Fréttablaðið - 07.12.2012, Side 45
LÍFIÐ 7. DESEMBER 2012 • 13
„Smashbox eru nýjar förðunarvörur hér á landi en afar þekktar úti í
hinum stóra heimi,“ segir Guðný Hrefna Sverrisdóttir, förðunar fræðingur
hjá Smashbox.
„Smashbox var nýlega aftur sett á fót og við ákaflega heppin að
fá þetta frábæra merki hingað heim. Smashbox er hvað þekktast fyrir
grunnandlitsfarða sína enda fyrstir til að markaðssetja slíka vöru og
óhætt að fullyrða að þar beri þeir höfuð
og herðar yfir önnur snyrtivörumerki,“
upplýsir Guðný um ofursvala förðunar-
línu Smashbox sem samanstendur af úr-
vali snyrtivara á afar sanngjörnu verði.
DUGANDI Í DAGSINS ÖNN
Guðný fékk dansarann og matgæðinginn
Yesmine Olsson til að setjast í förðunar-
stól Smashbox.
„Yesmine á afar annríkt og er tilvalin fyrir-
sæta fyrir Smashbox-vörurnar sem endast
daglangt og fram á kvöld,“ segir Guðný um
Smashbox-snyrtivörurnar sem eru einkar
góðar fyrir sterk ljós ljósmyndavera og nær-
myndir.
„Yesmine er á þönum
allan daginn, í ræktinni,
að þjálfa, hún eldar í
veislum og er í upp-
tökum þess á milli.
Hún þarf því alltaf
að vera tilbúin fyrir
myndavélina.“
HRÍFANDI
Í ANNRÍKI
DAGSINS
Íslenskar konur hrósa nú happi yfir nýjasta fengnum
á sviði förðunar því nú fást loks vörur heimsþekkta
snyrtivörumerkisins Smashbox á Íslandi. Þær eru
fullkomnar fyrir konur sem eiga annríkt og þurfa
alltaf að vera upp á sitt besta, og eru á góðu verði.
HVAÐ FANNST YESMINE?
„Ég hef mikinn áhuga á snyrtivörum
og nota oftast nær MAC og Bobbi
Brown. Mér þótti spennandi að fá
tækifæri til að kynnast Smashbox
og hef um tíma prófað BB- kremið,
hyljarann og augabrúna blýantinn.
Ég er vægast sagt hrifin, sérstak-
lega af BB- kreminu,“
seg i r Yesmine um
reynsluna af Smash-
box.
„Ég er mikið á ferð-
inni og hef sjaldan tíma
til að dunda lengi við
förðun áður en ég held
út í daginn. Með Smash-
box mun ég hins vegar
alveg ráða við þetta og
eftir förðunina hjá Guð-
nýju eru Tease- glossið
og Halo Wand Gold
uppáhaldssnyrti vörurnar
mínar,“ segir hún kát.
HEILLANDI FRÍSKLEIKI OG FEGURÐ
Til að fullkomna útlitið setti Guðný Radiance-
kinnalit á andlit Yesmine. „Hann er fallega fúksíu-
bleikur og hentar öllum um leið og hann gefur afar
frísklegt útlit,“ útskýrir Guðný. „Á varirnar setti ég
Limitless Longwear-gloss í litnum Forever til að fá
fallegan gljáa.“
Til að breyta hvunndagsförðun Yesmine í
heillandi kvöldförðun bætti Guðný við Limitless
Waterproof Liner í litnum Navy Blue, Lip Enhanc-
ing-glossi í litnum Tease og bætti við Studio Skin
15Hr Wear-farða á miðju andlitsins. „Að lokum
setti ég Chiffon-kinnalit á Yesmine til að fá örlítið
meiri ljóma á vangann.“
SEIÐANDI OG SEXÍ AUGNARÁÐ
Guðný grunnaði augnlok Yesmine með Water-
proof Shadow Liner, í litnum Luminous. Það
er mjúkur blýantur með púða á hinum endan-
um sem dreifir litnum auðveldar. Blýantinn má
nota einan og sér eða sem grunn undir aðra
augnskugga.
„Augnskugga-pallettan Screen Shot varð
fyrir valinu til að lita augnlok Yesmine. Ég setti
ljósasta litinn á mitt augnlokið en dekksta lit-
inn í skyggingu og á ytra svæði undir augum.
Gylltan skugga setti ég í innri augn-
króka og síðan brúnan
blýant til að fá dekkri og
skýrari umgjörð kringum
augun,“ útskýrir Guðný
glæsilega augnmálningu Yesm-
ine. „Maskarinn Full Exposure
gefur þétt og tilkomu mikil
augnhár og á augabrúnir
setti ég Brow to Go sem
er snilldar augabrúna-
blýantur með glæru geli
á hinum enda svo auga-
brúnirnar haldist mótaðar
allan daginn.“
FAGUR OG
NÁTTÚRULEGUR LJÓMI
Guðný byrjaði á að setja gott rakakrem á Yesmine til
að undirbúa húðina. Því næst notaði hún Photo Fin-
ish-grunnfarða til að jafna húðina og fá fallegra yfir-
bragð. Á kinnbein, enni og höku setti hún Photo Fin-
ish Luminizing Primer til að fá fal-
legan og þéttan ljóma.
„Ég notaði BB-krem á Yesm-
ine en það er mitt á milli þess að
vera farði og litað dagkrem. BB er
fullkomið fyrir konur sem hafa lít-
inn tíma á morgnana. Það grunnar,
gefur raka og jafnar húðlit og í því
er SPF 35 sólarvörn. Kremið er full-
komið eitt og sér og frábær grunn-
ur undir farða,“ útskýrir Guðný.
Undir augu og í kringum nef setti
Guðný High Definition-hyljara sem
er léttur og fallegur hyljari og auð-
veldur í notkun. „Til að fá fagurlega
náttúrulegan ljóma á kinnbeinin
notaði ég Halo Highlighting Wand,
í litnum Gold.“
AUGLÝSING - SMASHBOX KYNNIR