Fréttablaðið - 07.12.2012, Síða 78
7. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 58
HELGIN
Keyrðu mig heim nefnist ný-
stofnað fyrirtæki sem sér hæfir
sig í bílstjóraþjónustu fyrir
ölvaða. Félagarnir Ómar Þröstur
Hjaltason og Kristinn Sævar
Magnússon eru með bílstjóra á
sínum snærum sem sækja sam-
kvæmisljón í bæinn og skutla
þeim heim á þeirra eigin bíl.
„Þetta er hugsað sem forvörn
gegn ölvunarakstri,“ segir Ómar
og segir að nú geti fólk haft sam-
band við Keyrðu mig heim eftir
jólahlaðborðið í stað þess að fara
sér að voða með því að keyra eftir
einn eða tvo. „Það eru hátt í tíu
manns teknir fyrir ölvunarakstur
um hverja einustu helgi og ef þeir
sem komast upp með aksturinn
eru teknir með eru þetta eflaust
miklu fleiri.“
Eftir vel heppnaða prufuhelgi
opnaði tvíeykið vefsíðuna
Keyrdumigheim.is og þar má
Skutla bílunum heim
fyrir ölvaða fólkið
Bílstjóraþjónustan Keyrðu mig heim með valkost að loknum jólahlaðborðunum.
Á Facebook-síðu fyrirtækisins veltir fólk vöngum yfir lög-
mæti þjónustunnar en Ómar segist litlar áhyggjur hafa af
því að þeir séu að brjóta lög. „Allir bílstjórarnir okkar eru
með meirapróf. Það nægir til að mega keyra fólk á þeirra
eigin bílum. Ef við værum að hleypa fólki í okkar bifreiðar
þyrftu þeir að vera með leigubílaleyfi.“ Ómar bætir því við
að Vegagerðin hafi verið höfð með í ráðum frá upphafi og
hún hafi ekkert haft við þjónustuna að athuga.
Er þetta löglegt?
SKUTLA HEIM Ómar Þröstur Hjaltason og Kristinn Sævar Magnússon reka bílstjóraþjónustuna Keyrðu mig heim. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
sjá verðskrá, en ódýrasta heim-
keyrslan kostar 3.990 krónur.
Verðið er breytilegt eftir svæðum
og dýrast er að láta skutla sér í
Mosfellsbæ, en sá rúntur kostar
6.990 krónur. Ómar bendir þó á
að þjónustan sé mun ódýrari en
lægsta sekt fyrir ölvunarakstur,
en hún er um 70 þúsund krónur.
Ómar og Kristinn eru báðir af
Suðurnesjunum en til að byrja
með nær starfsemin aðeins yfir
höfuðborgarsvæðið. Nokkrar
fyrir spurnir hafa borist um hvort
fyrirtækið taki að sér heimkeyrslu
bíla fólks á leið í flug frá Kefla-
vík. „Það er alveg möguleiki ef
eftirspurn leyfir,“ segir Ómar og
segir fyrirtækið geta fjölgað bíl-
stjórum mjög fljótt ef þörf krefur.
„Við erum fjögur eins og er, þar af
tveir bílstjórar, en svo sjáum við
bara til með framhaldið.“
- hva
„Það verður hefðbundinn föstu-
dagur en á laugardaginn ætla ég að
borða svínarif með Míu, hundinum
mínum. Á sunnudaginn ætlum við
að fara í fjallgöngu, alveg sama
hvernig veðrið verður.“
Ingólfur Þór Árnason, tónlistarmaður.
„Okkur datt þetta í hug því við
vitum að svo margir luma á ger-
semum í fataskápum sínum sem
þeir nota ekki lengur,“ segir
Hildur Rósa, verslunarstjóri í 9
lífum sem er í kjallaranum í Atmo,
Laugavegi 91.
