Fréttablaðið - 21.12.2012, Síða 42
4 • LÍFIÐ 21. DESEMBER 2012
FREEBIRDVOR 2013
GLEÐILEG JÓL OG GLITRANDI NÝTT ÁR...
WWW.FREEBIRDCLOTHES.COM
/
HOLIDAY GLAM
ADD SOME
TO THE SEASON
A HAPPY HOLIDAY
HAVE
AND A SPARKLING NEW YEAR
HAVE A DAZZLING SEASON
freebird
HIN UNDURFAGRA FATALÍNA FREEBIRD
ER KOMIN Í TIIA.
Tiia, Laugavegi 46 s:571-8383
Eftir Bríeti Guðrúnardóttur,
nema í innanhúsarkitektúr.
Hér má sjá nokkrar hugmyndir
til þess að búa til skemmtilega
stemningu við veisluborðið, hvort
sem er fyrir fjölskylduboðið eða
partíið.
Blöðrur, hattar, grímur og ýlur eru
einfalt skraut sem klikkar aldrei.
Dreifðu þessu af handahófi um
húsið svo að gestirnir geti auð-
veldlega valið og skipt yfir kvöldið.
Vefðu frauðplastkúlur með mis-
munandi pallíettuborða. Notaðu
nál til þess að þræða silfurlitaðan
borða í gegnum kúluna og festu
saman servíetturnar. Þetta kemur
ótrúlega fallega út.
Föndraðu dúska eða skraut-
borða og hengdu yfir hátíðar borðið
eða festu á vegginn.
Kveiktu á kertum og skreyttu
borðið með einhverju sem glitrar.
Það skapar ávallt hátíðlega stemn-
ingu. Fáðu útrás fyrir sköpunar-
gleðina og mundu eftir góða
skapinu.
Gleðilegt nýtt ár!
ER VEISLA?
Hér eru blöðrurnar festar við servíett-
urnar og skapa nýársstemningu yfir
borðinu.
Blöðrurnar límdar á vegg. Það er sniðugt að skreyta glösin fyrir
partíið.
Fallegustu skreytingarnar eru oftast heimagerðar.
Pallíettukúlur notaðar sem servíettu-
hringir.
Kórónur, hattar,
flautur og glitrandi
borðskraut á vel við
í áramótaveislunni.
Hvítt og silfur
er alltaf hátíð-
legt og flott.
Gómsætur matur, flugeldar, flottar skreytingar, fjöl-
skylda og vinir. Hljómar eins og draumauppskrift að
góðri áramótaveislu.