Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.12.2012, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 21.12.2012, Qupperneq 24
21. desember 2012 FÖSTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Misskilningur verður blaðagrein ÍBÚÐALÁNA- SJÓÐUR Sigurður Erlingsson forstjóri Íbúða- lánasjóðs Grein Hreiðars Más Hermannssonar í Fréttablaðinu þann 18. desember, „Þegar viðskipti verða fjárfesting“, byggir að miklu leyti á þeim grundvallarmisskiln- ingi að eignir Íbúðalánasjóðs eigi að leigja út á kostnaðarverði. Það er rangt, því slíkt hefur aldrei staðið til. Leiguverð Íbúðalánasjóðs fylgir markaðsverði á leigumarkaði, sem byggt er á upplýsing- um úr þúsundum þinglýstra leigusamn- inga. Atriði í greininni sem þarfnast leiðrétt- ingar lúta aðallega að eftirfarandi: • Íbúðalánasjóður er ekki gjaldþrota • Íbúðalánasjóður hefur þegar heimild til að leigja út íbúðir. Stofnun félags er því ekki forsenda þess • Leiguíbúðir Íbúðalánasjóðs eru og verða leigðar út á markaðsverði – ekki kostnaðarverði • Í 750 af 880 leiguíbúðum sjóðsins búa fjölskyldur eða einstaklingar sem bjuggu í íbúðunum við nauðungarsölu • Nýtt leigufélag verður tímabundið í eigu Íbúðalánasjóðs en samkvæmt lögum verður rekstur þess og stjórn fullkomlega aðskilin frá sjóðnum Fullnustueignir Íbúðalánasjóðs eru hlutfallslega flestar á Suðurnesjum, en þar á sjóðurinn tæp 8% íbúða á svæðinu, ekki 20% eins og dæmisagan í greininni tiltekur. Íbúðalánasjóður hefur þurft að leysa til sín margar eignir frá hruni og 2.193 íbúð- ir eru nú í eigu sjóðsins. Unnið er fag- lega og lögum samkvæmt að því að leysa þann vanda fólks sem hægt er að leysa og bjarga þeim verðmætum sem hægt er að bjarga. Eignir eru skipulega undirbúnar og skráðar í sölu í gegnum fasteignasölur landsins, án þess að vera merktar sér- staklega. Við sölu eignanna er Íbúðalána- sjóður ekki eingöngu að gæta eigin hags- muna, því hærra söluverð eignar þýðir lægri skuld þess sem missti hana. Íbúðalánasjóður gerir sitt ýtrasta til að gæta jafnræðis og meðalhófs í öllum aðgerðum. Ómögulegt er að þóknast öllum sjónarmiðum, sem sést best á því að sjóðurinn hefur undanfarið fengið jöfnum höndum gagnrýni fyrir að leigja of lítið, að leigja of mikið, að selja of hratt og að selja of hægt. Eina svar starfsmanna Íbúðalánasjóðs við þessari gagnrýni úr öllum áttum er að ástunda fagmannleg og hlutlæg vinnu- brögð við þetta verkefni, hér eftir sem hingað til. ➜ Unnið er faglega og lögum sam- kvæmt að því að leysa þann vanda fólks sem hægt er að leysa ... Nágirndin eina bjargráðið? Hallur Hallsson horfði á skoska sjón- varpsþáttinn Taggart á þriðjudag og það varð honum efni í pistil í Morgun- blaðinu í gær. Þar mærir hann Taggart í bak og fyrir. „Gott hjá Taggart að takast á við váfuglinn djúpt, djúpt í myrkviðum mannlegrar vitundar,“ segir Hallur og vill fá Taggart til Ís- lands. Það er fallegt að fylgjast með barnslegri uppljómun Halls vegna umrædds þáttar og því er það með sorg í hjarta að honum er bent á þá staðreynd að umræddur Taggart hefur legið í gröf sinni síðan árið 1995, þegar hann var jarð- aður í upphafi eins þáttarins. Illa er fyrir Íslendingum komið ef rotinn skoskur nár er eina bjargráðið. Europhobia Til eru ýmiss konar fóbíur, en það útleggst sem órökrænn ótti við eitthvað. Til eru þeir sem hræðast köngulær meira en allt, eða opin rými, lyftur og jafnvel trúða. Hallur tilheyrir þeim sem eru haldnir europhobiu, en það eru þeir sem óttast ESB meira en nokkuð annað. Fyrir þeim verður ljúf stund yfir skoskum krimma tilefni greinaskrifa um váfuglinn sem Evrópusambandið er í