Fréttablaðið - 17.01.2013, Qupperneq 12
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 12
Gengi hlutabréfavísitölunnar
mun hækka um 14 prósent á árinu
2013, fjögur ný félög verða skráð
á markað og töluverð hætta er á
verðbólu á hlutabréfamarkaði.
Þetta eru helstu niðurstöður í spá
greiningardeildar Íslandsbanka
sem kynnt var í síðustu viku. Strax
í kjölfar kynningarinnar jukust
viðskipti á hlutabréfamarkaði
umtalsvert.
Íslandsbanki hélt morgun verðar-
fund með fjölmörgum fjárfestum
fimmtudaginn 10. janúar síðast-
liðinn. Þann fund sátu meðal ann-
ars valdir einstaklingar ásamt full-
trúum lífeyris- og verðbréfasjóða.
Á honum kynnti bankinn afkomu-
spá sína fyrir íslenskan hluta-
bréfamarkað árið 2013. Spáin, sem
Fréttablaðið hefur undir höndum,
er kirfilega merkt þannig að hún
sé ekki ætluð almenningi.
Í niðurstöðum Íslandsbanka
kemur fram að greining bankans
telur að hlutabréfavísitalan muni
hækka um fjórtán prósent á árinu
2013. Það er aðeins minni hækk-
un en á árinu 2012 þegar vísi talan
hækkaði um 16,5 prósent. Einstök
félög hækkuðu þó meira á því ári.
Icelandair hækkaði til dæmis um
63 prósent og Hagar um tæp 40
prósent.
Þetta er í andstöðu við þá þróun
sem á sér stað í nágrannalöndum
okkar þar sem vaxtarmöguleikar
hafa víðast hvar dregist saman
samhliða minnkandi hagvexti.
Í spánni segir að bankinn telji
að „spurn eftir innlendum hluta-
bréfum verði talsverð á árinu.
Hrein fjárfestingaþörf lífeyris-
sjóðanna er áætluð um 128 ma.kr.
á árinu 2013. Reikna má með því
að stór hluti þess fjármagns leiti
inn á hlutabréfamarkaðinn m.a.
vegna þess að eign þeirra í inn-
lendum hlutabréfum er enn tals-
vert undir fjárfestingastefnu sjóð-
anna. Því til viðbótar er mikið af
innlánum sem munu eflaust leita
í hlutabréf þegar kostirnir þar
verða fleiri“.
Kennitölusamanburður Íslands-
banka bendir til þess að Ice-
landair, Hagar og Eimskip séu þeir
fjárfestingarkostir sem helst ætti
að fjárfesta í auk þess sem kaup-
tækifæri séu í Regin, sem sé þó
langtímafjárfesting.
Íslandsbanki telur enn fremur
að fjögur félög verði skráð á mark-
að á þessu ári. Þau eru Reitir, TM,
N1 og Advania. Bankinn áætlar að
samanlagt markaðsvirði eiginfjár
þeirra verði á bilinu 39 til 44 millj-
arðar króna. Til saman burðar má
nefna að markaðsvirði Eimskips
og Icelandair er hvort um sig tæp-
lega 50 milljarðar króna. Því er
stærð þeirra félaga sem búist er
við að komi inn á markaðinn til-
tölulega hófleg.
Í niðurstöðum greiningar
Íslandsbanka segir að fjármagns-
höftin sem eru við lýði skekki
verðmyndun á innlendum hluta-
bréfamarkaði og öðrum eigna-
mörkuðum. Þau beini fjárfestum
sem eiga krónur að innlendum
fjárfestingarkostum og þrýsti
þar af leiðandi verði þeirra upp.
Þá haldi þau vöxtum niðri sem
hækkar eignaverð. Í spánni segir
að hvort tveggja geti valdið verð-
bólu á innlendum hlutabréfa-
markaði. Kennitölusamanburður
á íslenskum og erlendum saman-
burðarfélögum þykir ekki benda
til að bóla sé að myndast á íslenska
hlutabréfamarkaðnum enn sem
komið er en að „hættan á að slík
verðbóla skapist er þó talsverð og
vex hættan eftir því sem höftin
eru hér lengur“. - þsj / mþl
Hætta á bólumyndun
á hlutabréfamarkaði
Í spá Íslandsbanka um þróun hlutabréfamarkaðs, sem er ekki ætluð almenningi,
kemur fram að bankinn telji mikla vaxtamöguleika vera á honum. Mælt er með
kaupum í Icelandair, Eimskip og Högum. Hætta er talin á að höftin skapi bólu.
