Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 30
KYNNING − AUGLÝSINGNýir bílar FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 20132 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is, s. 512-5411 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Hugmyndabílar eru skrautfjaðrir bíla-framleiðenda og því nýta þeir tæki-færið t i l að frumsýna bílana á stórum bílasýning- um sem vekja mikla athygli. Ein slík er alþjóðlega bílasýn- ingin í Detroit sem stend- ur nú yfir en hún verður opnuð almenningi hinn 19. janúar. Hér fyrir neðan gefur að líta nokkra hugmyndabíla sem sýndir hafa verið á bíla- sýningum síðustu mánuði um allan heim. Þeir eru eins mis jafnir og þeir eru margir en eiga það sameiginlegt að vera æði óvenjulegir. Ný framtíðarsýn Fáir hugmyndabílar komast óbreyttir á framleiðslulínu bílaframleiðenda enda eru flestir þeirra bæði yfirdrifnir í tæknilegu tilliti og ævintýralegir útlits. Þrátt fyrir það eru hugmyndabílar boðberar nýrra tíma þar sem fjöldaframleiddir bílar eru oft og tíðum byggðir á þeim. Þessi netti rafbíll frá Nissan, Nissan New Mobility, var kynntur á CEATEC-sýningunni í Japan í október. Á sýningunni var verið að kynna það nýjasta í raf- og tækniiðnaði. Hann er æði sportlegur Peugeot Onyx hugmyndabíllinn sem kynntur var á bílasýningu í París í september síðast- liðnum. „Fun-Vii“ er heitið á þessum sérstaka hugmyndabíl frá Toyota sem var til sýnis á Los Angeles bílasýningunni í nóvember. Ytra byrði bílsins þjónar tilgangi skjás sem birt getur myndir og skilaboð. Innréttingu bílsins er einnig hægt að breyta eftir skapi ökumannsins. Toyota kynnti Corolla Furia hugmyndabílinn á alþjóð- legu bílasýningunni í Detroit í vikunni. Mercedes-Benz Ener-G-Force hugmyndabíllinn var kynntur til leiks á Los Angeles bílasýningunni sem haldin var í nóvember síðastliðnum. Hugmyndabíllinn Citroën Survolt var sýndur á alþjóðlegu bílasýningunni í Sao Paulo í Brasilíu í október á síðasta ári. Mik lar brey tingar hafa orðið á staðalbúnaði bif-reiða undanfarin ár og þróunin er ör. Aukabúnaður sem áður var í boði hjá dýrari bílum er nokkrum árum síðar oft orðinn staðal búnaður í ódýrari bílum. Özur Lárusson, framkvæmda- stjóri Bí lgreinasambandsins, segir breyting arnar í raun hafa verið gríðar lega miklar og staðal- búnaðinn hafa margfaldast frá 1990. „Á þeim tíma voru rafmagns- rúður orðnar staðalbúnaður, sem þótti mikil bylting. Í dag er auð- vitað staðalbúnaður misríkulegur milli bíla tegunda en segja má að þegar kemur að staðalbúnaði leggi bílaframleiðendur mesta áherslu á öryggis búnað, eldsneytiseyðslu og mengunar þáttinn auk þess sem snýr að afþreyingu. Þannig skipt- ir miklu máli hjá þeim að öryggis- búnaðurinn fái fimm stjörnur, að bíllinn eyði sem minnstu af elds- neyti og að hann losi sem minnst af óæskilegum efnum út í um- hverfið. Þetta er keppikefli allra bíla framleiðenda í dag.“ Ha n n se g i r A BS -hem l a- læsinguna, sem kom fram árið 1984, hafa verið mikla byltingu sem leiddi af sér fækkun slysa. Nú séu öryggispúðar komnir nánast allan hringinn í flesta bíla. „Einnig má nefna hemlajöfnun sem vinnur að því að rétta bílinn af svo hann skriki ekki til. Síðan eru skynjar- ar komnir í marga bíla sem meðal annars láta bílinn bremsa sé hann að klessa á. Nálægðarskynjarar eru einnig orðnir algengir.