Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 12
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 12 Gengi hlutabréfavísitölunnar mun hækka um 14 prósent á árinu 2013, fjögur ný félög verða skráð á markað og töluverð hætta er á verðbólu á hlutabréfamarkaði. Þetta eru helstu niðurstöður í spá greiningardeildar Íslandsbanka sem kynnt var í síðustu viku. Strax í kjölfar kynningarinnar jukust viðskipti á hlutabréfamarkaði umtalsvert. Íslandsbanki hélt morgun verðar- fund með fjölmörgum fjárfestum fimmtudaginn 10. janúar síðast- liðinn. Þann fund sátu meðal ann- ars valdir einstaklingar ásamt full- trúum lífeyris- og verðbréfasjóða. Á honum kynnti bankinn afkomu- spá sína fyrir íslenskan hluta- bréfamarkað árið 2013. Spáin, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, er kirfilega merkt þannig að hún sé ekki ætluð almenningi. Í niðurstöðum Íslandsbanka kemur fram að greining bankans telur að hlutabréfavísitalan muni hækka um fjórtán prósent á árinu 2013. Það er aðeins minni hækk- un en á árinu 2012 þegar vísi talan hækkaði um 16,5 prósent. Einstök félög hækkuðu þó meira á því ári. Icelandair hækkaði til dæmis um 63 prósent og Hagar um tæp 40 prósent. Þetta er í andstöðu við þá þróun sem á sér stað í nágrannalöndum okkar þar sem vaxtarmöguleikar hafa víðast hvar dregist saman samhliða minnkandi hagvexti. Í spánni segir að bankinn telji að „spurn eftir innlendum hluta- bréfum verði talsverð á árinu. Hrein fjárfestingaþörf lífeyris- sjóðanna er áætluð um 128 ma.kr. á árinu 2013. Reikna má með því að stór hluti þess fjármagns leiti inn á hlutabréfamarkaðinn m.a. vegna þess að eign þeirra í inn- lendum hlutabréfum er enn tals- vert undir fjárfestingastefnu sjóð- anna. Því til viðbótar er mikið af innlánum sem munu eflaust leita í hlutabréf þegar kostirnir þar verða fleiri“. Kennitölusamanburður Íslands- banka bendir til þess að Ice- landair, Hagar og Eimskip séu þeir fjárfestingarkostir sem helst ætti að fjárfesta í auk þess sem kaup- tækifæri séu í Regin, sem sé þó langtímafjárfesting. Íslandsbanki telur enn fremur að fjögur félög verði skráð á mark- að á þessu ári. Þau eru Reitir, TM, N1 og Advania. Bankinn áætlar að samanlagt markaðsvirði eiginfjár þeirra verði á bilinu 39 til 44 millj- arðar króna. Til saman burðar má nefna að markaðsvirði Eimskips og Icelandair er hvort um sig tæp- lega 50 milljarðar króna. Því er stærð þeirra félaga sem búist er við að komi inn á markaðinn til- tölulega hófleg. Í niðurstöðum greiningar Íslandsbanka segir að fjármagns- höftin sem eru við lýði skekki verðmyndun á innlendum hluta- bréfamarkaði og öðrum eigna- mörkuðum. Þau beini fjárfestum sem eiga krónur að innlendum fjárfestingarkostum og þrýsti þar af leiðandi verði þeirra upp. Þá haldi þau vöxtum niðri sem hækkar eignaverð. Í spánni segir að hvort tveggja geti valdið verð- bólu á innlendum hlutabréfa- markaði. Kennitölusamanburður á íslenskum og erlendum saman- burðarfélögum þykir ekki benda til að bóla sé að myndast á íslenska hlutabréfamarkaðnum enn sem komið er en að „hættan á að slík verðbóla skapist er þó talsverð og vex hættan eftir því sem höftin eru hér lengur“. - þsj / mþl Hætta á bólumyndun á hlutabréfamarkaði Í spá Íslandsbanka um þróun hlutabréfamarkaðs, sem er ekki ætluð almenningi, kemur fram að bankinn telji mikla vaxtamöguleika vera á honum. Mælt er með kaupum í Icelandair, Eimskip og Högum. Hætta er talin á að höftin skapi bólu. SKRÁNINGAR Síðasta félagið sem skráð var á markað var Vodafone, en bréf þess voru tekin til viðskipta í desember 2012. Íslandsbanki spáir því að fjögur félög verði skráð á markað í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 14% er spáð hækkun á hlutabréfavísitölu Kauphallarinnar á árinu 2013. 