Fréttablaðið - 21.12.2012, Page 8
Augusto Monterroso frá
Guatemala (1921-2003)
er konungur örsagnanna.
Kristín Guðrún Jónsdóttir
kynnir hann hér fyrir
íslenskum lesendum.
SVARTI SAUÐURINN OG AÐRAR FABÚLUR EFTIR AUGUSTO MONTERROSO
ÖRSÖGUR
STÖÐUGT NÝJAR
FRÉTTIR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
BREYTINGARTILLÖGUR NEFNDARINNAR
Ekki fallið frá
afdráttarskatti
af vöxtum sem
greiddir eru úr
landi
Hætta við
hækkun
1.600 m.kr. 1.590 m.kr.
300 m.kr.
250 m.kr.
284 m.kr.
348 m.kr.
218 m.kr.
190 m.kr.
Bifreiðagjöld
lækki um
300 m.kr.
Áfengisgjald
lækki um
250 m.kr.
Olíugjald
lækki um
284 m.kr.
Sérstakt
vörugjald af
bensíni lækki
um 348 m.kr.
Vörugjald af
bensíni lækki
um 218 m.kr.
Gjald vegna
Ríkisútvarps-
ins ohf. lækki
um 190 m.kr.
Fallið verður frá hækkunum á
gjöldum sem nema 1,6 milljörðum
króna, samkvæmt tillögu meiri-
hluta efnahags- og viðskiptanefnd-
ar. Helgi Hjörvar formaður greindi
frá þessu skömmu fyrir atkvæða-
greiðslu um fjárlög. Stjórnarand-
staðan gagnrýnir að tillagan hafi
ekki komið fyrr fram.
Meirihlutinn leggur til að horfið
sé frá hækkun á bifreiðagjöldum,
á vörugjaldi á bensíni, á sérstöku
bensíngjaldi og á olíugjaldi. Þá
verði hætt við hækkanir á bjór og
léttvíni og hækkun á útvarpsgjaldi.
Þetta þýðir að skatttekjur ríkisins
dragast saman um 1.590 milljónir
króna.
Til að mæta því leggur meiri-
hlutinn til að fallið verði frá afnámi
afdráttarskatts á vöxtum sem
greiddir eru úr landi. Það skilar
1.600 milljóna króna tekjum.
„Breytingarnar draga úr nei-
kvæðum verðlagsáhrifum fjár-
lagafrumvarpsins um liðlega 0,1
prósent og þar með hækka verð-
tryggðar skuldir heimilanna um
hátt í tveimur milljörðum króna
minna en annars hefði orðið en
heildarniðurstaðan er jákvæð um
10 milljónir króna fyrir ríkissjóð,“
sagði Helgi þegar hann kynnti til-
löguna á þingi í gær.
Hann sagði breytingarnar hafa
lítils háttar áhrif á útkomu fjárlag-
anna. Efnislegar umræður færu
fram þegar við aðra umræðu um
ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Höskuldur Þórhallsson, þingmað-
ur Framsóknarflokksins, sagði það
forkastanleg vinnubrögð að koma
fram með mál sem hefði áhrif á
tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins rétt
áður en það væri samþykkt.
„Það eina sem við, fulltrúar
minni hlutans á Alþingi, höfum
fengið að heyra um þessar tillögur
er ræða háttvirts þingmanns rétt
áðan sem stóð yfir í þrjár mínútur.
Slík vinnubrögð eru til skammar
fyrir Alþingi og það veit háttvirt-
ur þingmaður Helgi Hjörvar.“
Hætta við hækkun á
bjórnum og bensíninu
Fallið verður frá hækkunum á bensín-, olíu- og bifreiðagjaldi, sem og áfengis- og
útvarpsgjaldi. Þýðir 1,6 milljarða króna minni hækkun. Í staðinn verður skattur á
vaxtagreiðslur úr landi ekki afnuminn. Sterkt vín og tóbak hækkar eftir sem áður.
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Pétur H. Blöndal, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og viðskiptanefnd,
gagnrýnir vinnubrögðin varðandi breytingarnar mjög. Hann segir veiga-
miklar breytingar á skattkerfinu hafa verið kynntar og rifnar út með hasti.
Þetta einkenndist af því að kosningar væru í nánd. Þá þýddu nýir skattar á
bílaleigur að Íslendingar ættu nú heimsmet.
„Svo er þarna ýmislegt gott sem bendir til þess að kosningar séu í nánd,
eins og til dæmis að lækka á gjaldið á Ríkisútvarpið aftur, það á sem
sagt að hækka það og svo á að lækka það aftur, og sama máli gegnir um
vörugjald á bensíni, olíugjald, áfengisgjald og vegagjöld og svo framvegis.
Skuldir heimilanna hækka þá ekki eins mikið, sem sumir hafa gaman af að
reikna út.
En ég rak augun í að komnir eru þrír nýir skattar á bílaleigur. Einn af
þeim er hækkun á virðisaukaskatti í 27 prósent, nýtt heimsmet, frú forseti.“
Heimsmet í sköttum á bílaleigur
Svo er þarna ýmislegt
gott sem bendir til þess
að kosningar séu í nánd,
eins og til dæmis að lækka
á gjaldið á Ríkisútvarpið
aftur.
Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
| FRÉTTASKÝRING | 21. desember 2012 FÖSTUDAGUR8
BREYTINGAR Á VÖRUGJÖLDUM