Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 28
FÓLK|| FÓ K | TÍSKA4
Áhugi á Hönnunarmarsinum er greinilega að aukast. Íslensk hönnunarsena þykir fersk og
spennandi á alþjóðavettvangi og í ár
eigum við von á fleiri erlendum blaða-
mönnum á Hönnunarmars en nokkru
sinni áður,“ segir Sari Peltonen, kynn-
ingarfulltrúi hjá Hönnunarmiðstöð Ís-
lands. „Þeir koma einnig víðar að en
fyrr og spanna fjölbreyttara svið.“
Von er á fjölmiðlum frá Evrópu og
Bandaríkjunum og stærstu dagblöð-
unum í Skandinavíu svo sem Politiken
og Dagens Nyheter, að sögn Sari. Hún
nefnir einnig Der Spiegel, ABC og hönn-
unartímaritin FORM, Creative Review,
Wallpaper, Dezeen og Design Week svo
fáein séu nefnd. Þá gætu enn fleiri átt
eftir að bætast við. Reykjavík Fashion
Festival verður einnig haldið á sama
tíma og fjöldi blaðamanna tískutímarita
verður því einnig á landinu.
Einhverjir þessara fjölmiðla eru að
koma í annað og þriðja sinn. Margir
hafa fylgst með frá upphafi eins og
David Golling, sem var áður ritstjóri
FORM, en heldur nú úti podcast-þætt-
inum Summit. Hann mun gera þátt um
Hönnunarmars 2013. Þá eru þó nokkrir
að koma í fyrsta skipti. „Í ár koma fleiri
frá Bandaríkjunum og Þýskalandi en
áður og þá fáum við gesti frá Frakk-
landi, Spáni, Kanada og Eistlandi. Eins
kemur einn af þekktari hönnunarblogg-
urunum, Emma Fexeus, en hún heldur
úti blogginu Emmas Designblogg,“ segir
Sari og bætir við að ekki hafi reynst erf-
itt að fá fólk til að koma til Íslands.
„Ég þarf ekki að biðja tvisvar. En
þetta eru bestu blaðamennirnir á sínu
sviði og þar af leiðandi mjög uppteknir
og bókaðir um allan heim. Því voru
ekki allir á lausu sem vildu koma, en
það þýðir bara að ég er þá þegar komin
með góðan lista fyrir næsta ár,“ segir
Sari sposk og bætir við að það hafi
ómælda þýðingu fyrir hönnuði að fá
umfjöllun fagfjölmiðla á sviði hönnunar.
„Hönnunarmars er vettvangur fyrir
íslenska hönnuði til að sýna sín verk
hérlendis en ekki síður til að koma sér
á framfæri á erlendum vettvangi. Það
gerist að stórum hluta með umfjöllun
erlendra fjölmiðla. Slík umfjöllun bæði
stækkar tengslanetið og þá er ekki síður
mikilvægt að fá faglega umsögn og álit
utanaðkomandi aðila á verkum sínum,“
segir Sari.
Hönnunarmars fer fram dagana 14. til
17. mars. Nánar má fylgjast með á vef
Hönnunarmiðstöðvar, www.honnunar-
midstod.is en einnig á designmarch.is
og honnunarmars.is. Þá er Hönnunar-
mars á Facebook. ■ heida@365.is
UPPSKERUHÁTÍÐ ÍS-
LENSKRA HÖNNUÐA
Dagskrá Hönnunarmars
2013 er þegar orðin
þétt en hátíðin verður
nú haldin í fimmta
sinn, dagana 14. til 17
mars. Myndin er frá
Hönnunar mars 2012.
MYND/VALLI
ÁHUGINN STÖÐUGT
AÐ AUKAST Sari
Peltonen, kynningarfulltrúi
Hönnunar miðstöðvar Ís-
lands, segir fleiri erlenda
blaðamenn munu mæta
á Hönnunarmars í ár en
nokkru sinni fyrr.
MYND/VALLI
ÞEKKT NÖFN MÆTA
HÖNNUNARMARS 2013 Fjöldi erlendra blaðamanna sækir Hönnunarmars í
ár. Sari Peltonen segir áhuga á íslenskri hönnun að aukast um allan heim og
fagleg umfjöllun erlendis geti reynst stökkpallur fyrir hönnuði.
Verðlaunahátíðin
var haldin í Los
Angeles á sunnu-
daginn og flott-
ustu kjólarnir hafa
skreytt helstu
fjölmiðla heims-
ins. Kjólarnir fá
þó mismunandi
einkunn og nokkrir
þeirra lentu í „rusl-
flokki“ þetta árið.
Á myndunum má
sjá leikkonurnar
sem mættu til leiks
í ljótustu kjólunum
þetta árið. Meðal
þeirra voru frægar
leikkonur eins og
Jessica Chastain,
sem fékk verðlaun
á hátíðinni, og leik-
konan Halle Berry.
LJÓTUSTU KJÓLARNIR
MISMUNANDI SMEKKUR Þær eru margar tískulöggurnar sem taka út kjóla-
tískuna á stórhátíðum eins og Golden Globe.
JESSICA CHASTAIN ARIEL WINTER LUCY LIU HALLE BERRY
Vertu vinur okkar á FacebookGlæsilegur þýskur og danskur kvenfatnaður í stærðum 36-52.
Vandaðir ítalskir og þýskir leðurskór í stærðum 36-42.
Meiri verðlækkun!
af öllum fatnaði og skóm
Útvarpsþátturinn
Snorri með Orra
frá hádegi alla
virka daga