Fréttablaðið - 21.12.2012, Qupperneq 36
21. desember 2012 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 36TÍMAMÓT
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐNI EGILL GUÐNASON
frá Suðureyri við Súgandafjörð,
til heimilis að Sóltúni 5, Reykjavík, andaðist
á Hjúkrunarheimilinu Skjóli að kvöldi
mánudagsins 17. desember. Útför hans fer
fram frá Áskirkju fimmtudaginn 27. desember
klukkan 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vildu minnast hans er bent á Parkinson-samtökin.
Brita Marie Guðnason
Jóhann Guðnason Rósa Hrund Guðmundsdóttir
Guðni Albert Guðnason
Ingólfur Guðnason Sigrún Elfa Reynisdóttir
Kjartan Guðnason Sesselja Traustadóttir
og barnabörn.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
www.kvedja.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
GUÐRÚN ÁSA MAGNÚSDÓTTIR
Meistaravöllum 23, Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn
15. desember. Útför hennar fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
28. desember kl. 13.00.
Sævar Gíslason
Olav Ingvald Olsen
Fjóla Bjarnadóttir
Óskar Einarsson
Beatrice Aðalsteinsson
systkini, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð, vináttu
og hlýhug vegna andláts og útfarar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞORSTEINU SIGURBJARGAR
ÓLAFSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða
fyrir góða umönnun.
Gunnar Ólafsson Erla Sigurðardóttir
Sigurbjörg Ólafsdóttir Birgir Pálsson
Sigurður Ólafsson Birna Jóhannesdóttir
Guðbjörg Ólafsdóttir Eiríkur Bogason
Sesselja Ólafsdóttir Gunnar Berg Sigurjónsson
Ólöf Erla Ólafsdóttir Stig Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SVANHVÍT STELLA ÓLAFSDÓTTIR
húsmóðir,
Grundargerði 6, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut
þriðjudaginn 18. desember. Jarðarförin fer
fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
28. desember klukkan 13.00.
Helena Á. Brynjólfsdóttir Valur Waage
Ólafur Brynjólfsson Hrefna Björnsdóttir
Eyjólfur Brynjólfsson Steinunn Þórisdóttir
Kristín Brynjólfsdóttir Kristján Jónasson
Sverrir Brynjólfsson Guðríður Ólafsdóttir
Dagný Brynjólfsdóttir Gunnar Óskarsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
ÁRMANNS J. LÁRUSSONAR
Digranesvegi 20, Kópavogi,
sem jarðsunginn var 26. nóvember frá
Fríkirkjunni Kefas. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki B-7 á
Landspítalanum fyrir hlýja og góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Björg R. Árnadóttir
Helga R. Ármannsdóttir Páll Eyvindsson
Sverrir Gaukur Ármannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐLAUG MARTEINSDÓTTIR
Löngumýri 22d, Garðabæ,
lést á Landspítalanum Fossvogi að kvöldi
mánudagsins 17. desember.
Gísli Ferdinandsson
Katrín Margrét Bragadóttir Oddur Fjalldal
Eyjólfur Einar Bragason Kristín Kristmundsdóttir
Stella Bragadóttir Michael Whalley
Þórir Valgarð Bragason Hanna Rúna Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, dóttir, mamma,
tengdamamma og amma,
BRYNHILDUR ÓLAFSDÓTTIR
skólastjóri,
Kögurseli 4, Reykjavík,
lést að morgni þriðjudags 18. desember.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á
Líknardeildinni fyrir einstaklega góða
umönnun og hlýtt viðmót. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þór Ottesen Pétursson
Ólafur Ingvarsson
Áslaug Þórsdóttir Viktor Örn Guðlaugsson
Brynja Þórsdóttir
Bjarki Þórsson
Hallbjörn E. Þórsson Helena E. Ingólfsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
hlýhug og samúð við andlát og útför
MARÍU RAGNARSDÓTTUR
saumakonu frá Akureyri.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri fyrir góða
umönnun.
Ættingjar og vinir hinnar látnu.
JOSEFINE PEREZ JÓNSSON
Reykjavíkurvegi 10, Hafnarfirði,
andaðist hinn 18. desember síðastliðinn á
kvennadeild Landspítalans. Bálför fer fram
28. desember kl. 13.00 frá Landakotskirkju.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á deild
21A fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldu og skyldmenna,
Finnbogi Þórir Jónsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BALDUR BERNDSEN MARÍUSSON
Tómasarhaga 24, Reykjavík,
lést laugardaginn 15. desember síðastliðinn
á LSH í Fossvogi. Jarðarför hans fer fram
frá Neskirkju föstudaginn 28. desember
næstkomandi kl. 13.00.
Inga Cleaver
Magnús Bjarni Baldursson Sigríður Haraldsdóttir
Guðrún Edda og Sigríður Erla Baldursdætur
Baldur Karl, Elín Inga og Edda Sólveig
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
STURLA JÓNSSON
Tungusíðu 14, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 18. desember.
Útför hans fer fram frá Glerárkirkju
föstudaginn 4. janúar kl. 13.30.
Anna Soffía Þorsteinsdóttir
Drífa Björk Sturludóttir Steingrímur Benediktsson
Atli Þór Sturluson
Júlíanna Þöll og Benedikt Sturla
Vegna stærðar blaðsins á morgun, laugardag,
verður Fréttablaðið prentað í tvennu lagi.
Frestur til að skila inn dánarauglýsingum í
laugardagsblaðið færist því fram til kl. 12.30.
„Þetta verður annaðhvort heims-
endaveisla eða fögnuður á nýju upp-
hafi,“ segir Ásdís Olsen sem fagnar
fimmtugsafmælinu sínu í dag.
Ásdís býður 100 fjölskyldumeðlimum
og vinum til veislu á heimili sínu í kvöld
þar sem hún segir að fagnað verði eins
og enginn sé morgundagurinn.
Hún er hvergi bangin við tíma mótin
stóru. „Þetta er bara spennandi. Ég er
viss um að við séum að ganga inn í nýja
tíma í kosmósinu, mannúðartíma og
að ákveðin uppstokkun muni eiga sér
stað. Konur rísa og mjúku gildin verða
í hávegum höfð enda löngu kominn
tími til,“ segir Ásdís, sem starfar sem
kennari í Háskóla Íslands ásamt því að
standa fyrir fjölbreyttum námskeiðum
í núvitund og hamingju.
Undirbúningur veislunnar hefur ekki
verið mikill að sögn Ásdísar, sem segir
að fólkið skapi veisluna og hún ætli að
njóta þess að hafa allt uppáhaldsfólkið
sitt í kringum sig. Hún ætlar að hafa
varðeld í garðinum þar sem spáð verður
fyrir um framtíðina og nýjum tímum
fagnað.
Ásdís segist hafa verið duglegri að
halda upp á afmælið sitt. Þegar hún var
barn féll afmælið hennar oftar en ekki í
skuggann af jólaundirbúningnum. „Allir
ættu að eiga einn dag á ári sem snýst
um þá sjálfa. Mér líst vel á tímamótin
og er þakklát fyrir að fá að bæta við mig
árum og vera heilbrigð og sátt.“
alfrun@frettabladid.is
Heimsendir eða nýtt upphaf
Ásdís Olsen fagnar fi mmtugsafmælinu sínu í dag. Hún neitar því ekki að afmælið hafi
stundum gleymst í jólaundirbúninginum en segist hafa orðið veisluglaðari með aldrinum.
FAGNAR TÍMAMÓTUM Ásdís Olsen heldur upp á fimmtugsafmælið sitt með pompi og prakt
í kvöld, en hún býður 100 manns heim til sín í veislu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM