Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 56
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 40 A RIÐILL ÚRSLIT Brasilía - Túnis 27-22 (13-11) Þýskaland - Svartfjallaland 29-21 (13-11) Argentína - Frakkland 23-35 (6-19) STAÐAN Frakkland 4 4 0 0 112-81 8 Þýskaland 4 3 0 1 116-96 6 Brasilía 4 2 0 2 96-102 4 Túnis 4 2 0 2 101-105 4 Argentína 4 1 0 3 87-104 2 Svartfjallaland 4 0 0 0 4 92-116 0 B RIÐILL ÚRSLIT Makedónía - Rússland 29-29 (13-16) Síle - Katar 23-31 (9-16) Ísland - Danmörk 28-36 (13-16) Ísland - Mörk (skot): Kári Kristján Kristjánsson 7 (8), Snorri Steinn Guðjónsson 6 (8/1), Guðjón Valur Sigurðsson 5/1 (9/2), Ásgeir Örn Hallgrímsson 3 (8), Ólafur Gústafsson 2 (4), Aron Pálmarsson 2 (8), Arnór Þór Gunnarsson 1 (1), Ernir Hrafn Arnarson 1 (1), Þórir Ólafsson 1/1 (2/2), Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 8 (31/3, 26%), Aron Rafn Eðvarðsson 4 (17/1, 24%), Hraðaupphlaup: 3 ( Guðjón Valur Sigurðsson 2, Ásgeir Örn Hallgrímsson 1, ) Fiskuð víti: 5 (Kári Kristján Kristjánsson 2, Snorri Steinn Guðjónsson 1, Guðjón Valur Sigurðsson 1, Vignir Svavarsson 1,) Utan vallar: 8 mínútur. Danmörk - Mörk (skot): Anders Eggert 7/4 (7/4), Hans Lindberg 7 (9), Mikkel Hansen 7 (11), Henrik Möllgaard 5 (6), Rasmus Lauge 3 (4), Nikolaj Markussen 3 (7), Jesper Nöddesbo 2 (2), Kasper Söndergaard Sarup 2 (4), Varin skot: Niklas Landin 11/1 (35/3, 31%), Jannick Green 3/1 (7/1, 43%), Hraðaupphlaup: 9 (Anders Eggert 2, Hans Lindberg 2, Mikkel Hansen 1, Henrik Möllgaard 2, Nikolaj Markussen 1, Jesper Nöddesbo 1, ) Fiskuð víti: 4 ( Hans Lindberg 1, Rasmus Lauge 1, René Toft Hansen 2,) Utan vallar: 6 mínútur. STAÐAN Danmörk 4 4 0 0 151-106 8 Rússland 4 2 1 1 115-107 5 Makedónía 4 2 1 1 112-110 5 Ísland 4 2 0 2 114-107 4 Katar 4 1 0 3 110-127 2 Síle 4 0 0 4 97-142 0 Ísland verður að vinna Katar í lokaumferðinni og treysta á að Danir vinni Makedóníu. Danir hafa hins vegar að engu að keppa í leiknum við Makedóníumenn því þeir eru búnir að tryggja sér sigur í riðlinum. C RIÐILL Í DAG 14.45 Slóvenía - Hvíta-Rússland 17.00 Sádi-Arabía - Suður-Kórea 19.15 Pólland - Serbía Í beinni á Sport 3. STAÐAN Serbía 3 3 0 0 95-70 6 Slóvenía 3 3 0 0 91-73 6 Pólland 3 2 0 1 76-61 4 Hv. Rússland 3 1 0 2 76-78 2 S. Kórea 3 0 0 3 69-91 0 S. Arabía 3 0 0 3 56-90 0 D RIÐILL Í DAG 15.45 Ástralía - Alsír 18.00 Ungverjaland - Spánn Í beinni á Stöð 2 Sport og HD. 20.15 Króatía - Egyptaland Í beinni á Stöð 2 Sport og HD. STAÐAN Spánn 3 3 0 0 107-49 6 Króatía 3 3 0 0 87-45 6 Ungverjaland 3 2 0 1 87-56 4 Egyptaland 3 0 1 2 71-85 1 Alsír 3 0 1 2 58-82 1 Ástralía 3 0 0 3 37-130 0 Í DAG 17.50 Ungverjaland - Spánn 19.10 Pólland - Serbía (sport 3) 20.05 Króatía - Egyptaland 22.00 HM-samantekt Sigurður Elvar Þórólfsson seth@365.is Vilhelm Gunnarsson villi@365.is HM 2013 Á SPÁNI Danska landsliðið sýndi það í gær- kvöld að það er mætt til leiks á heimsmeistaramótið á Spáni til þess að fara alla leið. Átta marka sigur Dana gegn Íslandi, 36-28, var öruggur og þeir léku