Fréttablaðið - 21.12.2012, Page 56
18 • LÍFIÐ 21. DESEMBER 2012
fyrir sér. Harpan verður ekki
nógu mikið notuð af klassísk-
um söngvurum en þó verður
sett upp gömul þekkt ópera á
árinu.
Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
fer í samstarf við aðila í dæg-
urtónlistinni og gerir garðinn
frægan þar.
ÍÞRÓTTIR
Íþróttafólk er mjög áberandi á
árinu. Kvennaliðið í handbolta
á eftir að gera garðinn frægan
á stórmóti á árinu. Mér sýnist
að þær komi heim með verð-
launapeninga. Þær eru vel að
sigrinum komnar, leggja allt
í þetta. Þar innanborðs eru
mjög margar efnilegar konur,
ég vil ekki nefna nein nöfn því
heildin er svo sterk og góð.
Ásdís Hjálmsdóttir mun eiga
gott ár. Sigrar á stórmóti og
fær silfur á öðru. En seinni
hluta ársins er hún að glíma
við meiðsli sem plaga hana
talsvert.
Gylfi Þór Sigurðsson spil-
ar áfram með Tottenham og
mun verða betri og eftirsóttari
á árinu en nokkru sinni.
Eiður Smári
sest á skólabekk
Eiður Smári Guðjohnsen dreg-
ur sig endanlega í hlé og sest
á skólabekk. Hann á gott og
rólegt ár fram undan.
Björgvin Páll Gústavsson
heldur áfram að verja skot-
in fyrir okkur. Hann mun spila
mest erlendis á árinu en hann
skiptir um lið og einnig land,
ég sé Þýskaland koma upp
í kringum hann. Hann er alls
ekki kominn á toppinn dreng-
urinn sá. Í einkalífinu er allt í
blóma hjá honum.
Sævar Birg-
isson
skíða-
kappi
keppir á erlendu stórmóti og
stendur sig betur en nokkur
Íslendingur hefur gert lengi.
Hann á framtíðina fyrir sér og
virðist sleppa við meiðsli, sem
er frábært.
María Guðmundsdóttir fer
einnig utan á mót eftir að hafa
sigrað á stórmóti hér heima
og nær góðum árangri í alpa-
greinum.
Parið sem sigraði í Dans Dans
Dans hefur sig lítið í frammi.
Eftir þessi úrslit er almenning-
ur ekki ánægður með keppn-
ina og þyrfti að breyta fram-
kvæmd fyrir næstu keppni, en
ég er hrædd um að það verði
ekki gert þannig að keppnin
líður fyrir það.
Byrjunin á
botnspyrnunni
Þegar ég lít yfir árið með já-
kvæðnina að leiðarljósi finnst
mér við standa okkur ótrúlega
vel. Þjóðin í heild er hamingju-
söm og fólk reynir að gera það
besta úr málunum. Við erum
þó enn á botninum og þok-
umst sorglega lítið upp á við
en ný ríkisstjórn mun hjálpa
okkur vel í baráttunni og við
skulum segja að árið 2013 sé
byrjunin á botnspyrnunni upp
á við.
hildur hafstein
workshop
Fal legar gjafir
fyrir f lo t tar konur
Hildur Hafstein
/ Workshop
Laugavegi 20 b,
(Klapparst ígsmegin)