Fréttablaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 36
4 • LÍFIÐ 7. DESEMBER 2012
Svansí er mikill fagurkeri. Hún elskar fal-
lega hönnun og skammast sín ekki fyrir
það – enda engin ástæða til þess heldur.
RAGNHILDUR EIRÍKSDÓTTIR
STARF: Merkilegasta starfið sem ég hef unnið og
einnig það mikilvægasta er að vera móðir! Ég
starfa við það að leitast við að gera betur í dag
en ég gerði í gær, stundum tekst það svaka vel
en aðra daga eitthvað síður. Börnin er líklega
bestu kennarar sem við fáum á lífsleiðinni!
Hvenær byrjaðir þú á kertagerðinni? Það
eru rúm tvö ár síðan ég byrjaði að skreyta
kerti. Seldi þetta fyrst á markaði sem starfs-
fólki Icelandair var með á Hótel Hilton.
Hvar er hægt að nálgast kertin þín?
Hægt er að nálgast þau á fésbókarsíðu sem
heitir Vanilla Palace en kertin eru einnig til
sölu á veitingastaðnum Happi.
Ertu mikið jólabarn? Mér finnst jólin
mjög skemmtilegur tími og ég fæ mikla
ánægju út úr því að finna eitthvað skemmti-
legt í jólapakkann fyrir mína nánustu, nú eða
búa það til.
Hvenær hefst jólaundirbúningurinn
hjá þér? Ég byrja oft snemma að hugsa um
það að hefja jólaundirbúning en svo endar
það líklega oftar með því að vera nokkuð
sein. Eiginmaðurinn skrifar jólakortin á heim-
ilinu en ég sé um að búa þau til. Ég er nokkuð
ánægð með þau skipti. Hann hefur hins vegar
kvartað yfir því að fá þau frekar seint. Spurn-
ing hvort þremur dögum fyrir jól er of seint til
að skrifa 75 jólakort?
Eru einhverjar sérstakar jóla hefðir
sem þið endurtakið á hverju ári fjöl-
skyldan? Við erum þeirrar blessunar aðnjót-
andi að Kertasníkir kemur með eitthvað fal-
legt í skóinn handa okkur öllum á aðfanga-
dagsmorgun. Eftir að allir eru búnir að opna
pakkann sinn förum við öll saman í jólabaðið
í einhverri af þessum frábærum sundlaugum
sem við eigum hér í Reykjavík og nágrenni.
Hvað borðar fjölskyldan á aðfanga-
dagskvöld? Hnetusteik, hún er með því
betra sem ég fæ að borða og er alltaf á boð-
stólum á aðfangadagskvöld. Einnig erum við
með kalkún.
Hnetusteik – Uppskrift
5 dl soðin hrísgrjón
1 stór sellerírót rifin
1 rauðlaukur saxaður smátt
1 lítið chili, ég nota kjarnann líka
1 1/2 dl þurrkaðar apríkósur saxaðar
og soðnar
3-4 msk. kreólakrydd PG
1 tsk. Maldon-salt
200 g heslihnetur ristaðar og saxaðar
Rasp
Sesamfræ
Laukur og sellerírót mýkt á pönnu, kryddi
bætt út í, svo apríkósum og hnetum. Hrís-
grjónin eru hökkuð og ég nota hnífinn á
matvinnsluvélinni. Þessu er öllu hnoðað
saman annað hvort með hrærivél eða í
höndunum. Svo er hægt að móta þetta í
hleif og strá sesamfræjum yfir og bakað í
ofni á 200° í ca 40 mín. Einnig er hægt að
kæla deigið og móta svo buff sem er velt
upp úr sesamfræjum og steikt á pönnu.
Sæt kartöflumús
2 sætar kartöflur soðnar
góður slatti af íslensku smjöri
Kartöflurnar settar í hrærivél með smjörinu.
Ég notaði líklega 50 g en því meira smjör,
þeim mun betra.
Salat
1/2 l AB mjólk
3 msk. sinnep
1/2 tsk. wasabi
5 msk. hunang
AB mjólk sett í kaffisíu og látið leka af henni
í 1-2 klst. Með þessu verður hún sætari.
Öllu hrært saman við AB mjólkina.
2 epli, ég notaði græn
100 g valhnetur
Eplið skorið í smáa bita og valhnetur sax-
aðar. Allt sett saman við AB mjólkina. Ég
ætlaði að setja granatepli en gleymdi því.
Sósa
sveppir eftir smekk
1 stk. grænmetiskraftur Rapunzel
2 msk kreólakrydd PG
2-3 msk. kalkúnakrydd PG
1 dós kókosmjólk Rapunzel
3 msk. sulta, t.d. hindberja. Ég notaði
heimalagað rifsberjahlaup með chili.
Sveppir steiktir, öllu bætt út í nema sultu,
sósan þykkt. Ég nota spelt og vatn, að
lokum er sósan smökkuð til með sultunni.
ÓMÓTSTÆÐILEG HNETUSTEIK
Kertaskreytingakonan Ragnhildur Eiríksdóttir hefur nú hafist handa við að undirbúa jólin, föndra og hanna jólakortin sem eiginmaðurinn og rit-
höfundurinn Þorgrímur Þráinsson sér svo um að skrifa á. Lífið spjallaði við Ragnhildi og fékk uppskrift að hollum og góðum jólamat.
Lífið telur niður að jólum
„Ég fer ekki í dýrar skíða- eða golfferð-
ir en elska dýrar og fallegar hönnunar-
vörur og þær endast,“ segir Svan hildur
Þórsteinsdóttir eða Svansí, sem segist
ekki ætla eða þurfa að skammast sín
fyrir áhugamálið. Í Heimsókn annað
kvöld bankar Sindri Sindrason
upp á hjá Svansí, en þátturinn
er í opinni dagskrá, strax að
loknum fréttum á laugardög-
um á Stöð 2.
FER EKKI Í DÝRAR
GOLFFERÐIR
MYNDIR/ANTON BRINK