Fréttablaðið - 17.01.2013, Qupperneq 2
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkja-
forseti biðlar til fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings að samþykkja víðfeðmar tillögur
sínar um herta byssulöggjöf. Forsetinn
kynnti tillögurnar á blaðamannafundi í
Washington í gær.
Meðal þess sem forsetinn leggur til að
þingið samþykki er að hríðskotarifflar
verði bannaðir og að sala á skothylkjum
sem geyma meira en tíu skot verði bönnuð.
Þá vill hann að bakgrunnur kaupenda allra
skotvopna verði skoðaður, en nú eru um
fjörutíu prósent allra skotvopna keypt án
eftirlits í einkasölu og á byssusýningum.
Forsetinn viðurkenndi á fundinum að til-
lögur hans myndu mæta mikilli andstöðu
í þinginu. „Sjálfskipaðir spekingar, stjórn-
málamenn og fulltrúar þrýstihópa munu
vara við einræðislegri árás á frelsið, ekki
af því að það er satt, heldur af því að þeir
vilja vekja upp ótta eða auka gróðann sinn,“
sagði forsetinn meðal annars. „Og á bak við
tjöldin munu þeir gera allt sem þeir geta til
að koma í veg fyrir allar skynsamlegar til-
lögur og passa upp á að ekkert breytist.“
Obama skrifaði einnig upp á 23 aðgerðir
sem ekki þarfnast fulltingis þingsins. Meðal
þeirra eru rannsóknir á byssuofbeldi. - þeb
Landssamtök byssueigenda í Bandaríkjunum, NRA,
segja að hundrað þúsund manns hafi gengið í sam-
tökin eftir harmleikinn í Sandy Hook-skólanum í
Newton í desember síðastliðnum. Samtökin birtu
auglýsingu fyrir blaðamannafundinn í gær þar sem
forsetinn var sagður forréttindasinnaður hræsnari
fyrir að láta vopnaða verði fylgja dætrum sínum í
skólann en berjast gegn því að vopnaðir verðir yrðu í
öllum skólum landsins. Talsmaður Hvíta hússins sagði
í gær að auglýsingin væri ógeðfelld og hugleysisleg.
100.000 í landssamtök
byssueigenda
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti í gær tillögur að hertri byssulöggjöf í Bandaríkjunum:
Vill banna sjálfvirka riffla og auka eftirlit
BRETLAND, AP Tveir létust og þrettán slösuðust þegar þyrla rakst á
byggingakrana og hrapaði til jarðar á háannatíma í miðborg London í
gærmorgun.
Flugmaður þyrlunnar og vegfarandi á götu létust í slysinu, auk þess
sem einn hinna slösuðu er í lífshættu að sögn lögreglu. Yfirmaður hjá
lögreglunni, Neil Basu, sagði það kraftaverki líkast að manntjón hafi
ekki verið meira.
Flugmaðurinn hafði ætlað að fá að lenda á nálægum þyrlupalli
vegna slæms veðurs, en þoka var í borginni.
Byggingakraninn stendur við háhýsi þar sem innréttaðar verða
íbúðir fyrir auðmenn. - þeb
Þyrla rakst á byggingakrana og hrapaði til jarðar:
Mildi að fleiri létust ekki í London
SLYSIÐ Brak úr þyrlunni dreifðist um göturnar á háannatíma, þegar mikill fjöldi
fólks var á leið til vinnu. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL „Ég fer bara ekki neitt,“
segir kaupmaðurinn Júlíus Þor-
bergsson, Júlli í Draumnum, sem
býr sig nú undir það að menn á
vegum Sýslumannsins í Reykjavík
banki upp á hjá honum og beri hann
út. Það gæti orðið á allra næstu
dögum.