“ Özur segir erfitt að spá fyrir um framtíðina. Hann sér þó fyrir sér staðalbúnað sem taki völdin af bíl- stjóranum þegar við á, til dæmis ef hann er að keyra á annan bíl sem hann sér ekki. „Einnig má nefna stöðugleikakerfið sem í dag er ekki komið í alla bíla. Það hefur sýnt sig að kerfið hefur fækkað banaslys- um í Evrópu og Evrópusamband- ið vill sjá það sem staðalbúnað í öllum bílum innan skamms. Ann- ars er vont að spá um framhald- ið. Þegar ABS kom á sjónarsviðið fannst manni það stórkostlegt en nú þykir það sjálfsagt. Nú er verið að prófa bíla sem þarfnast ekki bílstjóra þannig að hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Ör þróun í staðalbúnaði Mikil þróun hefur orðið á staðalbúnaði bifreiða síðustu ár. Framleiðendur leggja mesta áherslu á öryggisbúnað, mengunarþáttinn og eldsneytiseyðslu auk þess sem snýr að afþreyingu. „Segja má að þegar kemur að staðalbúnaði leggi bílaframleiðendur mesta áherslu á öryggisbúnað, eldsneytiseyðslu og mengunarþáttinn,“ segir Özur Lárusson, fram- kvæmdastjóri Bílgreinasambandsins. MYND/GVA Fyrst ber að nefna nýtt myndavélakerfi í JX35 frá japanska fram- leiðandanum Infiniti. Kerfið sýnir 360 gráðu mynd á skjá inni í bílnum af því sem er í kringum hann. Þá bremsar bíllinn sjálfkrafa ef hlutur kemur of nálægt þegar bakkað er. Chevrolet kynnir nýjung í loftpúðum sem eru á milli farþega- sætanna. Þeir koma í veg fyrir að fólk slasist þegar það kastast til og skellur á hvert öðru í árekstri. Í Ford Escape er hægt að opna skott bílsins án þess að nota hend- urnar. Viðkomandi verður reyndar að hafa lykil bílsins á sér en þarf aðeins að sparka með fæti undir afturstuðarann og skottið opnast upp á gátt. Til að loka skottinu er aftur sparkað undir stuðarann. Þetta kemur sér einkar vel þegar fangið er fullt af vörum. Svipaðan búnað er einnig að finna í SL-Glass hardtop roadster frá Mercedes- Benz. Í Cadillac XTS lúxusbílnum er ný tækni sem varar bílstjórann við ýmsum hættum í umhverfinu með titringi í bílstjórasætinu. Ef bíll- inn fer yfir á rangan vegarhelming titrar sætið. Þegar verið er að bakka og bíllinn er nálægt því að klessa á titrar sætið þeim megin sem hættan er. Í Nissan Altima er að finna tækni sem aðstoðar ökumenn við að skrifa textaskilaboð með tengingu snjallsíma við bílinn. Kerfið les upp skilaboð og hægt er að gefa raddskipanir um samþykki eða breytingar. Í stýrinu eru flýtitakkar sem hægt er að nota til að senda stöðluð SMS eins og „mér seinkar“ eða „er að keyra, get ekki talað“. Tæknin er hugsuð í öryggisskyni svo að ökumaður þurfi ekki að vera að handfjatla síma meðan hann keyrir og truflast því síður við aksturinn. Nýjasta tækni 2013 Á Ford Escape er nóg að sparka með öðrum fæti undir stuðarann og skottið opnast. BÍLALEIKIR Á NETINU Á netinu er hægt, í þar til gerðum tölvuleikjum, að búa til sinn eigin bíl, breyta honum og bæta við óendanlegum fjölda aukahluta. Flestir leikjanna byggja á því að sá sem spilar fær mót af bíl í hendurnar og ýmsa möguleika til breytinga. Til dæmis er hægt að breyta lit bílsins eða setja á hann mynstur; eldglæringar og fleira. Mismun- andi felgur, vindskeiðar, grill og húdd eru í boði. Litur á ljósum og gleri er einnig breytanlegur og býður upp á skemmtilega möguleika. Hægt er að velja milli ýmissa leikja og breyta mismunandi tegundum bíla. Síður þar sem meðal annars má finna slíka leiki á eru www.gamepilot.com og www.keygames.com. Með því að slá inn „car games“ á leitarvél Google má svo finna fleiri síður sem hýsa sambærilega leiki. Á þessum síðum er einnig að finna margs konar kappakstursleiki í ýmsu formi; spyrnuleiki, rallýleiki eða æsandi eltingaleiki þar sem löggubíll reynir að ná bófabíl ásamt fleiri áhugaverðum bíla- leikjum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.