Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 58
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 42
Þetta er ekki
flókið. Það sem kemur
inn fer út til leikmanna.
Þetta var orðið glóru-
laust.
Jónas Þórhallsson
FÓTBOLTI Grindvíkingar tóku þá
ákvörðun á síðasta ári að ráða
Milan Stefán Jankovic sem þjálf-
ara karlaliðs félagsins. Félagið gat
þó ekki gengið frá ráðningunni
fyrr en Guðjón Þórðarson hafði
formlega lokið störfum sem þjálf-
ari. Það gerðist nú um áramótin.
„Janko var með samning við
félagið til 2015 og við breytt-
um bara titlinum. Hann fær líka
litla launahækkun með aukinni
ábyrgð,“ segir Jónas Þórhallsson,
formaður knattspyrnu deildar
Grindavíkur.
Jankovic er búinn að vera á
Íslandi í tæpt 21 ár og þar af hefur
hann verið í Grindavík í nítján.
Það er einnig mögnuð staðreynd að
hann er að taka við Grindavíkur-
liðinu í þriðja sinn.
„Hann hætti að spila 1999 og
tók þá við liðinu hjá okkur og var
með það til 2001. Hann fór í tvö ár
til Keflavíkur en kom svo aftur
sem aðstoðarþjálfari. Hann tekur
svo við liðinu af Sigurði Jónssyni
á sínum tíma. Þetta verður því í
þriðja sinn sem hann verður aðal-
þjálfari. Það er líklega einsdæmi,
sem og að hann sé búinn að starfa
fyrir okkur á einn eða annan hátt
í tæp 19 ár.“
Allt í góðu milli okkar Guðjóns
Það tók sinn tíma að ganga frá
málum varðandi Guðjón Þórðarson
en það mál endaði í höndum lög-
fræðinga. Jónas segir að því máli
sé nú lokið.
„Af okkar hálfu er þessu lokið.
Samningur hans rann út um ára-
mót. Það voru engin illindi á milli
okkar þó svo að lögfræðingar
væru í spilinu. Við höfum lokið
okkar skyldum gagnvart þeim
samningi.“
Grindvíkingar verða í 1. deild-
inni næsta sumar og þurfa að haga
seglum eftir vindi. Þar á meðal
þurfa þeir að endurskoða fjárhag-
inn og það hafa þeir gert. Allir
leikmenn liðsins hafa tekið á sig
25 prósenta launalækkun og svo
fá leikmenn greitt í níu mánuði í
stað tólf núna.
„Þetta byrjaði núna 1. janúar og
menn fá greitt út september. Þetta
er jákvæð þróun finnst mér,“ segir
Jónas, sem hefur einnig tekið upp
nýtt launakerfi sem hann hefur
lengi talað fyrir.
„Þetta er það sem við köllum
hlutaskiptakerfi sjómanna. Ef
menn ná árangri þá ná þeir veru-
legri bætingu á sínum kjörum.
Byrjunarliðsmenn fá 100 prósent
greitt, varamenn sem koma inn á
af bekknum 50 prósent en þeir sem
sitja á bekknum fá 25 prósent. Ég
hef talað fyrir þessu lengi og ég
hef fengið jákvæð viðbrögð víða.
Meðal annars fengið símtal úr
Vesturbænum þar sem menn voru
að spyrja mig út í þetta.“
Jónas segir að fjármál knatt-
spyrnudeilda almennt hafi verið
í ólestri lengi og að hans mati er
þetta eina raunhæfa kerfið í rekst-
ur á knattspyrnudeild.
„Þetta er ekki flókið. Það sem
kemur inn fer út til leikmanna.
Þetta var orðið glórulaust. Það er
fjöldi félaga í miklum vanda þar
sem þau geta ekki staðið við sínar
skuldbindingar. Þegar menn skrifa
undir samning hér þá geta menn
treyst því að staðið sé við samn-
inginn. Það hefur alltaf verið
þannig í Grindavík og við erum
stoltir af okkar góða orðspori.“
Grindvíkingar ætla sér stóra
hluti á næstu árum. Þeir hafa
slegið í klárinn í yngri flokka
starfinu, eru búnir að styrkja
meistaraflokk kvenna mikið og
ætla sér ekki að dvelja lengi í 1.
deild með meistaraflokk karla.