vörn Íslands grátt. Danir eru öruggir með efsta sæti B-riðilsins eftir sigurinn í gær en Íslendingar þurfa að landa sigri gegn Katar á morgun, föstudag, og stóla á að Danir vinni Makedóníu til þess að enda í þriðja sæti riðilsins. Danska liðið er firnasterkt og Danir unnu í Víkingalottóinu þegar þeir fengu leikauppsetn- inguna í riðlakeppninni í Sevilla. Gátu leyft sér að hvíla lykilmenn daginn fyrir leikina gegn Rúss- landi og Íslandi. Þökk sé Síle og Katar. Á heimsmeistaramótum er álagið gríðarlegt og það sást greinilega í gærkvöld að lykil- menn danska liðsins voru með „frískari fætur“ en þeir íslensku. Guðjón Valur Sigurðs son klikkaði úr opnum færum, sem er ekki líkt honum, og þeir Vignir Svavars son og Sverre Jakobsson voru ekki alveg eins þéttir fyrir og gegn Makedóníu. Það er reyndar til mikils ætlast að þeir geti ávallt leikið varnarleikinn með þeim hætti. Sóknarnýting Dana var 73% í fyrri hálfleik – sem segir allt um varnarleik Íslands. Ulrik Wilbek, þjálfari Dana, lagði gríðarlega áherslu á hraðar sóknir ef Íslendingar skoruðu – og oftar en ekki náðu þeir Sverre og Vignir ekki að skipta við sóknar- mennina eins og þeir eru vanir. Í þeirri stöðu var íslenska vörnin opin og Danir fundu ávallt leiðir til að skora. Hans Lindberg, sem á íslenska foreldra, klíndi boltanum hvað eftir annað í markvinkilinn úr hægra horninu. Hann var besti maður liðsins og lék varnarleikinn einnig vel þar sem hann tók Aron Pálmarsson nánast úr umferð. Wilbek tók þá ákvörðun að láta Henrik Möllgaard standa vaktina í vörninni en hann er jafnframt frábær skotmaður. Möllgaard reyndist íslenska liðinu erfiður og þá sérstaklega í síðari hálf- leik, þar sem hann skoraði fjög- ur af alls fimm mörkum sínum. Öll eftir hraða miðju eða hraða- upphlaup á meðan íslenska liðið var að skipta. Aron Pálmarsson setti tvö skot í þverslá og stöng í fyrri hálf- leik – en hann var duglegur að finna Kára Kristján Kristjáns- son á línunni eftir að hann fór í leikstjórnandahlutverkið. Ólafur Gústafs son svaraði kalli fyrir- liðans og var ekkert „súkkulaði“ þegar hann kom inn á í vinstri skyttuna. Dúndraði inn tveimur mörkum í fyrri hálfleik – engin púðurskot þar á ferð. Ernir Arnar- son kom einnig snemma inn á og leysti Ásgeir Örn Hallgrímsson af í hægri skyttunni. Ernir komst fljótlega á blað og gerði það sem óskað var eftir frá honum. Þegar 6 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik náði Arnór Þór Gunnarsson að minnka muninn í eitt mark, 11-12, en íslenska liðið náði ekki að fylgja því eftir. Hraðaupphlaup og brottrekstrar hjá Vigni Svavarssyni og Sverre gerðu Íslendingum erfitt fyrir. Danir nýttu sín færi og voru yfir í hálfleik, 16-13. Danir náðu strax fjögurra marka forskoti í upphafi síðari hálfleiks – 14-18 – og lögðu þar með grunninn að sigrinum. Danir sýndu stórkostleg tilþrif í sóknarleiknum – gegnumbrot, langskot og mörk úr hornum og línu. Anders Eggert trítlaði síðan af og til af varamannabekknum og skoraði úr vítaköstum. Maður- inn er með meistarapróf í