þeirra huga. Lagst gegn hreinsunum Jón Kristjánsson, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins, er ósáttur við fyrrverandi formann flokksins, Guðna Ágústsson. Jón segir í grein í Morgun- blaðinu að sér hafi brugðið við skrif síns gamla formanns, en Guðni hafði fagnað því að Framsóknarflokkurinn væri „búinn að hreinsa sig“ af ESB- draumnum. Jón segir að á þeim fjörutíu árum sem liðin eru síðan hann hóf afskipti af stjórnmálum hafi hann aldrei heyrt talað um „hreinsanir“ innan Fram- sóknarflokksins. Mættu margir taka yfirvegun Jóns sér til fyrirmyndar í umræðu dagsins. kolbeinn@frettabladid.is Opið kl. 11 - 18 laugardag Opið kl. 13 - 18 sunnudag Mikið úrval aðventuljósa og LED sería E in af frumskyldum þeirra sem byggja jörðina hverju sinni er að skila henni áfram til niðja sinna í jafngóðu ástandi og við henni var tekið, þ.e. að nýting á gæðum jarðar hverju sinni dragi ekki úr möguleikum þeirra sem landið erfa á að nýta og nota. Hugtakið sjálfbær þróun var skilgreint til að ná utan um þessa hugsun. Hugtakið er skilgreint sem mannleg starfsemi sem fullnægir þörfum samtímans án þess að draga úr mögu- leikum framtíðarkynslóða til að fullnægja sínum þörfum. Svandís Svavarsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur í þessu sambandi oft notað hugtakið jafnrétti kynslóða og leggur þar með áherslu á að ekki sé með nýtingu á hverjum tíma gengið á rétt þeirra sem eftir koma. Íslensk ungmenni hafa ekki eins miklar áhyggjur af því hvernig mennirnir umgangast jörðina og jafnaldrar þeirra í öðrum Evrópulöndum hafa að meðaltali. Þetta sýnir nýleg Pisa-könnun þar sem meðal annars er spurt um áhyggjur af loftmengun, orkuskorti og útrýmingu plantna og dýra. Engan skyldi undra áhyggjuleysi ungmennanna því áhyggju- leysi fullorðinna Íslendinga birtist hvarvetna dag hvern. Þótt eingöngu sé litið til frétta allra síðustu daga birtast dæmin; skólpmál og meðferð sorps hafa til dæmis verið umfjöllunar- efni í fréttaskýringum hér í blaðinu síðustu daga. Hér virðist lenskan vera sú að Íslendingar þurfi ekki að hafa áhyggjur af umhverfistengdum málefnum vegna þess hversu stórt landið er, það sé sama hversu illa við umgöngumst landið því það hverfur meira og minna í flæminu. Þessa sýn verður að uppræta. Skólar, og þar með talin öll skólastig, skipta sköpum hvað þetta varðar. Fyrrnefnd könnun leiddi einmitt í ljós að viðhorf ungmenna til umhverfismála mótast fremur af skólanum en viðhorfum foreldra þeirra. Sjálfbærni er enda einn sex skilgreindra grunnþátta mennt- unar ásamt læsi, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannrétt- indum, jafnrétti og sköpun í aðalnámskrá allra skólastiga. Þetta leggur vitanlega skyldu á hendur skólunum. Skólunum er í sjálfsvald sett með hvaða hætti þeir sinna skyldu sinni um að uppfræða nemendur um sjálfbærni. Hins vegar felst bæði aðhald og stuðningur í því að taka þátt í sam- eiginlegu verkefni eins og Grænfánaverkefni Landverndar. Nú taka rúmlega 200 skólar á öllum skólastigum þátt í því verk- efni. Markmið þess er að veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál en einnig að bæta umhverfi skólanna, minnka úrgang og notkun á vatni og orku. Ógnir sem steðja að umhverfinu eru margháttaðar. Sums staðar í heiminum stafa þær af fátækt en annars staðar af ofgnótt. Alls staðar er verkefnið að kenna börnum og ungu fólki að umgangast jörðina af virðingu jafn brýnt því það er órjúfanlegur þáttur af því að vera ábyrg manneskja. Skólarnir skipta sköpum varðandi umhverfisvitund: Virðing fyrir næstu kynslóð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.