„Við viljum byggja sterkt félag
í grunninn. Markmiðið er að vera
á meðal þeirra bestu í karla- og
kvennaflokki en á okkar forsend-
um. Stefnan er að koma karlaliðinu
beint upp næsta sumar. Við erum
ekki búnir að kaupa leikmenn en
fimm leikmenn sem spiluðu lítið
síðasta sumar vegna meiðsla eru
komnir aftur. Það er því eins og
við höfum fengið fimm nýja leik-
menn og það eru allt sterkir strák-
ar sem styrkja okkur mikið,“ segir
Jónas. henry@frettabladid.is
Leikmenn fá greitt
eins og sjómenn
Grindavík réð Milan Stefán Jankovic sem þjálfara meistarafl okks í gær. Hann
tekur við starfi nu af Guðjóni Þórðarsyni. Grindvíkingar, sem féllu í 1. deild síðasta
sumar, hafa tekið reksturinn rækilega í gegn. Leikmenn hafa tekið á sig 25
prósenta launalækkun og Grindavík hefur tekið upp hlutaskiptakerfi sjómanna.
ALLT ER ÞEGAR ÞRENNT ER Milan Stefán Jankovic er orðinn aðalþjálfari karlaliðs
Grindavíkur í þriðja skiptið á ferlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HEFST Í KVÖLD KL. 20.35 Á POPPTÍVÍ
GLÆNÝ ÞÁTTARÖÐ UM UNGLINGSÁR
CARRIE BRADSHAW ÚR SEX AND THE CITY
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
POPPTÍVÍ FYLGIR FRÍTT MEÐ ÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*S
am
kv
æ
m
t p
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t G
al
lu
p
nó
v.
-s
ep
t.
20
12
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Það er hvergi betri staður fyrir fjölpóst en inni í Fréttablaðinu. 60% landsmanna
skoða fjölpóst. Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað!
75% íbúa höfuðborgarsvæðisins lesa Fréttablaðið daglega.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi orn@365.is
Útvegum einnig hagstæð verð í prentun.
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
KÖRFUBOLTI Jón Ólafur Jónsson,
leikmaður Snæfells, var í gær
valinn besti leikmaðurinn í fyrri
umferð Dominos-deildar karla en
Benedikt Guðmundsson, þjálfari
Þórs frá Þorlákshöfn, var við sama
tilefni kosinn besti þjálfarinn.
Jón Ólafur var með 22,1 stig
og 9,1 frákast að meðaltali í leik í
leikjunum ellefu í fyrri hlutanum
og Snæfellsliðið vann átta þeirra.
Jón Ólafur var sjóðandi heitur
fyrir utan þriggja stiga línuna en
hann nýtti yfir 60 prósent þriggja
stiga skota sinna í fyrri umferð-
inni (31 af 51).
Hittni Jóns Ólafs fyrir utan
þriggja stiga línuna átti þátt í
mörkum sigurleikjum Hólmara en
hann var með 67 prósenta þriggja
stiga nýtingu og þrjá þrista að
meðaltali í leik í sigurleikjunum.
Benedikt Guðmundsson stýrði
Þórsliðinu til sigurs í 8 af 11 leikj-
um í fyrri umferðinni.
Justin Shouse í Stjörnunni,
Samuel Zeglinski í Grindavík,
Darrel Lewis í Keflavík og Marvin
Valdimarsson úr Stjörnunni voru
valdir í úrvalsliðið ásamt Jóni.
Sigmar Egilsson í Skallagrími
var kosinn dugnaðarforkurinn og
Sigmundur Már Herbertsson var
valinn besti dómarinn. óój
Sjóðandi heitur fyrir
utan 3ja stiga línuna
Jón Ólafur Jónsson valinn bestur í fyrri umferðinni.
JÓN ÓLAFUR Mátti ekki frá frítt skot í
fyrri hlutanum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN