Fréttablaðið - 07.12.2012, Page 10

Fréttablaðið - 07.12.2012, Page 10
7. desember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 SEATTLE, AP Lög um lögleiðingu kannabisefna tóku gildi í Wash- ington-ríki í Bandaríkjunum í gær og komu hundruð manna saman af því tilefni undir Geim- nálinni í Seattle og nýttu sér þetta nýfengna frelsi. Íbúar ríkisins samþykktu lögin í almennri atkvæðagreiðslu í síðasta mánuði, en hið sama gerðu íbúar Color- ado og eru þetta einu tvö ríkin þar sem almenn neysla er leyfð. Í Colorado taka lögin gildi eftir áramót. Nú fyrst um sinn er fólki yfir 21 árs heimilt að neyta kanna- bisefna innandyra og hafa allt að 30 grömm undir höndum. Nánari útfærsla verður sett í lög innan tíðar, en þau munu fela í sér reglugerðir fyrir framleiðslu, vinnslu og sölu efnanna, og leggst 25 prósenta skattur á arð á hverju stigi. Er áætlað að tekjur ríkisins gætu numið hundruðum milljóna dala árlega. Kannabisefni eru þó enn bönnuð samkvæmt alríkislögum, þannig að alríkislögreglan gæti handtekið fólk fyrir að eiga eða selja efnin. Dómsmálaráðuneytið sagði ekk- ert hafa breyst í þeim málum en hefur þó ekki gefið nokkuð út um hvort reynt verði að ógilda lögin. Fleiri hópar gátu fagnað í Wash- ington í gær, þar sem hjónabönd einstaklinga af sama kyni voru einnig leyfð. Mynduðust því langar biðraðir við skrifstofur sýslumanna. - þj Hundruð fögnuðu því að kannabisefni eru lögleg: Hampa lögleiðingu hampsins í Washington Í BLÁUM SKUGGA Áhugafólk um lögleiðingu kannabisefna fagnaði á viðeigandi hátt í Seattle. Þar á meðal var þessi herramaður, sem kallaður er Prófessor Gizmo. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Athygli er vakin á að á skattur.is er boðið upp á sjálfsafgreiðslu og á rsk.is er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um skattamál. Lokað í dag ! Föstudaginn 7. desember er lokað hjá ríkisskattstjóra HÖRÐ ÁTÖK Í EGYPTALANDI Egypski herinn stillti í gær skriðdrekum upp fyrir framan forsetahöllina í Kaíró og gaf bæði stuðn- ingsmönnum og andstæðingum Mohammeds Morsi forseta frest til að yfirgefa svæðið. Átök hafa magnast milli þessara fylkinga undanfarna daga og náðu hámarki í fyrrinótt þegar fimm manns létu lífið og um sex hundruð særðust. Stuðningsfylking for- setans var þar aðgangshörðust. NORDICPHOTOS/AFP NOREGUR Prófessor við Háskól- ann í Ósló, Arne Torp, segir norska gesti eiga að geta gert sig skiljanlega á móðurmálinu á norskum veitingastöðum. Þjón- arnir verði að kunna norsku. Norska ríkisútvarpið hefur það eftir forstjóra í ferðaþjónustunni, Hilde Charlotte Solheim, að það verði æ algengara að ráðið sé til starfa fólk í veitingabransanum sem ekki talar norsku. Hótelstjórinn Erlend Fardal Lunde segir erlent vinnuafl nauðsynlegt þar sem skortur sé á faglærðu starfsfólki í Noregi. Erlendir starfsmenn verði þó að læra norsku. -ibs Norskur prófessor vill halda í það ylhýra: Þjónar verða að kunna norsku Átök í Egyptalandi ÞJÓNN Norski prófessorinn segir norska gesti eiga að geta gert sig skiljanlega á móðurmálinu á veitingastöðum. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.