Fréttablaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 28
7. desember 2012 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 28
Starf mitt felst í því að gæta að réttindum
fólks, meðal annars vegna
umferðarslysa. Ég veit
því vel að það verður seint
sagt að íslenskt trygginga-
umhverfi ofali þá sem eiga
um sárt að binda vegna
slysa. Sumir launþegar eru
þó betur settir en annað
fólk, þar sem þeir hafa
viðbótartryggingavernd
vegna bílslysa í sínum
kjarasamningi. Trygg-
ingin er þó að hverfa úr
kjarasamningum án þess
að nokkur veiti því athygli.
Til mín leituðu tveir einstak-
lingar á síðasta ári sem tóku laun
eftir sama kjarasamningi og lentu
í umferðarslysi sem var bóta-
skylt eftir reglum umferðarlaga.
Rétt rúmir tveir mánuðir voru á
milli slysanna og fékk annar aðil-
inn 30% hækkun á bætur en hinn
fékk enga slíka hækkun. Ástæðan
var einföld, á milli slysanna hafði
viðbótartryggingarvernd vegna
umferðarslysa verið tekin út úr
kjarasamningnum. Því átti annar
aðilinn bótarétt úr slysatrygg-
ingu launþega meðan hinn átti
engan slíkan rétt. Kjarasamnings-
rétturinn hafði því verið skertur.
Hagur launþega ekki betri
Við þetta rifjaðist upp samtal
sem ég átti við fulltrúa launþega
í mjög stóru stéttarfélagi stuttu
eftir efnahagshrunið í október
2008. Ég velti því fyrir mér hvort
nokkurt svigrúm væri til launa-
hækkana á Íslandi næstu árin
og hvort ekki væri hægt
að nota tækifærið til að
semja um betri réttindi,
svo sem aukna trygginga-
vernd, styttri vinnuviku
og fleiri sumar frísdaga.
Ef gefa ætti þessi auknu
réttindi eftir síðar yrði
það ekki gert nema gegn
launahækkunum. Staða
launþega myndi því batna
til lengri tíma. Fulltrúinn
sagði almennan vilja fyrir
launahækkunum, þar sem
fjárhagsstaða almenn-
ings væri erfið. Ég hafði
áhyggjur af tvennu þegar
ég hugsaði að launahækkanir yrðu
sambærilegar hjá öllum stéttar-
félögum: Í fyrsta lagi hvort hækk-
anir myndu skila sér út í verð lagið
og að auki hækka verðtryggðar
skuldir þannig að nettó ávinn-
ingur af flötum launahækkunum
væri enginn. Í öðru lagi hvort ríki
og sveitarfélög hefðu takmarkað
fjármagn í almennar hækkanir
sem myndi leiða af sér hækkun
skatta og útsvars. Því miður urðu
áhyggjur mínar að veruleika.
Þegar litið er til kjarasamnings
einstaklinganna sem ég nefndi í
upphafi greinarinnar, og þá sér-
staklega tímabilsins frá október
2008 til dagsins í dag, má sjá að
lægstu laun í samningnum hafa
hækkað um 36%, sem er vel, en
hæstu launin um 17%. Þess ber
að geta að hæstu launin í launa-
töflunni voru þó ekki hærri en
svo að þau voru rétt yfir meðal-
heildarlaunum Íslendinga. Á
sama tíma hefur vísitala neyslu-
verðs hækkað um tæp 27%, vísi-
tala launa um tæp 24%, vísitala
byggingarkostnaðar um tæp 29%,
bensín, áfengi og tóbak um rúm
60% og raunskatthlutfall meðal-
launa hækkað úr 25,5% í 27,7%.
Kaupmáttur hefur því ekki aukist
heldur minnkað. Almennar launa-
hækkanir hafa því ekki skilað því
markmiði að bæta hag launþega.
Til að bæta gráu ofan á svart er
verið að skerða önnur réttindi í
kjarasamningum á sama tíma.
Erfitt að ná réttindum aftur
Ég er ekki forspár maður og
ekki sérfræðingur í hagfræði.
Þegar áðurnefndar áhyggjur
mínar komu á daginn taldi ég
líklegast að ég hefði ekki verið
einn um að átta mig á sam-
hengi almennra launahækkana
og verðlags- og skattahækkana.