SKRÁNINGAR Síðasta félagið sem skráð var á markað var Vodafone, en bréf þess
voru tekin til viðskipta í desember 2012. Íslandsbanki spáir því að fjögur félög verði
skráð á markað í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
14%
er spáð hækkun á
hlutabréfavísitölu
Kauphallarinnar á
árinu 2013.
9,9%
er sú hækkun sem
hefur orðið á
úrvalsvísitölunni
OMXI6 frá ára-
mótum.
Morgunverðarfundur Íslandsbanka með fagfjárfestum
um horfur á íslenskum hlutabréfamarkaði fór fram á
fimmtudag í síðustu viku, þann 10. janúar. Hvort það
er tilviljun skal ósagt látið en í kjölfarið tóku við tveir
allra æsilegustu viðskiptadagar á hlutabréfa markaði frá
bankahruni. Á fimmtudeginum var velta með hlutabréf
í Kauphöllinni 2,4 milljarðar króna og daginn eftir var
veltan 2,6 milljarðar. Til samanburðar var meðalvelta á
dag 356 milljónir á síðasta ári. Velta þessa tvo daga var
því ríflega sjöföld á við meðaltalið í fyrra og hækkaði
úrvalsvísitalan OMXI6 um 1,7% á þessum tveimur
dögum. Síðan hefur hún raunar haldið áfram að hækka
og er árshækkunin orðin 9,9% á fyrstu ellefu viðskipta-
dögum ársins.
Í afkomuspá þeirri sem kynnt var á fundinum var sér-
staklega bent á Icelandair Group, Haga og Eimskip sem
hagkvæma fjárfestingarmöguleika. Þá var sagt kaup-
tækifæri í bréfum Regins þótt um langtímafjárfestingu
væri að ræða. Öll félögin hækkuðu nokkuð í kjölfarið.
Á fimmtudag og föstudag hækkaði verð bréfa í
Iceland air Group um 5,9%, verð bréfa í Högum um
1,2%, verð bréfa í Eimskip um 1,6% og verð bréfa í
Reginn um 6,0%. Síðan hefur Icelandair Group hækkað
um 1,5% til viðbótar, Eimskip um 1,2%, Reginn um
2,3% til viðbótar og þá hefur hlutabréfaverð Haga
haldist óbreytt.
Gríðarlega mikil viðskipti í kjölfar fundarins
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
Magnús Þorlákur
Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is
63 prósent er hækkun bréfa í Icelandair í fyrra.
4 FÉLÖG
eru talin verða skráð
á markað á árinu
2013. Þau eru:
128 milljarðar er áætluð hrein fj árfestingaþörf líf-
eyrissjóðanna á árinu 2013.
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 05/12, ekinn 24 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 7.690 þús.
Rnr.2141447.
Frábært úrval af nýlegum, lítið
eknum bílum á frábæru verði!
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
SUZUKI GRAND VITARA LUX
Nýskr. 06/10, ekinn 92 þús km.
bensín, beinskiptur.
Verð kr.3.790.000
TILBOÐ kr. 3.090 þús.
LAND ROVER DISCOVERY 4S
Nýskr. 06/11, ekinn 53 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr.151662
HYUNDAI I30 CLASSIC
Nýskr. 03/10, ekinn 61 þús km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 1.890 þús.
Rnr.280354.
SUZUKI SWIFT 4WD
Nýskr. 05/11, ekinn 44 þús. km.
bensín, beinskiptur.
Verð kr.2.280.000
TILBOÐ kr. 1.890 þús.
NISSAN X-TRAIL SE
Nýskr. 06/11, ekinn 29 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð kr. 4.990 þús.
Rnr.141350.
HYUNDAI SONATA GLS
Nýskr. 07/07, ekinn 67 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 1.990 þús.
Rnr.190703.
Glæsilegt eintak kr.
9.980 þús.
Gerðu frábær kauphjá Bílalandi BL
Gott úrval
af 4x4 bílum
Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði!