Fréttablaðið - 07.12.2012, Page 36

Fréttablaðið - 07.12.2012, Page 36
4 • LÍFIÐ 7. DESEMBER 2012 Svansí er mikill fagurkeri. Hún elskar fal- lega hönnun og skammast sín ekki fyrir það – enda engin ástæða til þess heldur. RAGNHILDUR EIRÍKSDÓTTIR STARF: Merkilegasta starfið sem ég hef unnið og einnig það mikilvægasta er að vera móðir! Ég starfa við það að leitast við að gera betur í dag en ég gerði í gær, stundum tekst það svaka vel en aðra daga eitthvað síður. Börnin er líklega bestu kennarar sem við fáum á lífsleiðinni! Hvenær byrjaðir þú á kertagerðinni? Það eru rúm tvö ár síðan ég byrjaði að skreyta kerti. Seldi þetta fyrst á markaði sem starfs- fólki Icelandair var með á Hótel Hilton. Hvar er hægt að nálgast kertin þín? Hægt er að nálgast þau á fésbókarsíðu sem heitir Vanilla Palace en kertin eru einnig til sölu á veitingastaðnum Happi. Ertu mikið jólabarn? Mér finnst jólin mjög skemmtilegur tími og ég fæ mikla ánægju út úr því að finna eitthvað skemmti- legt í jólapakkann fyrir mína nánustu, nú eða búa það til. Hvenær hefst jólaundirbúningurinn hjá þér? Ég byrja oft snemma að hugsa um það að hefja jólaundirbúning en svo endar það líklega oftar með því að vera nokkuð sein. Eiginmaðurinn skrifar jólakortin á heim- ilinu en ég sé um að búa þau til. Ég er nokkuð ánægð með þau skipti. Hann hefur hins vegar kvartað yfir því að fá þau frekar seint. Spurn- ing hvort þremur dögum fyrir jól er of seint til að skrifa 75 jólakort? Eru einhverjar sérstakar jóla hefðir sem þið endurtakið á hverju ári fjöl- skyldan? Við erum þeirrar blessunar aðnjót- andi að Kertasníkir kemur með eitthvað fal- legt í skóinn handa okkur öllum á aðfanga- dagsmorgun. Eftir að allir eru búnir að opna pakkann sinn förum við öll saman í jólabaðið í einhverri af þessum frábærum sundlaugum sem við eigum hér í Reykjavík og nágrenni. Hvað borðar fjölskyldan á aðfanga- dagskvöld? Hnetusteik, hún er með því betra sem ég fæ að borða og er alltaf á boð- stólum á aðfangadagskvöld. Einnig erum við með kalkún. Hnetusteik – Uppskrift 5 dl soðin hrísgrjón 1 stór sellerírót rifin 1 rauðlaukur saxaður smátt 1 lítið chili, ég nota kjarnann líka 1 1/2 dl þurrkaðar apríkósur saxaðar og soðnar 3-4 msk. kreólakrydd PG 1 tsk. Maldon-salt 200 g heslihnetur ristaðar og saxaðar Rasp Sesamfræ Laukur og sellerírót mýkt á pönnu, kryddi bætt út í, svo apríkósum og hnetum. Hrís- grjónin eru hökkuð og ég nota hnífinn á matvinnsluvélinni. Þessu er öllu hnoðað saman annað hvort með hrærivél eða í höndunum. Svo er hægt að móta þetta í hleif og strá sesamfræjum yfir og bakað í ofni á 200° í ca 40 mín. Einnig er hægt að kæla deigið og móta svo buff sem er velt upp úr sesamfræjum og steikt á pönnu. Sæt kartöflumús 2 sætar kartöflur soðnar góður slatti af íslensku smjöri Kartöflurnar settar í hrærivél með smjörinu. Ég notaði líklega 50 g en því meira smjör, þeim mun betra. Salat 1/2 l AB mjólk 3 msk. sinnep 1/2 tsk. wasabi 5 msk. hunang AB mjólk sett í kaffisíu og látið leka af henni í 1-2 klst. Með þessu verður hún sætari. Öllu hrært saman við AB mjólkina. 2 epli, ég notaði græn 100 g valhnetur Eplið skorið í smáa bita og valhnetur sax- aðar. Allt sett saman við AB mjólkina. Ég ætlaði að setja granatepli en gleymdi því. Sósa sveppir eftir smekk 1 stk. grænmetiskraftur Rapunzel 2 msk kreólakrydd PG 2-3 msk. kalkúnakrydd PG 1 dós kókosmjólk Rapunzel 3 msk. sulta, t.d. hindberja. Ég notaði heimalagað rifsberjahlaup með chili. Sveppir steiktir, öllu bætt út í nema sultu, sósan þykkt. Ég nota spelt og vatn, að lokum er sósan smökkuð til með sultunni. ÓMÓTSTÆÐILEG HNETUSTEIK Kertaskreytingakonan Ragnhildur Eiríksdóttir hefur nú hafist handa við að undirbúa jólin, föndra og hanna jólakortin sem eiginmaðurinn og rit- höfundurinn Þorgrímur Þráinsson sér svo um að skrifa á. Lífið spjallaði við Ragnhildi og fékk uppskrift að hollum og góðum jólamat. Lífið telur niður að jólum „Ég fer ekki í dýrar skíða- eða golfferð- ir en elska dýrar og fallegar hönnunar- vörur og þær endast,“ segir Svan hildur Þórsteinsdóttir eða Svansí, sem segist ekki ætla eða þurfa að skammast sín fyrir áhugamálið. Í Heimsókn annað kvöld bankar Sindri Sindrason upp á hjá Svansí, en þátturinn er í opinni dagskrá, strax að loknum fréttum á laugardög- um á Stöð 2. FER EKKI Í DÝRAR GOLFFERÐIR MYNDIR/ANTON BRINK

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.