Ég vona að þeir fáu heppnu sem
enn þá hafa aukna trygginga-
vernd í sínum kjarasamningum,
s.s. í kjara samningum við ríki og
sum sveitar félög, gefi þessi rétt-
indi ekki eftir án nokkurs endur-
gjalds. Erfitt er að ná réttindum
aftur inn síðar þegar ekkert er
til að semja um á móti. Því spyr
ég þig, kæri launþegi: Er gætt að
rétti þínum?
Er gætt að rétti þínum?
➜ Kaupmáttur hefur því
ekki aukist heldur minnkað.
Almennar launahækkanir
hafa því ekki skilað því
markmiði að bæta hag
launþega.
KJARAMÁL
Ingólfur
Magnússon
héraðsdómslög-
maður og
sérfræðingur í
slysa- og skaða-
bótamálum
util if. is
20% PAKKAAFSLÁTTUR EF KEYPT
ERU SKÍÐI, Bindingar OG SKÓR
NIÐUR
BREKKU FER
DÖMUSKÍÐI
MEÐ BINDINGUM
ROSSIGNOL ATTRAXION 1
79.990 kr.
HERRASKÍÐI
MEÐ BINDINGUM
ROSSIGNOL ALIAS 74
69.990 kr.
DÖMUSKÍÐASKÓR
NORDICA
CRUISE 55
29.990 kr.
HERRASKÍÐASKÓR
ROSSIGNOL
ALIAS SENSOR 70
33.990 kr.
SKÍÐAGLERAUGU
UVEX
CERVON
7.990 kr.
HJÁLMUR
ROSSIGNOL
TOXIC - GRÁR
11.990 kr.
N
A
S
YY
N
A
S
Y
Á
R
N
A
S
Y
Á
R
N
A
R
N
A
R
N
R
N
N
I
N
I
NN
RRRRR
Því er oft haldið fram að lítill
niður skurður hafi orðið í velferðar-
kerfinu og vísað til forgangsröð-
unar í ríkisfjármálum. Ætli það
sé raunin hjá framhaldsskólum
landsins sem eru hluti af velferðar-
kerfinu? Hefur þeim verið hlíft við
niðurskurði? Hver er veruleikinn
í skólastarfinu? Hér á eftir verða
dregnar fram nokkrar stað reyndir
til íhugunar fyrir þá sem standa
fyrir utan skólakerfið.
Verkefni framhaldsskólanna
hafa aukist jafnt og þétt á undan-
förnum árum, einkum vegna
fjölgunar nemenda. Þannig voru
nemendur í framhaldsskólum árið
2007 samtals 19.096 en 20.235
árið 2011 sem varð tæplega 6%
fjölgun. Þessu til viðbótar inn-
rituðust tæplega 1.500 nemendur í
skólana haustið 2011 vegna átaks-
ins „Nám er vinnandi vegur“.
Rétt er að minna á þá staðreynd
að fyrir hrunið haustið 2008 hafði
framhaldsskólinn þegar orðið
fyrir miklum niðurskurði. Fjár-
heimildir hans síðan þá hafa þrátt
fyrir það ekki verið í samræmi
við fjölgun nemenda og aukin
verkefni. Á árunum 2007 til 2011
voru fjárheimildir til skólanna
skornar niður um rúmlega 18%,
reiknað á verðlagi ársins 2011.
Í skýrslum OECD um mennta-
mál kemur fram að árleg útgjöld
vegna hvers nemanda í íslenskum
framhaldsskólum lækkuðu að
raunvirði milli áranna 2006 og
2007 og voru þó lág fyrir í alþjóð-
legum samanburði. Árið 2008
voru árleg útgjöld á hvern fram-
haldsskólanemanda í fullu námi
á Íslandi að raunvirði 12% undir
meðaltalinu í löndum OECD.
Eftir 2008 hefur mikill niður-
skurður fjár til framhaldsskóla
snaraukið vandann sem þegar var
fyrir hendi. Í fjárlagafrumvarp-
inu fyrir árið 2013 kemur fram
að uppsafnaður niðurskurður í
framhaldsskólakerfinu frá 2009
til 2013 sé rúmlega 4 milljarðar,
sem er rúmlega 18% á verðlagi
ársins 2013. Í árlegri fjárlaga-
gerð hefur ekki verið tekið tillit
til mikillar fjölgunar nemenda og
meira skorið niður í rekstri þeirra
en stjórnvöld vilja vera láta.