þess- ari iðngrein. Ótrúlega öruggur. Íslendingar nýttu aðeins tvö af alls fimm vítum í leiknum. Varnarleikur íslenska liðsins var dapur í gær. Sóknarleikurinn var það sem lýsti upp myrkrið. Snorri Steinn Guðjónsson lék vel í síðari hálfleik og það er jákvætt, hann skoraði alls 5 mörk. Snorri þarf að brjóta ísinn hvað varð- ar vítin en hann tók eitt undir lok leiksins og það varði Niklas Landin. Snorri hefur ekki skorað úr víti í landsleik frá því á ólymp- íuleikunum síðasta sumar. Kári Kristján Kristjánsson var öflug- ur í sóknarleiknum og var marka- hæsti leikmaður liðsins með alls átta mörk úr níu tilraunum – sem er afar jákvætt fyrir leikinn gegn Katar. Vörnin brást gegn Dönum Firnasterkir Danir léku varnarmenn Íslands grátt í 36-28 sigri á HM á Spáni. Jákvæð merki í sóknarleik Íslendinga, sem þurfa að stóla á Dani í lokaumferðinni. Katar er lokaprófverkefni Íslands í riðlinum. ALLT OF STERKIR Aron Pálmarsson og félagar í íslenska landsliðinu náðu sér ekki á strik á móti sterku dönsku liði í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HANDBOLTI „Danirnir náðu að slíta okkur í sundur í varnar- leiknum. Náðum ekki að hreyfa vörnina og reyndum að breyta ýmsu en það gekk ekkert upp. Við notuðum mikla orku í leik- inn gegn Makedóníu þar sem við vorum komnir í þá stöðu að það var lykil leikurinn fyrir okkur eftir tapið gegn Rússum. Það kemur ekkert annað en sigur til greina gegn Katar,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari íslenska landsliðsins, eftir 36-28 tapið gegn Dönum í gær. „Sóknarleikurinn var frábær hjá Dönum og þeir skoruðu úr öllum færum. Við náðum ekki að leysa skiptingarnar úr sókn og vörn nógu vel. Danirnir fórnuðu ákveðnum leikmönnum í vörninni til þess að efla seinni bylgjuna í hraðaupphlaupunum – og það réðum við ekki við. Við töpuðum stórt og vorum teknir í kennslu- stund en ég sé samt jákvæða punkta. Sérstaklega í sókninni. Snorri Steinn Guðjónsson fann sig vel í seinni hálfleik, Kári Kristján Kristjánsson var öflug- ur og Ásgeir Örn Hallgrímsson náði að sýna það sem ég vissi að býr í honum. Það var aðeins farið að draga af Aroni Pálmarssyni og Guðjóni Val Sigurðssyni – enda ekkert skrýtið eftir það sem þeir lögðu í leikinn gegn Makedóníu,“ sagði Aron. Kári Kristján Kristjánsson nýtti færin sín vel á línunni í gær, en hann markahæstur í íslenska liðinu með 8 mörk úr 9 skotum. „Danir eru með gríðarlega mikla breidd og þeir eru skyn samir í öllum sínum aðgerðum. Við áttum ekki svör gegn þeim – því miður. Það er fúlt að tapa en við getum tekið eitthvað jákvætt með okkur í framhaldið. Hvað sjálfan mig varðar var sjálfstraustið meira en áður og það voru fleiri sem fundu sig í sókninni – og það er jákvætt fyrir liðið upp á fram- haldið,“ sagði Kári. -seth Danirnir náðu að slíta okkur í sundur Aron Kristjánsson segir að ekkert annað en sigur komi til greina í lokaleiknum á móti Katar á morgun. ARON KRISTJÁNSSON Ánægður með sóknina en vörnin klikkaði í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.