Héraðsdómur Reykjavíkur
úrskurðaði um það í gær að bera
skyldi Júlíus út úr verslunarhús-
næði Draumsins við Rauðarárstíg
og íbúð í sama húsi. Verði af því er
ljóst að saga Draumsins er á enda,
að minnsta kosti á þessum stað þar
sem verslunin hefur verið rekin í
nærri aldarfjórðung við mismikinn
fögnuð íbúa í nágrenninu.
Eignirnar tvær, sem skráðar eru
á Draum ehf., voru settar að veði
fyrir láni sem sonur Júlíusar tók.
Lánið fór í vanskil og í hönd fór
langt og strangt innheimtuferli sem
reyndist árangurslaust. Í október
síðastliðnum voru eignirnar því að
lokum seldar á nauðungaruppboði.
Júlíus hefur hins vegar harðneitað
að fara.
Umráðaréttur yfir eignunum er
nú hjá Íslandshótelum annars vegar
og lögmanninum Jóni Magnússyni
hins vegar. Magnús Jónsson, sonur
Jóns, er lögmaður beggja aðila.
Hann segir að eftir nauðungar-
uppboðið hafi Júlíus haft mánuð til
að gera athugasemd við það til dóm-
stóla. Það hafi ekki verið gert.
„Í kjölfarið fórum við fram á
útburð,“ segir Magnús. Hann kveð-
ur líklegt að af honum verði á allra
næstu dögum.
Júlíus segir málið hins vegar allt
hið einkennilegasta, í ljósi þess að
peningarnir sem sonur hans hafi átt
að fá lánaða gegn veði í eignunum
hafi aldrei skilað sér. Hann hafi
verið svikinn og feðgarnir íhugi
nú að fara í hart við lánveitandann.
„Nú er hann að sigla í mjög mikil
vandræði,“ segir hann. „Strákurinn
skuldar honum ekki fimmaur.“
Og hann kveðst alls ekki ætla að
láta bera sig út. „Ég fer náttúrulega
ekki út úr mínu eigin húsnæði ef ég
skulda ekki neitt. Hvernig dettur
þeim það í hug?“
stigur@frettabladid.is
Júlli harðneitar að
yfirgefa Drauminn
Dómari úrskurðaði í gær að kaupmaðurinn Júlíus Þorbergsson skyldi borinn út
úr Draumnum við Rauðarárstíg og íbúð í sama húsi. „Hvernig dettur þeim það í
hug?“ spyr Júlíus, sem hefur neitað að fara eftir nauðungaruppboð í október.
JÚLLI Í DRAUMNUM Júlli hefur rekið Drauminn í nærri 25 ár ár og hefur nokkrum
sinnum fengið yfirvöld í heimsókn. Þessi mynd er tekin á góðri stundu árið 2004.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hæstiréttur staðfesti í lok september eins árs fangelsisdóm yfir Júlíusi
fyrir að selja lyfseðilsskyld lyf út úr Draumnum. Júlíus kveðst ekki vera
búinn að sitja af sér neinn hluta dómsins. „Ég veit ekki alveg hvernig þetta
verður,“ segir hann.
Þegar lögregla gerði húsleit vegna þess máls í júní 2010 var Draumurinn
innsiglaður. Lögregla taldi sig ekki geta haldið versluninni lokaðri eftir út-
gáfu ákæru og um áramótin 2011 og 2012 opnaði Júlíus hana á nýjan leik,
einungis um mánuði áður en hann hlaut dóminn. Núna, ári síðar, er útlit
fyrir að Draumurinn gæti verið á enda.
Ekki búinn að sitja af sér dóminn
STJÓRNMÁL
Samstaða fer ekki fram
Sjö af níu stjórnarmönnum í Samstöðu,
flokki lýðræðis og velferðar, eru hættir
í stjórninni. Fráfarandi formaður segir
að flokkurinn muni ekki bjóða fram í
alþingiskosningum. Þá er til meðferðar
innan flokksins tillaga um að breyta
honum í þjóðmálafélag.
