Fréttablaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 31
GRM Í SALNUM
Stórtónleikar verða í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20.30
þegar þar stíga á svið Megas, Gylfi Ægisson og Rúnar Þór
og flytja ógleymanlega smelli á borð við Minningu um
mann, Drottninguna vondu og Spáðu í mig auk
annarra þekktra laga. Miðaverð er 3.900 krónur.
■ FYRIR FJÓRA
800 g kjúklingabringur
3 msk. olía
4 blaðlaukar, hvíti parturinn
2 dl hvítvín, mysa eða vatn
2-3 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
2-3 greinar rósmarín eða 1 msk.
þurrkað
2 1/2 dl rjómi
1 tsk. kjúklingakraftur
40 g kalt smjör í teningum, má
sleppa
Sósujafnari
Salt og nýmalaður pipar
■ AÐFERÐ
Kryddið bringurnar með salti og
pipar og steikið í olíu á vel heitri
pönnu í 2-3 mínútur á hvorri hlið.
Takið þær af pönnunni og geymið
á diski. Steikið blaðlaukinn í
3-4 mínútur eða þar til hann er
orðinn fallega brúnaður. Bætið
hvítvíni, hvítlauk og rósmaríni á
pönnuna og sjóðið í 3 mín. Þá eru
bringurnar aftur settar á pönnuna
og hún færð í 180°C heitan ofn
í 10-12 mín eða þar til kjarnhiti í
bringunum er orðinn 70°C. Takið
þá pönnuna úr ofninum og færið
á heita eldavélarhellu. Hellið
rjómanum á pönnuna og þykkið
með sósujafnara. Takið pönnuna
af hellunni og bætið smjörinu
saman við. Hrærið í með sleif
þangað til smjörið hefur bráðnað.
Smakkið til með salti og pipar og
kjúklingakrafti. Berið bringurnar
fram með sósunni, blaðlauknum,
góðum kartöflum og salati.
BRASSERAÐAR KJÚKLINGABRINGUR
MEÐ BLAÐLAUK, RÓSMARÍNI OG HVÍTLAUK
Matreiðslumaðurinn Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga rétti úr Holta-
kjúklingi fyrir áhorfendur. Hér færir Úlfar okkur
brass eraðar kjúklingabringur með blaðlauk, rósmar-
íni og hvítlauk.
Bringurnar eru bornar fram með rjómasósu,
góðum kartöflum og salati. Hægt er að fylgjast með
Úlfari elda þennan girnilega rétt í kvöld klukkan 21.30
á sjónvarpsstöðinni ÍNN.
Þættirnir verða svo endursýndir yfir helgina. Einn-
ig er hægt að horfa á þá á heimasíðu ÍNN, inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
3ja ára
ábyrgð
!
VANDAÐAR
ÞÝSKAR HEILSUVÖRUR
ÞRÝSTINGS-
MÆLAR
HITAPÚÐAR
OG TEPPI
VERÐ FRÁ
5.995
VÖNDUÐ
NUDDSÆTI
VERÐ FRÁ
13.995
VERÐ FRÁ
5.995
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700
• GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380
• KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500