Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 58
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 42 Þetta er ekki flókið. Það sem kemur inn fer út til leikmanna. Þetta var orðið glóru- laust. Jónas Þórhallsson FÓTBOLTI Grindvíkingar tóku þá ákvörðun á síðasta ári að ráða Milan Stefán Jankovic sem þjálf- ara karlaliðs félagsins. Félagið gat þó ekki gengið frá ráðningunni fyrr en Guðjón Þórðarson hafði formlega lokið störfum sem þjálf- ari. Það gerðist nú um áramótin. „Janko var með samning við félagið til 2015 og við breytt- um bara titlinum. Hann fær líka litla launahækkun með aukinni ábyrgð,“ segir Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnu deildar Grindavíkur. Jankovic er búinn að vera á Íslandi í tæpt 21 ár og þar af hefur hann verið í Grindavík í nítján. Það er einnig mögnuð staðreynd að hann er að taka við Grindavíkur- liðinu í þriðja sinn. „Hann hætti að spila 1999 og tók þá við liðinu hjá okkur og var með það til 2001. Hann fór í tvö ár til Keflavíkur en kom svo aftur sem aðstoðarþjálfari. Hann tekur svo við liðinu af Sigurði Jónssyni á sínum tíma. Þetta verður því í þriðja sinn sem hann verður aðal- þjálfari. Það er líklega einsdæmi, sem og að hann sé búinn að starfa fyrir okkur á einn eða annan hátt í tæp 19 ár.“ Allt í góðu milli okkar Guðjóns Það tók sinn tíma að ganga frá málum varðandi Guðjón Þórðarson en það mál endaði í höndum lög- fræðinga. Jónas segir að því máli sé nú lokið. „Af okkar hálfu er þessu lokið. Samningur hans rann út um ára- mót. Það voru engin illindi á milli okkar þó svo að lögfræðingar væru í spilinu. Við höfum lokið okkar skyldum gagnvart þeim samningi.“ Grindvíkingar verða í 1. deild- inni næsta sumar og þurfa að haga seglum eftir vindi. Þar á meðal þurfa þeir að endurskoða fjárhag- inn og það hafa þeir gert. Allir leikmenn liðsins hafa tekið á sig 25 prósenta launalækkun og svo fá leikmenn greitt í níu mánuði í stað tólf núna. „Þetta byrjaði núna 1. janúar og menn fá greitt út september. Þetta er jákvæð þróun finnst mér,“ segir Jónas, sem hefur einnig tekið upp nýtt launakerfi sem hann hefur lengi talað fyrir. „Þetta er það sem við köllum hlutaskiptakerfi sjómanna. Ef menn ná árangri þá ná þeir veru- legri bætingu á sínum kjörum. Byrjunarliðsmenn fá 100 prósent greitt, varamenn sem koma inn á af bekknum 50 prósent en þeir sem sitja á bekknum fá 25 prósent. Ég hef talað fyrir þessu lengi og ég hef fengið jákvæð viðbrögð víða. Meðal annars fengið símtal úr Vesturbænum þar sem menn voru að spyrja mig út í þetta.“ Jónas segir að fjármál knatt- spyrnudeilda almennt hafi verið í ólestri lengi og að hans mati er þetta eina raunhæfa kerfið í rekst- ur á knattspyrnudeild. „Þetta er ekki flókið. Það sem kemur inn fer út til leikmanna. Þetta var orðið glórulaust. Það er fjöldi félaga í miklum vanda þar sem þau geta ekki staðið við sínar skuldbindingar. Þegar menn skrifa undir samning hér þá geta menn treyst því að staðið sé við samn- inginn. Það hefur alltaf verið þannig í Grindavík og við erum stoltir af okkar góða orðspori.“ Grindvíkingar ætla sér stóra hluti á næstu árum. Þeir hafa slegið í klárinn í yngri flokka starfinu, eru búnir að styrkja meistaraflokk kvenna mikið og ætla sér ekki að dvelja lengi í 1. deild með meistaraflokk karla. „Við viljum byggja sterkt félag í grunninn. Markmiðið er að vera á meðal þeirra bestu í karla- og kvennaflokki en á okkar forsend- um. Stefnan er að koma karlaliðinu beint upp næsta sumar. Við erum ekki búnir að kaupa leikmenn en fimm leikmenn sem spiluðu lítið síðasta sumar vegna meiðsla eru komnir aftur. Það er því eins og við höfum fengið fimm nýja leik- menn og það eru allt sterkir strák- ar sem styrkja okkur mikið,“ segir Jónas. henry@frettabladid.is Leikmenn fá greitt eins og sjómenn Grindavík réð Milan Stefán Jankovic sem þjálfara meistarafl okks í gær. Hann tekur við starfi nu af Guðjóni Þórðarsyni. Grindvíkingar, sem féllu í 1. deild síðasta sumar, hafa tekið reksturinn rækilega í gegn. Leikmenn hafa tekið á sig 25 prósenta launalækkun og Grindavík hefur tekið upp hlutaskiptakerfi sjómanna. ALLT ER ÞEGAR ÞRENNT ER Milan Stefán Jankovic er orðinn aðalþjálfari karlaliðs Grindavíkur í þriðja skiptið á ferlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL HEFST Í KVÖLD KL. 20.35 Á POPPTÍVÍ GLÆNÝ ÞÁTTARÖÐ UM UNGLINGSÁR CARRIE BRADSHAW ÚR SEX AND THE CITY FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS POPPTÍVÍ FYLGIR FRÍTT MEÐ ÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *S am kv æ m t p re nt m ið la kö nn un C ap ac en t G al lu p nó v. -s ep t. 20 12 HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Það er hvergi betri staður fyrir fjölpóst en inni í Fréttablaðinu. 60% landsmanna skoða fjölpóst. Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! 75% íbúa höfuðborgarsvæðisins lesa Fréttablaðið daglega. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi orn@365.is Útvegum einnig hagstæð verð í prentun. Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! KÖRFUBOLTI Jón Ólafur Jónsson, leikmaður Snæfells, var í gær valinn besti leikmaðurinn í fyrri umferð Dominos-deildar karla en Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, var við sama tilefni kosinn besti þjálfarinn. Jón Ólafur var með 22,1 stig og 9,1 frákast að meðaltali í leik í leikjunum ellefu í fyrri hlutanum og Snæfellsliðið vann átta þeirra. Jón Ólafur var sjóðandi heitur fyrir utan þriggja stiga línuna en hann nýtti yfir 60 prósent þriggja stiga skota sinna í fyrri umferð- inni (31 af 51). Hittni Jóns Ólafs fyrir utan þriggja stiga línuna átti þátt í mörkum sigurleikjum Hólmara en hann var með 67 prósenta þriggja stiga nýtingu og þrjá þrista að meðaltali í leik í sigurleikjunum. Benedikt Guðmundsson stýrði Þórsliðinu til sigurs í 8 af 11 leikj- um í fyrri umferðinni. Justin Shouse í Stjörnunni, Samuel Zeglinski í Grindavík, Darrel Lewis í Keflavík og Marvin Valdimarsson úr Stjörnunni voru valdir í úrvalsliðið ásamt Jóni. Sigmar Egilsson í Skallagrími var kosinn dugnaðarforkurinn og Sigmundur Már Herbertsson var valinn besti dómarinn. óój Sjóðandi heitur fyrir utan 3ja stiga línuna Jón Ólafur Jónsson valinn bestur í fyrri umferðinni. JÓN ÓLAFUR Mátti ekki frá frítt skot í fyrri hlutanum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.