Fréttablaðið - 21.12.2012, Síða 76
21. desember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 52
Sviðsett samband
LEIKHÚS ★★★★ ★
Strindberg: Aftur og sem
aldrei fyrr
Leiksýning Nemendaleikhússins
Leikarar: Elma Stefanía Ágústsdóttir,
Thelma Marín Jónsdóttir, Þorleifur
Einarsson, Arnar Dan Kristjánsson, Oddur
Júlíusson, Hildur B. Arndal, Salome R.
Gunnarsdóttir, Þór Birgisson, Arnmundur
E. Björnsson, Hafdís Helga Ingadóttir.
Kennari og leikstjóri: Egill Anton Heiðar
Pálsson.
Undir styrkri stjórn Egils Antons
Heiðars Pálssonar steypa leiklist-
arnemar á þriðja ári í Listaháskóla
Íslands saman tveimur verkum
eftir August Strindberg sem verður
að þéttri uppákomu um samskipti
og ást eða ástleysi. Verkin eru
Fröken Júlía og Leikið með eldinn.
August Strindberg er ekkert
sjálfgefinn og einfaldur enda sýna
verkin tvö sem Nemendaleikhúsið
hefur valið að hræra saman í eitt
að hann er stórfenglega næmur á
samskipti og þær innri hugsanir
og hugdettur sem fylgja því ofur-
venjulega, nefnilega að hugsa,
finna og lifa með annarri persónu.
Fröken Júlíu skrifar hann fyrir
þáverandi eiginkonu sína, leikkon-
una Siri von Essen, og kvenpers-
ónan í seinna verkinu, Leikið með
eldinn, á að vera hún eða hefur
miklar skírskotanir til þeirra erf-
iða samlífs. Hvað var svona erfitt?
Einmitt þessarar spurningar hafa
ótal höfundar spurt sig og fund-
ið við mismunandi svör. Sumir
fræðimenn eru þeirrar skoðunar
að Strindberg hafi sett líf sitt og
uppákomur allar á svið til þess að
geta svo unnið úr þeim í verkum
sínum. Flestir eru á því að Strind-
berg hafi verið hömlulaus snill-
ingur sem þrátt fyrir sjálfsdýrk-
un hafi verið einkar næmur á allt
í umhverfinu, eins og sést í verk-
um hans. Hann skrifaði jafnt á
frönsku sem sænsku og hafði mikl-
ar áhyggjur og bar umhyggju fyrir
móðurmáli sínu.
Í þessum verkum sem hér var
steypt saman kemur einkar vel
fram hversu vel honum farnast að
leika sér að tungunni í nánu sam-
bandi fólks. Egill Heiðar hefur
valið þá leið að láta leikarana ungu
leika sömu hlutverkin sem endur-
tekin eru frá mismunandi sjón-
arhóli og fór vel á því, þó atriðið
fræga þegar þjónninn Jean burst-
ar stígvél greifans hafi kannski
verið fulloft endurtekið. Leikur-
inn að eldinum kom heldur betur
út og þar var meiri framvinda úr
verkinu sjálfu. Leikaraefnin ungu
stóðu sig mjög vel og leikmyndin
átti sinn þátt í að gera verkið gott.
Hér var bæði grínast og spriklað
í fötum og án þeirra og kannski
fullmikið gert úr nektinni, eins og
til að sýna að þetta getum við. Það
er miðsumarnæturbrjálæði sem
einkennir stemninguna og brúin
milli leikverkanna er algerlega
áreynslulaus. Nokkuð reyndi þó
á þolrif áhorfenda þar sem verk-
ið var heldur langt í flutningi.
Við hittum fyrir þrjár Júlíur, þrjá
þjóna og tvöfalda uppsetningu hlut-
verkanna úr Leika með eldi. Hér
verður ekki gert upp á milli leikara
enda skiluðu þeir allir hlutverkum
sínum með sóma og var framsögn
þeirra til einstakrar fyrirmyndar.
Það hömluleysi sem Strindberg
er oft kenndur við kom hér mjög
vel fram. Vonandi verður sýning-
in tekin aftur upp eftir áramótin.