ALSÍR
41 gísl í haldi
Herskáir íslamistar tóku 41 gísl í
grennd við gasvinnslustöð í Alsír í gær.
Tveir létust þegar íslamistarnir réðust á
rútu sem fólkið var í. Fólkið starfar fyrir
gasvinnslustöðina, en talið er fullvíst
að gíslatakan tengist hernaði Frakka í
grannríkinu Malí.
BÍLAR Tíðar bílveltur undanfar-
ið má rekja til þess að ökumenn
hafa ekki verið viðbúnir hálku.
„Ef eitthvað bregður út af og
menn missa stjórn á bílnum þá
skiptir sköpum að bregðast við
af yfirvegun og öfgalaust og
reyna í rólegheitum að leiða bíl-
inn aftur inn á veginn. Varast
skal að kippa snöggt í stýrið eða
hemla snögglega,“ segir í leið-
beiningum Umferðarstofu. Slík
viðbrögð eru sögð geta gert illt
verra og leitt til þess að bíllinn
velti. - óká
Tíðar bílveltur í hálkunni:
Ekki skal kippa
snöggt í stýrið
SPURNING DAGSINS
Slagur við Dróma
Af hverju fáum við fyrrum viðskiptavinir Spron og Frjálsa
fjárfestingabankans ekki banka eins og aðrir Íslendingar??
Nú er tækifærið, stöndum saman.
„Þrotabú er ekki staður
fyrir eðlilega bankastarfsemi“
Samstöðufundur í kvöld 17. janúar kl. 20 í gamla
Stýrimanna-Sjómannskólanum v/Háteigsveg
2.hæð
Fundarstjóri:
Ólafur Garðarsson, formaður H.H
Facebook : slagur við dróma
slagurviddroma@gmail.com
Hrönn, verður Goðahverfið
mest æsandi hverfi bæjarins?
„Það verður goðum líkast.“
Hrönn Vilhelmsdóttir í Kaffi Loka er í
áhugahópi sem vill styrkja ímynd svokallaðs
Goðahverfis sunnan Skólavörðustígs með
skreytingum sem minna á æsina sem götur
hverfisins draga nöfn af.
LÖGREGLUMÁL Fjölmennt lögreglu-
lið réðst til inngöngu í höfuðstöðvar
samtakanna Outlaws í Hafnarfirði í
fyrrakvöld og lagði þar hald á efni
sem talið er að hægt sé að nýta til
sprengjugerðar. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá lögreglu.
Í félagsaðstöðunni fannst einn-
ig haglabyssa, sem reyndist vera
stolin, og skotfæri. Húsleit var jafn-
framt gerð heima hjá félagsmönn-
um og þar fannst efni í sprengju-
gerð, loftskammbyssa og fíkniefni
í söluumbúðum.
Þrír menn voru handteknir í
aðgerðunum. Þeir eru á þrítugs-,
fertugs- og fimmtugsaldri. Þre-
menningarnir voru yfirheyrðir í
gær en sleppt úr haldi að því loknu.
Sérsveit lögreglu tók þátt í
aðgerðunum og notaðist við
sprengjuleitarhund og fíkniefna-
leitarhund. - sh
Lögregla réðst í húsleitir hjá Outlaws og handtók þrjá meðlimi:
Fundu byssur og sprengiefni
„Ég tjái mig ekki við blaðamenn,“ sagði Víðir „tarfur“ Þorgeirsson,
forsprakki Outlaws, þegar blaðamaður hafði samband við hann vegna
málsins í gær.
Spurður hvort hann hefði verið einn hinna handteknu svaraði Víðir:
„Því miður, ég get ekki svarað þér. Þessu samtali er lokið. Bless.“
„Þessu samtali er lokið“
AÐALMAÐURINN Víðir „tarfur“ Þorgeirsson var handtekinn í umfangsmikilli
lögregluaðgerð í október. Gæsluvarðhaldskröfu á hendur honum var hafnað.