Veruleikinn í skólastarfinu
Niðurskurðurinn í skólastarfinu
birtist þannig að fjöldi nemenda
á hvert kennslustarf hefur aukist
og námshópar fara sístækkandi
en fjöldi kennara hefur ekki
þróast í samræmi við fjölgun
nemenda. Í rannsókn á starfs-
umhverfi í framhaldsskólum í
byrjun þessa árs, sem um 1.000
félagsmenn KÍ í framhalds-
skólum tóku þátt í, kom fram að
haustið 2011 voru 90% kennara
með fjölmennari námshópa en
hópaviðmið segja til um. Sístækk-
andi námshópar eiga stóran þátt
í slæmum starfsaðstæðum nem-
enda og kennara.
Kennarastarfið er erfiðara and-
lega og streita í starfi jókst um 16
prósent milli áranna 2010 og 2012.
Kennarar hafa minna svigrúm
til að sinna hverjum nemanda og
nota fjölbreytta kennsluhætti og
námsmatsaðferðir. Minni einstak-
lingsbundin samskipti kennara og
nemenda í kennslustundum bitna
á öllum nemendum en mest á
þeim sem þurfa á sérstakri leið-
sögn að halda. Námshópar í verk-
legu námi eru stærri en aðstæður
leyfa, og alvarlegar spurningar
vakna um öryggiskröfur við
slíkar aðstæður. Framhaldsskólar
landsins eru rúmlega 30, og höfðu
8 þeirra um helming nemenda
árið 2011. Þessir 8 skólar hafa
á að skipa rúmlega 20 náms- og
starfsráðgjöfum til að sinna nem-
endunum, sem þýðir um 500 nem-
endur á hvern náms- og starfs-
ráðgjafa. Í framhaldsskólalögum
er kveðið á um rétt nemenda til
náms- og starfsráðgjafar. Við
slíkar aðstæður er þessi réttur
bara í orði en ekki á borði. Til að
minnka brotthvarf úr framhalds-
skólanámi þarf að rjúfa vítahring
slæmra starfsskilyrða nemenda
og starfsmanna skólanna. Sam-
félagið ætlast til mikils af skól-
unum, þeir eiga því að geta vænst
mikils af samfélaginu.
Launaþróun félagsmanna KÍ
Á árunum 2007 til 2010 dróst
meðal launakostnaður á hvert
stöðugildi í framhaldsskólum
saman um 15%. Frá 2006 hefur
framhaldsskólinn verið að dragast
aftur úr launaþróun hefðbundinna
háskólamenntaðra viðmiðunar-
hópa sem starfa hjá ríkinu. Nú
munar um 15-16% á dagvinnu-
launum og 8-9% á heildarlaunum,
framhaldsskólunum í óhag. Fram-
haldsskólarnir eru í dreifstýrðu
launakerfi eins og aðrar ríkis-
stofnanir. Væntingar um að stofn-
anasamningar gæfu möguleika á
eðlilegri launaþróun gengu ekki
eftir.
Á næstu árum munu margir
starfsmenn í framhaldsskólum
láta af störfum vegna aldurs og
ráða þarf nýtt fagfólk í staðinn.
Það verður aðeins gert með því
að framhaldsskólarnir verði sam-
keppnishæfir í launum. Forgangs-
mál í kjarasamningum 2014 er
að jafna laun í framhaldsskólum
launum viðmiðunarhópa og koma
á eðlilegri og stöðugri launaþróun.
Skólastarf í framhaldsskólum
í skugga niðurskurðar
MENNTAMÁL
Aðalheiður
Steingrímsdóttir
formaður Félags
framhaldsskóla-
kennara
Hrafnkell Tumi
Kolbeinsson
varaformaður
Félags fram-
haldsskólakennara
➜ Kennarastarfi ð er
erfi ðara andlega og streita
í starfi jókst um 16 prósent
milli áranna 2010 og 2012.
Kennarar hafa minna svig-
rúm til að sinna hverjum
nemanda og nota fjölbreytta
kennsluhætti og námsmats-
aðferðir.