9,9% er sú hækkun sem hefur orðið á úrvalsvísitölunni OMXI6 frá ára- mótum. Morgunverðarfundur Íslandsbanka með fagfjárfestum um horfur á íslenskum hlutabréfamarkaði fór fram á fimmtudag í síðustu viku, þann 10. janúar. Hvort það er tilviljun skal ósagt látið en í kjölfarið tóku við tveir allra æsilegustu viðskiptadagar á hlutabréfa markaði frá bankahruni. Á fimmtudeginum var velta með hlutabréf í Kauphöllinni 2,4 milljarðar króna og daginn eftir var veltan 2,6 milljarðar. Til samanburðar var meðalvelta á dag 356 milljónir á síðasta ári. Velta þessa tvo daga var því ríflega sjöföld á við meðaltalið í fyrra og hækkaði úrvalsvísitalan OMXI6 um 1,7% á þessum tveimur dögum. Síðan hefur hún raunar haldið áfram að hækka og er árshækkunin orðin 9,9% á fyrstu ellefu viðskipta- dögum ársins. Í afkomuspá þeirri sem kynnt var á fundinum var sér- staklega bent á Icelandair Group, Haga og Eimskip sem hagkvæma fjárfestingarmöguleika. Þá var sagt kaup- tækifæri í bréfum Regins þótt um langtímafjárfestingu væri að ræða. Öll félögin hækkuðu nokkuð í kjölfarið. Á fimmtudag og föstudag hækkaði verð bréfa í Iceland air Group um 5,9%, verð bréfa í Högum um 1,2%, verð bréfa í Eimskip um 1,6% og verð bréfa í Reginn um 6,0%. Síðan hefur Icelandair Group hækkað um 1,5% til viðbótar, Eimskip um 1,2%, Reginn um 2,3% til viðbótar og þá hefur hlutabréfaverð Haga haldist óbreytt. Gríðarlega mikil viðskipti í kjölfar fundarins Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is 63 prósent er hækkun bréfa í Icelandair í fyrra. 4 FÉLÖG eru talin verða skráð á markað á árinu 2013. Þau eru: 128 milljarðar er áætluð hrein fj árfestingaþörf líf- eyrissjóðanna á árinu 2013. NISSAN PATHFINDER SE Nýskr. 05/12, ekinn 24 þús. km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 7.690 þús. Rnr.2141447. Frábært úrval af nýlegum, lítið eknum bílum á frábæru verði! Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is SUZUKI GRAND VITARA LUX Nýskr. 06/10, ekinn 92 þús km. bensín, beinskiptur. Verð kr.3.790.000 TILBOÐ kr. 3.090 þús. LAND ROVER DISCOVERY 4S Nýskr. 06/11, ekinn 53 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Rnr.151662 HYUNDAI I30 CLASSIC Nýskr. 03/10, ekinn 61 þús km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 1.890 þús. Rnr.280354. SUZUKI SWIFT 4WD Nýskr. 05/11, ekinn 44 þús. km. bensín, beinskiptur. Verð kr.2.280.000 TILBOÐ kr. 1.890 þús. NISSAN X-TRAIL SE Nýskr. 06/11, ekinn 29 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Verð kr. 4.990 þús. Rnr.141350. HYUNDAI SONATA GLS Nýskr. 07/07, ekinn 67 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 1.990 þús. Rnr.190703. Glæsilegt eintak kr. 9.980 þús. Gerðu frábær kauphjá Bílalandi BL Gott úrval af 4x4 bílum Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.