Fréttablaðið - 21.12.2012, Page 44
6 • LÍFIÐ 21. DESEMBER 2012
Árið 2013 heilsar okkur með
heldur aðgerðalitlu veðri, og
verður þannig sennilega allan
janúarmánuð, en þá breytir
um og margar krappar lægðir
eiga eftir að lenda hjá okkur í
febrúar og mars.
Það verður sem sagt um-
hleypingasamt í febrúar og
mars en fremur hlýtt hér sunn-
anlands. Í öðrum landshlutum
verður mikill snjór enda norð-
lægar áttir ríkjandi meirihluta
vetrar.
VEÐUR OG
FRÉTTIR
Snjóflóð
Ég er hrædd um að snjóflóð
verði sem tekur mannslíf, mér
sýnist það vera á Vestfjörðum
norðanverðum. Þar sem veður
verða rysjótt verður einnig erf-
itt fyrir sjómennina að stunda
sína vinnu og svo eru vand-
ræði með fiskveiðistjórnun
sem á eftir að hafa miklar af-
leiðingar til hins verra víða um
land, einkum í hinum smærri
byggðarlögum. En þegar gefur
mun vel veiðast og verð á fiski
verður betra en oft áður.
Kvótamálin fara í endurskoðun
hjá nýrri ríkisstjórn. Aflaheim-
ildum verður breytt þannig
að menn mega veiða fyrir sig
og sína án vandkvæða. Ríkið
mun svo selja aflaheimildir
að hluta. Eftir árið fer svo allt
þetta kerfi í endurskoðun og
kemur breytt og bætt þaðan í
febrúar 2014.
Hlýtt sumar
Tíðarfar sumarsins verður mis-
jafnt en sumarið í heild sinni
verður hlýtt, en kemur seint á
Norðurlandi og Vestfjörðum.
Vestan- og sunnanlands verð-
ur rakt og hlýtt vor, en sólin
skín má segja í allt sumar og
fá Sunnlendingar sannkall-
að sumar, hlýtt en mætti vera
meiri væta á köflum. Fyrir
norðan og vestan verða júlí
og ágúst sólríkir og nokkuð
hlýir en júní kaldur og þurr. Á
Austurlandi verður einnig gott
um miðbik sumarsins, en ansi
mikil úrkoma og þungbúið
veður yfir stóran hluta sumars.
Árið endar með miklum veður-
hvelli, það verður bæði hvasst
og mikil ofankoma. Mér sýnist
mannvirki vera þar í hættu og
eitthvað verður um rafmagns-
leysi yfir áramótin.
Jörð mun
skjálfa
Eldsumbrot verða
undir sjó og koma
ekki til með að valda
skaða hjá okkur að
neinu ráði. Ég sé
ekki eld koma upp á
landi, en þó er hugs-
anlegt að það gerist í
lok árs 2013 og verða þá
nokkuð mikil eldsumbrot.
Jörð mun skjálfa svo til
í öllum landshlutum á
árinu og mér sýnist að
verði nokkuð stór skjálfti,
held að hann tengist norð-
austurhorninu en það verður
ekki mikið tjón sýnist mér og
engin mannslíf í húfi þar.
Banaslysum í um-
ferðinni fækkar
Banaslys í umferðinni verða
færri á árinu 2013 en mörg
undanfarin ár. Ekki dregur þó
bensínverð úr akstri lands-
manna, sem ferðast meira
innanlands en oft áður. Einn-
ig aukast enn ferðalög útlend-
inga á eigin vegum um Ísland
þannig að í heild verður um-
ferð á vegum úti meiri en verið
hefur að minnsta kosti undan-
farin tvö ár. Stórt sjóslys sé ég
í mars, þar verður manntjón.
Eldsvoðar verða tíðir og ekki
færri en á síðastliðnu ári. Það
mun kosta að minnsta kosti
tvö mannslíf. Það er sýnist
mér á austanverðu landinu.
ÞJÓÐMÁLIN
Nýir flokkar fá
lágmarksfylgi
Í þjóðmálunum ber árið 2013
mikinn keim af því að vera
kosningaár. Stjórnarflokkarn-
ir hafa sig mikið í frammi, lofa
ýmsu og halda sínum „heiðri“
á lofti, á meðan stjórnarand-
staðan berst um á hæl og
hnakka við að rétta sinn hlut.
Kosningarnar verða ekki af-
gerandi á nokkurn hátt. Sjálf-
stæðismenn fá minna fylgi en
haldið er, en það er að hluta
til vegna þess að forystan er
ekki fólksins í landinu. Fram-
sókn heldur sínu og fær heldur
meira en lítur út fyrir. Nýir flokk-
ar fá lágmarksfylgi. Samfylk-
ing og Vinstri græn tapa fylgi,
Vinstri
græn meira en Samfylking,
sem velur sér öflugan og vin-
sælan foringja á árinu. Það er
Guðbjartur Hannesson sem
þar mun standa við stjórnvöl-
inn, eftir afgerandi kosningu.
Jóhanna lætur
til sín taka
Steingrímur verður enn í for-
ystu VG, hann er samt orðinn
þreyttur og þarf að passa upp
á heilsuna. Í VG er mikil ólga
og ófriðaröldur sem erfitt er að
lægja, þannig að það er erf-
itt hjá Steingrími. Úr flokknum
fara margir á árinu, bæði óróa-
seggir og dugnaðarfólk.
Jóhanna hættir eins og hún
er búin að segja, en hún er
ekki hætt að láta til sín taka
og verður áberandi í sambandi
við stórt mál þegar líða tekur
á árið. Þetta mál snertir inn-
flytjendur á Íslandi og fær hún
stóra rós í hnappagatið fyrir
framgöngu sína þar. Henni
veitir ekki af, því minnisvarð-
inn sem hún ætlaði að reisa
sér með nýju stjórnarskránni
og stjórnlagaþinginu mis-
heppnast gersamlega.
Sú stjórn sem tekur við að
loknum kosningum sýnist
mér vera sjálfstæðismenn og
VG ásamt nýjum flokki. Ann-
ars verður stjórnarmyndun-
in erfið og þunglamalegt að
koma saman nýjum stjórnar-
sáttmála.
Völva Lífsins fram-
hald á næstu opnu
VÖLVUSPÁ 2013
Völva Lífsins þykir sannspá enda með áratuga reynslu þegar kemur að spádómum því óskaði Lífið eftir að hún skoðaði
framtíð lands og þjóðar árið 2013.