Um helgina ætlar verslunin
að efna til jólakjólamarkaðar og
bjóða viðskiptavinum að koma
með gamla kjóla og setja þá í
sölu í búðinni. Þegar þeir seljast
fær eigandinn svo helming af
söluverðinu; ef kjólinn selst á 10
þúsund fær eigandinn 5 þúsund
í sinn hlut. Skipti markaðurinn
er því kjörinn til að koma gamla
jólakjólnum í verð og kaupa sér
nýjan. „Við getum kallað þetta
eins konar umboðssölu. Þetta býr
til gott flæði og allir græða. Sá sem
selur kjólinn sinn getur keypt sér
nýjan og sá sem kaupir fær jólakjól
á góðu verði,“ segir Hildur Rósa.
Hún býst við að fjölmargir nýti
tækifærið og komi gömlu kjólunum
sínum í verð en hún ítrekar að allir
kjólar séu velkomnir.
Skiptimarkaðir á borð við
þennan eru þekkt fyrirbæri úti í
heimi og auðvelda þeir viðskipta-
vinum að koma hlutum í verð í stað
þess að láta þá hanga ónotaða inni í
skáp eða geymslu. „Þetta einfaldar
ferlið og er umhverfisvænt. Það að
halda fatamarkað eða fara í Kola-
portið getur verið mikið umstang
sem maður stendur ekki í nema
kannski einu sinni á ári.“
Hildur Rósa hvetur alla til að
kíkja í fataskápa sína eftir kjólum
um helgina. „Þetta er kjörið í jóla-
tiltektinni. Við búumst einnig við
að það verði gott kjólaúrval hjá
okkur í búðinni í kjölfarið.“ - áp
Gefa gömlu kjólunum framhaldslíf
Jólakjólamarkaður þar sem viðskiptavinir geta skipt notuðu kjólunum út í 9 Lífum um helgina.
KOMDU GAMLA KJÓLNUM Í VERÐ
Hildur Rósa og starfsfólk 9 lífa á Lauga-
veginum efna til kjólaskiptimarkaðar
um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Það má segja að þetta séu ástarljóð
frá pabba til mömmu,“ segir Júlíus
Guðmundsson, sem sendi frá sér
plötuna Gálan á miðvikudag. Flest
lög plötunnar eru við texta föður
hans, tónlistarmannsins Rúnars
Júlíussonar. Júlíus fann textana á
tölvu Rúnars, sem lést árið 2008, og
ákvað að búa til plötu.
Sumir textarnir voru tilbúnir
en aðrir voru bara ein setning sem
Júlíus gerði að lagatexta. Textarnir
eru flestir ortir til móður Júlíusar,
Maríu Baldursdóttur, og samdir af
Rúnari árið sem hann lést. „Þá var
hann greinilega kominn í ákveðinn
gír og líklega farinn að finna á sér
hvað væri í vændum. Pabbi var ekki
mikið fyrir að vera persónulegur í
textagerð sinni en margir textanna
eru um hvernig mamma eigi að
pluma sig þegar hann er farinn,“
segir Júlíus og bætir við að þeir
feðgarnir hafi alltaf ætlað að gera
plötu saman áður en Rúnar féll frá.
Sjálfur er Júlíus allt í öllu á plöt-
unni Gálan. Hann stjórnar útsetn-
ingum, tekur myndina á plötu-
umslaginu og spilar á næstum öll
hljóðfærin. „Það er hægt að kalla
þetta sjálfsþurftarbúskap. Ég ját-
aði mig samt sigraðan þegar kom að
fiðlunni, þar fékk ég Roland Hart-
well til að aðstoða mig.“
Ekki er hægt annað en að spyrja
Júlíus út í nafn plötunnar, Gálan.
„Það er nú ekki flókin saga. Þetta
nafn hefur fylgt mér lengi en ég er í
tríóinu Gálan, götuleikarinn og guð.
Þar er ég gálan.“ - áp
Syngur texta pabba til mömmu
Júlíus Guðmundsson fann texta föður síns, Rúnars Júlíussonar, á tölvunni hans.
GÁLAN Júlíus Guðmundsson sendir frá
sér plötuna Gálan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON