIN The Possession segir frá ungri stúlku sem er andsetin. Myndin þykir minna um margt á The Exorcist.
Bradley Cooper, Jennifer Law-
rence og Robert De Niro fara
með aðalhlutverkin í gaman-
myndinni Silver Linings Play-
book. Myndin fjallar um Pat Sol-
atano, leikinn af Cooper, sem
er með allt niður um sig í líf-
inu. Hann er lagður inn á stofn-
un fyrir fólk sem á við geðræn
vandamál að stríða og eftir átta
mánuði þar flytur hann aftur
heim í foreldrahús. Hugsanir
hans eru þó margar hverjar helst
til klikkaðar og þegar hann kynn-
ist Tiffany, sem er jafnvel klikk-
aðri en hann, myndast flókið en
sérstakt samband þeirra á milli.
Fjölskyldumyndin Here Comes
the Boom fjallar um líffræði-
kennarann Scott Voss, leikinn
af Kevin James. Voss er annt
um starf sitt og nemendur og
þegar skólinn sem hann kennir
við stendur frammi fyrir mikl-
um niðurskurði ákveður hann að
taka til hendinni. Hann skráir sig
í fjölda UFC-bardaga í þeirri von
að ná að safna nægum peningum
til að bjarga skólanum.
Önnur teiknimyndin um hrein-
dýrastrákinn Niko kemur einnig
í bíó um helgina. Að þessu sinni
lendir hann í fjörugum ævintýr-
um á milli þess sem hann verst
hættunni frá Hvítu úlfynjunni
sem telur sig eiga harma að hefna
gegn honum.
Bíó Paradís frumsýnir mynd-
ina Safety Not Guaranteed í
kvöld. Hún fjallar um þrjá
blaðamenn sem komast í
samband við mann sem
telur sig hafa fundið lykil-
inn á bak við tímaflakk.
Hann býður þeim með sér í
mikla ævintýraferð. - trs
Léttar frumsýningar
í bíóhúsum landsins
Fengist við geðraskanir, niðurskurð og tímafl akk á
spaugilegan hátt auk þess sem hreindýrastrákurinn
Nikó snýr aft ur í sinni annarri teiknimynd.
LÉTTGEGGJUÐ Bradley Cooper og Jennifer Lawrence leika léttklikkaða einstaklinga
í gamanmyndinni Silver Linings Playbook.
Svartir sunnudagar nefnist dag-
skrárliður í Bíói Paradís sem fram
fer öll sunnudagskvöld. Aðstand-
endur Svartra sunnudaga eru Hug-
leikur Dagsson, Sjón og Sigurjón
Kjartansson og hafa þeir staðið
fyrir sýningum á myndum sem falla
undir költ-flokkinn.
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar
Hjálmtýsson hefur verið fenginn
til liðs við þá félaga og mun hann
standa fyrir sérstöku Todd Brown-
ing kvöldi næstkomandi sunnudag.
Þá verða sýndar tvær myndir í leik-
stjórn Browning; Dracula frá 1931
og Freaks frá 1932. Páll Óskar mun
einnig halda stuttan fyrirlestur um
Browning, sem var gerður útlæg-
ur úr Hollywood eftir gerð hinnar
umdeildu kvikmyndar Freaks.
Freaks var byggð á smásögu eftir
Tod Robbins sem bar titilinn Spurs
og kom út árið 1923. Browning,
sem hafði starfað í nokkur ár hjá
farandsirkus, fékk fólk með raun-
verulega fötlun til að leika í mynd-
inni í stað leikara. Þetta vakti hörð
viðbrögð meðal almennings og var
myndin meðal annars bönn-
uð á Englandi í þrjátíu
ár. Eftir að Freaks kom
út átti Browning í erfið-
leikum með að finna
vinnu og leið fer-
ill hans undir lok
skömmu síðar.
Sýningar
hefjast klukk-
an 20 í Bíói
Paradís.
Svartir dagar í
Bíói Paradís
ÚTGÁFUBOÐ!
Verið hjartanlega velkomin
að fagna með okkur útgáfu
Hvítfeld – fjölskyldusögu
eftir Kristínu Eiríksdóttur
í Bókabúð Máls
og menningar
22. nóvember kl. 17.00.
LÉTTAR VEITINGAR
OG UPPLESTUR
VIÐUNDRIN Kvikmyndin Freaks verður
sýnd á Svörtum sunnudegi í Bíó Paradís.
PÁLL ÓSKAR
HJÁLMTÝSSON