Fréttablaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 64
7. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 44
Hommar, lesbíur og
hinsegin jólatónleikar
Kórinn leggur sig fram við að vera skemmtilegur og öðruvísi og setur oft
hinsegin brag á lögin. Engum er mismunað sökum kynhneigðar.
„Við viljum leggja áherslu á að við
séum hinsegin kór með því að gera
hluti hinsegin. Til dæmis tökum
við gömul lög og snúum aðeins út
úr þeim, setjum hinsegin tvist á
þau,“ segir Auður Emilsdóttir, rit-
ari í stjórn Hinsegin kórsins.
Hinsegin kórinn heldur sína
fyrstu jólatónleika í Iðnó þann
13. desember næstkomandi og er
kórinn nú í miklum ham við undir-
búning. „Okkar tónleikar eru öðru-
vísi en aðrir því við leggjum enga
ofuráherslu á jólalög og erum ekki
heldur með þessa klassísku kóra-
tónlist. Jólalögin eru auðvitað með
í dagskránni á þessum tónleikum,
en við syngjum líka popptónlist og
dægurlög í bland. Í raun tökum við
bara tónlistina sem er í uppáhaldi
hjá okkur,“ segir Auður.
Kórinn hefur verið starfræktur
í eitt og hálft ár og hefur á þeim
tíma komið fram við ýmis tæki-
færi, þar á meðal á opnunarhá-
tíð Hinsegin daga í Háskólabíói í
haust. Í kórnum eru 35 karlar og
konum á öllum aldri og af öllum
kynhneigðum. „Við mismunum
engum sökum kynhneigðar,“ segir
Auður og hlær en kórinn er hags-
munafélag í Samtökunum 78. „Við
fáum að æfa í húsnæðinu hjá Sam-
tökunum og erum með í alls konar
ákvarðanatökum en erum þó ekki
hluti af samtökunum,“ bætir hún
við. Auður segir að auk þess að
vera rosalega góður leggi kórinn
sig fram við að vera skemmtilegur
og öðruvísi. „Til dæmis veigrum
við okkur ekki við því að hafa
konur í karlaröddum og öfugt ef
okkur þykir slíkt henta. Við erum
galopin fyrir öllum slíkum breyt-
ingum,“ segir hún.
tinnaros@frettabladid.is
Í raun tökum við
bara tónlistina sem er í
uppáhaldi hjá okkur.
Auður Emilsdóttir
Rómantík í kastala
Ný haustlína Chanel var sýnd í kastala í Skotlandi í
byrjun vikunnar. Línan gengur undir nafninu Métiers
d´Art og á að sýna handbragð Chanel gegnum
tíðina. Á tískupallinum mátti sjá köfl ótt munstur,
síðar kápur, uppreimaða skó og stórar slaufur um
hálsinn og það var svo ofurfyrirsætan Stella Ten-
nant sem lokaði sýningunni ásamt Karl Lagerfeld.
LITADÝRÐ Munstur og
margir litir.
HÖNNUÐURINN OG FYRIRSÆTAN Stella Tennant og Karl
Lagerfeld í lok sýningarinnar.
Vandræði Lindsay Lohan virðast
engan endi ætla að taka því skatt-
urinn hefur nú fryst bankainni-
stæður leikkonunnar vegna van-
skila. Tmz.com sagði frá þessu
fyrir skemmstu.
Ríkisskatturinn Bandaríkjanna
rannsakaði fjármál Lohan allt til
ársins 2009 og komst að því að hún
skuldar 29,4 milljónir króna í skatt
fyrir árin 2009 og 2010. Leikkonan
mun einnig skulda töluverða fjár-
hæð fyrir síðasta ár. Leikarinn
Charlie Sheen rétti Lohan hjálpar-
hönd og gaf henni tæpar 12,6 millj-
ónir króna upp í skuldina. Sú upp-
hæð dugði þó ekki til og því voru
bankainnistæður Lohan frystar
þar til hún hefur greitt skuld sína
til fullnustu.
Skuldar skattinum
Lindsay Lohan glímir við mikinn fj árhagsvanda.
Í VANDA Lindsay Lohan er í fjárhags-
vandræðum. Hún skuldar töluverðar
fjárhæðir í skatt. NORDICPHOTOS/GETTY
HRESS HÓPUR Hinsegin kórinn er óhræddur við að vera öðruvísi og á til að setja konur í karlmannsraddir og öfugt ef það passar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
RAUÐ KÁPA
Haustlegur
klæðnaður.
HRESSANDI
Fyrirsæta ársins í
Bretlandi, Cara
Delvigne.
HVÍTT Fallegur brúðarkjóll.
KÖFLÓTT
Pokabuxur
og alpahúfur
FEÐGAR Fyrirsætan Brad Kroenig gekk eftir
pallinum með syni sínum.
SÍÐUR
TREFILL
Grátt og rautt.
Heimsferðir bjóða nú sérstakt jólatilboð! Keyptu gjafabréf
fyrir 5.000 kr. en andvirði þess verður 7.000 kr.! Eða keyptu
gjafabréf fyrir 10.000 kr. og andvirði þess verður 15.000 kr.!
Athugið að tilboðið gildir einungis fyrir upphæðirnar sem
eru tilteknar hér að ofan og einungis er hægt að nota eitt
gjafabréf á mann í bókun. Gjafabréfið gildir einungis á
nýjar bókanir.
Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000.
Gefðu hlýju og samveru um jólin!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
8
7
7
Gjafabréf Heimsferða
er tilvalin gjöf fyrir þá
sem „eiga allt“