Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 48
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING TÓNLIST | 32
Bandarísku indírokkararnir í Yo
La Tengo gáfu á þriðjudaginn út
sína þrettándu hljóðversplötu,
Fade. Tríóið nýtur mikillar virð-
ingar og hefur lengi verið eftirlæti
gagnrýnenda en meginstraums-
vinsældir hafa verið takmarkaðar,
enda tónlistin oft á tíðum tilrauna-
kennd, lágstemmd og innhverf.
Yo La Tengo var stofnuð í
bænum Hoboken í New Jersey af
hjónunum Ira Kaplan og Georgia
Hubley árið 1984. Fyrsta platan
leit dagsins ljós tveimur árum
síðar og hét Ride the Tiger.
Árið 1993 hóf Yo La Tengo sam-
starf sitt við útgáfuna Matador og
segja má að boltinn hafi byrjað að
rúlla fyrir alvöru með sjöttu plöt-
unni, Painful, sem kom út sama ár.
Það var sú fyrsta með núverandi
bassaleikara, James McNew, um
borð í öllum lögunum. Painful var
einnig fyrsta platan með Roger
Moutenot sem upptökustjóra og
átti hann eftir að stjórna upptök-
um á næstu sex plötum sveitarinn-
ar. Ein sú þekktasta, I Can Hear
the Heart Beating as One, kom út
1997 við mjög góðar undir tektir
gagnrýnenda. Síðar meir náði
hún í 25. sætið á lista vefsíðunnar
Pitchfork yfir bestu plötur tíunda
áratugarins.
Yo La Tengo er þekkt fyrir að
spila lög eftir aðra á tónleikum og
á plötum sínum. Til að mynda tók
hún Little Honda með Beach Boys
á I Can Hear the Heart Beating as
One og sömuleiðis lagið My Little
Corner of the World, sem hljóm-
aði í sjónvarpsþáttunum Gilmore
Girls. Einnig kom hljómsveit-
in óvænt fram í kvikmyndinni I
Shot Andy Warhol sem New York-
sveitin The Velvet Underground.
Roger Moutenot er fjarri góðu
gamni á Fade og í stað hans er sest-
ur við takkaborðið John McEntire,
liðsmaður síðrokk sveitarinnar
Tortoise. Hann hefur áður tekið
upp fyrir Bright Eyes, Stereolab
og Teenage Fanclub. Platan þykir
vera afturhvarf til I Can Hear
the Heart Beating as One og And
then Nothing Turned Itself Inside
Out, sem kom út 2000. Þar er
góðum melódíum blandað saman
við noise, shoegaze, strengja- og
blásturs hljóðfæri og alls kyns til-
raunamennsku.
Ekki kemur á óvart að Fade
hefur fengið fyrirtaksdóma. The
Guardian gefur henni fjórar
stjörnur af fimm mögulegum, The
Independent gefur henni þrjár af
fimm en Pitchfork splæsir á hana
8,1 af 10 í einkunn og vefsíðurnar
Drowned in Sound og Clashmusic
8 af 10. freyr@frettabladid.is
Eft irlæti gagnrýnenda
Þrettánda hljóðversplata indírokkaranna í Yo La Tengo, Fade, er nýkomin út.
NÚMER ÞRETTÁN Ira Kaplan og félagar í tríóinu Yo La Tengo hafa gefið út sína þrettándu hljóðversplötu. NORDICPHOTOS/GETTY
Shoegaze-tónlistarstefnan tengist indírokki og kom fyrst fram í Bretlandi
seint á níunda áratugnum og hélt vinsældum þar fram á miðjan tíunda
áratuginn. Hún dró nafnið sitt af því að tónlistarmennirnir stóðu nánast
kyrrir uppi á sviði án nokkurra afskipta af áhorfendum og virtust í eigin
heimi. Talað var um að þeir væru að stara á skóna sína og þaðan er nafnið
komið.
Flestar shoegaze-hljómsveitir notuðu mikið af bjöguðum gítareffektum
í tónlist sinni. Helstu sveitirnar í þessum geira voru Cocteau Twins,
The Jesus and Mary Chain og My Bloody Valentine. Meðal áhrifavalda
shoegaze-stefnunnar voru The Velvet Underground og Sonic Youth.
Störðu á skóna á tónleikum
Við Bowie-aðdáendur vöknuðum upp við þær óvæntu og ánægjulegu
fréttir á 66 ára afmæli söngvarans 8. janúar að það var komið út nýtt lag
með honum og fyrsta platan hans með nýju efni í tæp tíu ár væntanleg
11. mars.
Lagið, Where Are We Now, hefur fengið góðar viðtökur. Það er rólegt
og melankólískt og maður heyrir að röddin er orðin eldri og viðkvæmari.
Bowie sjálfur hefur ekki enn gefið kost á viðtali, en upptökustjórinn Tony
Visconti, sem hefur mikið
unnið með Bowie, hefur
veitt nokkur viðtöl. Hann
segir að þeir hafi unnið
plötuna, The Next Day,
á síðustu tveimur árum.
Hann segist undrandi á
valinu á fyrsta smáskífu-
laginu og segir að platan
sé mun rokkaðri en þetta
fyrsta lag gefur til kynna.
Hann sagði líka þetta:
„Þeir sem vilja sígilt
Bowie-efni fá það og þeir
sem vilja eitthvað nýtt fá
það líka.“ Hljómar eins og
fínasti auglýsingatexti …
Um leið og fréttin
barst af útgáfu The Next
Day myndaðist mikil
stemning. Fjölmiðlar
kepptust um að fjalla um
málið og platan fór beint á topp Amazon-listans í Bretlandi, þó að hún
komi ekki út fyrr en eftir tvo mánuði. Bretar elska Bowie og sú hrifning
minnkaði ekki þegar lagið Heroes var spilað undir innkomu heimamanna
á setningarathöfn Ólympíuleikanna í fyrra. Tímasetningin á nýrri plötu er
þess vegna fullkomin.
Það stefnir á að 2013 verði mikið Bowie-ár, því að auk nýrrar plötu
verður stór yfirlitssýning um David Bowie opnuð í Victoria & Albert
Museum í London 23. mars og stendur fram á sumar. Það verður að vísu
engin tónleikaferð í kjölfar útgáfu The Next Day, en Bowie útilokar ekki að
halda eina tónleika.
2013 verður Bowie-ár
TÓNNINN
GEFINN
Trausti Júlíusson
New Order - Lost Sirens
Pere Ubu - Lady From Shanghai
Ýmsir - World Music from the Cold Seas
Í spilaranum
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
0
32
88
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Valdimar Yfir borgina
2 Labrinth / Emeli Sandé Beneath You‘re Beautiful
3 Ásgeir Trausti Nýfallið regn
4 Moses Hightower Háa C
5 Blaz Roca / Ásgeir Trausti Hvítir skór
6 Retro Stefson Julia
7 Bruno Mars Locked Out of Heaven
8 Jónas Sigurðsson Hafið er svart
9 Ed Sheeran Give Me Love
10 Pink Try
Sæti Flytjandi Plata
1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
2 Retro Stefson Retro Stefson
3 Moses Hightower Önnur Mósebók
4 Valdimar Um stund
5 Hjaltalín Enter 4
6 Jónas Sigurðsson Þar sem himin ber við haf
7 Sigurður Guðm. & Memfism. Okkar menn í Havana
8 Of Monsters And Men My Head Is an Animal
9 Steindór Andersen &
Hilmar Örn Hilmarsson Stafnbúi
10 Sverrir Bergmann Fallið lauf
10.01.20123 ➜ 16.01.2013