Elísabet Brekkan
NIÐURSTAÐA: Sýning sem fangar
hömluleysi Strindbergs vel. Leikurinn
að eldinum kom betur út en Frú
Júlía. Leikaraefnin stóðu sig fantavel.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012
Sýningar
17.00 Sýningin Umskurður verður
opnuð í Dúfnakofanum (kaffihúsinu) í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Á henni eru klippi-
verk eftir Hrafn Hrólfsson. Sýningin
stendur til 1. janúar.
Hátíðir
15.00 Fögnuður verður haldinn í
Hjartagarðinum í tilefni vetrarsólstaða,
loka tímatals mayanna og nýs upphafs.
Það er No Borders Iceland sem stendur
fyrir hátíðinni og fjöldi listamanna
kemur fram.
Uppákomur
11.00 Gluggagægir kíkir í heimsókn
á Þjóðminjasafn Íslands. Aðgangur er
ókeypis.
12.10 Ljósmyndarinn Mats Wibe
Lund dregur út sigurvegara í leiknum
Setja í skóinn hjá Mats. Leikurinn er í
tengslum við ljósmyndasýningu hans
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og fer
útdrátturinn fram þar.
12.34 Fjölbreytt menningardagskrá er
í boði á Jóladagatali Norræna hússins.
Uppákomur hvers dags eru gestum
huldar þar til gluggi dagatalsins er opn-
aður í upphafi atburðarins. Listamaður-
inn Hugleikur Dagsson gerði dagatalið
í ár.
15.00 Kaffi Framsókn, Hverfisgötu 33,
býður í vöfflukaffi. Ingibjörg Reynis-
dóttir leikari og rithöfundur les upp úr
bók sinni, Gísli á Uppsölum.
Tónlist
12.00 Gissur Páll Gissurarson og Árni
Heiðar Karlsson koma fram á Jólatón-
um Munnhörpunnar í Hörpu. Aðgangur
er ókeypis.
17.30 Jara spilar á Undiröldunni í
Kaldalónssal Hörpu. Undiraldan er tón-
leikaröð Hörpu í samstarfi við 12 Tóna.
Sindri Eldon & The Ways stíga einnig á
svið. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Blúsfélag Reykjavíkur og Vinir
Dóra efna til Jólablúsgjörnings í Rúbín
við hliðina á Keiluhöllinni.
21.00 Camerarctica leikur ljúfa tónlist
við kertaljós á tónleikunum Mozart við
kertaljós í Garðakirkju. Aðgangseyrir er
kr. 2.500 en kr. 1.500 fyrir nemendur og
eldri borgara og frítt fyrir börn.
22.00 Ýmsir listamenn koma fram á
jólatónleikum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da
Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
22.00 Útgáfu- og jólatónleikar Brother
Grass verða haldnir á Café Rosenberg.
Boðið verður upp á frumsamin, notaleg
og tímalaus jólalög og skemmtilega
gesti. 20 ára aldurstakmark og aðgangs-
eyrir er kr. 2.900. Hægt er að kaupa
miða við hurð eða á midi.is.
23.00 Hljómsveitin Ojba Rasta heldur
góðgerðatónleika til styrktar Mæðra-
styrksnefnd á Faktorý. Meðal gesta
verða Egill Ólafsson, Gnúsi Yones úr
Amöbu Dömu og Birkir B úr Forgotten
Lores.
Leiðsögn
12.00 Boðið verður upp á leiðsögn um
sýningu Þórunnar Elísabetar Sveins-
dóttur, Lauslega farið með staðreyndir
– sumt neglt og annað saumað fast, og
sýningu Þuríðar Rósar Sigurþórsdóttur,
Hinumegin. Báðar sýningarnar standa
nú yfir í Hafnarborg og er aðgangur
ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
BÆKUR ★★ ★★★
Kantata
Kristín Marja Baldursdóttir
JPV-ÚTGÁFA
Kristín Marja Baldurs-
dóttir hefur glatt bók-
menntasinnaða Íslend-
inga með bókum á
borð við Mávahlátur,
Hús úr húsi, Karit-
as og Óreiða á striga.
Nýjasta bók hennar,
Kantata, er kynnt
sem „stórbrotin og
margradda fjöl-
skyldusaga þar
sem þræðir flétt-
ast , spinnast ,
vindast og rakna“.
Í upphafi bók-
arinnar er lýst óumbeðinni
myndatöku í jarðlest í París.
Sú myndataka á eftir að koma
við sögu síðar og hrinda af stað
atburðarás sem persónur sögunn-
ar eiga miserfitt með að takast á
við.
Aðalpersónur eru hjónin Nanna
og Gylfi, sem eru vel stæðir hótel-
eigendur, og Hjálmar hálfbróðir
Gylfa, frægur og vinsæll leikari
sem býr hjá Ingdísi móður sinni.
Finnur, föðurbróðir bræðranna
og endurskoðandi, og Dúi, frændi
Finns, sem býr hjá honum og vinn-
ur sem móttökustjóri eins hótels-
ins, Senna, ættleidd dóttir Nönnu
og Gylfa, og Olli, hundur Dúa,
koma líka við sögu.
Ljósmyndarinn Aloked Achmad
Maurice Hamand kemur hreyf-
ingu á líf fjölskyldunnar þegar
hann mætir á svæðið og vill fá
að mynda karlmennina og nota
myndirnar í bók sem hann hyggst
gefa út eftir Íslandsdvöl sína. Ljós-
myndarinn skrásetur það sem
hann sér í gegnum myndavélar-
linsuna, en eins og gengur eru
menn missáttir við afraksturinn
og þá sögu sem hann vill segja
með myndunum.
Til að byrja með þótti mér erfitt
að henda reiður á persónum sög-
unnar, en það lagaðist í þann mund
sem ég sótti mér penna og ætlaði
að fara að punkta niður hjá mér
helstu persónur og
fjölskyldutengsl.
Sjónarhornið er
brey t i leg t , en
það sem er einna
skemmtilegast við
söguna er að stund-
um er það hjá pers-
ónum sem eru ekki
vanar að hafa orðið;
förðunarfræðingi leik-
arans, nuddara, ritara
og síðast en ekki síst,
hundinum Olla.
Ótti við hið óþekkta,
útlendingahatur og ísl-
amófóbía er eitt af því
sem höfundur lætur pers-
ónur sínar takast á við í
sögunni. Verðugt viðfangsefni,
en hér er rasisminn fullýktur og
fyrirsjáanlegur. Það er ákaflega
lítill háski í sögunni. Persónurn-
ar dunda sér við garðyrkjustörf
og laxveiði, hlusta á sígilda tón-
list og hittast í settlegum grill-
veislum, þar sem drukkin eru dýr
vín. Í raun er manni alveg sama
um þessar manneskjur. Þær eru
hvorki skemmtilegar né leiðinleg-
ar og það sem knýr þær áfram er
afskaplega óljóst.
Ég varð raunar hissa yfir því
hvað höfundi virðist liggja fátt á
hjarta. Þegar endirinn nálgaðist
bjó ég mig undir einhvern óvænt-
an snúning, eitthvað sem varp-
aði ljósi á persónurnar og tengsl
þeirra, en varð fyrir vonbrigðum.
Kantata þykir mér æði bragðdauf
saga um fremur lítt spennandi
fjölskyldu.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Bragðlítil fjölskyldu-
saga um fordóma og það að ekki sé
allt sem sýnist.
Óljósar myndir
af fjölskyldu
GLEÐILEG JÓL
Faxafeni 5, Reykjavik og Skeiði 1, Ísafirði
HÆGINDASTÓLAR dönsk hönnun og gæði!
Kr. 139.800
Til í svörtu, hvítu
og rauðu leðri.
LEVANTO
hægindastóll
með skemli
Kr. 219.800
Til í svörtu og hvítu leðri.
Opus
hægindastóll
með skemli Amstel
hægindastóll
með skemli
Kr. 149.800
Til í svörtu og hvítu leðri.
Kr. 149.900
Í antracite áklæði.