Fréttablaðið - 17.01.2013, Qupperneq 4
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
UMHVERFISMÁL Jarðhitafyrirtæk-
in þrjú, Orkuveita Reykjavíkur,
Landsvirkjun og HS Orka, hafa
óskað eftir því við umhverfis-
ráðherra að gildistöku hertra
ákvæða reglugerðar um styrk
brennisteinsvetnis í andrúms-
lofti verði frestað til ársins 2020.
Reglugerðin var sett árið 2010,
meðal annars til að draga úr
skaðlegum áhrifum á heilbrigði
manna og umhverfið í heild og á
að taka gildi um mitt ár 2014.
Hólmfríður Sigurðardóttir,
umhverfisstjóri Orkuveitunn-
ar, segir að aðalástæða þess að
óskað er eftir frestuninni sé sú að
þegar hert ákvæði reglugerðar-
innar taki gildi þá verði fyrir-
tækið ekki tilbúið með mengunar-
varnarbúnað á iðnaðarskala.
Orkuveitan hefur um árabil
unnið að því að þróa nýja tækni
til að draga úr styrk brennisteins-
vetnis í útblæstri Hellisheiðar-
virkjunar. Þá er brennisteins-
vetnið skilið frá jarðgufunni og
því blandað saman við affallsvatn
sem leitt er um niðurrennslis-
holur aftur ofan í jarðhitakerfið.
Ef þetta tekst er um hagkvæma
og skilvirka lausn að ræða; reynd-
ar umhverfisvænsta kostinn
og þann hagkvæmasta, að sögn
Hólmfríðar.
Aðrar lausnir eru mjög dýrar,
en í ákvæðum starfsleyfa fyrir
atvinnurekstur sem kann að
valda mengun af völdum brenni-
steinsvetnis skal beita bestu
fáanlegu tækni til að hamla loft-
mengun. Stofnkostnaður við að
setja upp bestu fáanlegu tækni
fyrir 90 megavatta virkjun, sem
er skylt samkvæmt ákvæðum
starfs leyfis fyrirtækisins, gæti
orðið um tveir milljarðar króna
og rekstrar kostnaður um einn
milljarður króna. Hellisheiðar-
virkjun er rúmlega 300 megavött.
Umhverfisstofnun hefur tíma
til 15. febrúar til að fjalla um ósk
fyrirtækjanna og skila umsögn til
ráðuneytis umhverfismála, sem
fer með forræði í málinu. En hvað
ef ósk fyrirtækisins um frestun
gildistökunnar verður hafnað? Í
viðtali við Fréttablaðið í maí 2011
fengust þau svör frá fyrir tækinu
að ef tilraunaverkefnið skilaði
ekki tilætluðum árangri yrði ráð-
ist í fjárfestingar á hreinsibúnaði,
enda væri ekki um neitt annað
að ræða en mæta kröfum reglu-
gerðarinnar.
Staða OR skipti þar engu um
því fyrirtækið myndi mæta þeim
kröfum sem fyrirtækinu væru
settar varðandi mengun. Þessi
afstaða fyrirtækisins er óbreytt,
að sögn Hólmfríðar, enda ber
fyrirtækinu að hlíta lögum og
reglum. svavar@frettabladid.is
Orkufyrirtækin þrjú hafa
óskað eftir því að
gildistöku mengunar-
ákvæðisins verði frestað
um sex ár, til 2020.
Vilja að mengunarákvæði
standi óbreytt næstu árin
Þrjú orkufyrirtæki hafa óskað eftir því að gildistöku mengunarákvæðis vegna brennisteinsvetnis verði frestað
um sex ár. Verði óskinni hafnað kostar það milljarða fyrir fyrirtækin að kaupa tilskildan hreinsibúnað.
Í FJARSKA Hreinsibúnaður fyrir jarðhitavirkjanir krefst milljarða fjárfestingar, verði
ósk um frestun hafnað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Reglugerð um leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti var sett
sumarið 2010 þegar mengun frá Hellisheiðarvirkjun komst í hámæli. Rök
Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra voru fyrrnefnd óvissa um
heilsufarsáhrif og var það hennar mat að almenningur skyldi njóta vafans.
Einnig eiga mörkin að koma í veg fyrir lyktarmengun og var talið nauðsyn-
legt að setja heilsuverndarmörkin við fimmtíu míkrógrömm í rúmmetra að
meðaltali á 24 klukkustundum. Mörk Alþjóðlegu heilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) eru 150 míkrógrömm og eru sett með tilliti til mögulegra bráða-
áhrifa á augu en ekki til langtímaáhrifa á heilsu fólks sem býr við þessa
mengun að jafnaði.
Í reglugerð umhverfisráðherra er fyrirtækjum gefið aðlögunartímabil
þannig að til að byrja með verður leyfilegt að fara fimm sinnum á ári yfir
fimmtíu míkrógramma mörkin en frá og með júlí 2014 verður það óheimilt.
Óvissa ríkir um heilsufarsáhrif
ÚT AF SPORINU Íbúa sakaði ekki þegar
stolin lest fór út af sporinu og lenti á
húsi þeirra í Saltsjöbaden í Stokkhólmi.
NORDICPHOTOS/AFP
SVÍÞJÓÐ Ekki var hægt að yfir-
heyra í gær hreingerninga-
konuna sem ók lest í fyrrinótt í
Saltsjöbaden, einu af út hverfum
Stokkhólms. Lestin fór út af
sporinu og lenti á íbúðarhúsi en
íbúana sakaði ekki.
Í ljós kom að lestinni hafði
verið ekið um 1,5 kílómetra á 80
kílómetra hraða á klukkustund
áður en slysið varð.
Sjálf slasaðist konan alvarlega og
var flutt með þyrlu á sjúkrahús.
Íbúar í næstu húsum vöknuðu
við mikinn hávaða og kváðust í
viðtali við sænska fjölmiðla ekki
hafa trúað sínum eigin augum
þegar þeir litu út um gluggann.
Konan starfaði við að ræsta
lestarvagna. - ibs
Stal lest og ók á hús:
Konan illa slös-
uð eftir slysið
HAGSMUNASAMTÖK
FÍT verður deild í FÍH
Félag íslenskra tónlistarmanna (FÍT),
sem stofnað var árið 1940 og gætir
hagsmuna tónlistarmanna í sígildri
tónlist, hefur gengið í Félag íslenskra
hljómlistarmanna (FÍH). Fram kemur
í tilkynningu að FÍT starfi áfram sem
deild innan FÍH.
20142020
FJÖLMIÐLAR Fréttablaðið er áfram
langmest lesna blað landsins sam-
kvæmt prentmiðlakönnun Capa-
cent. 57,3 prósent landsmanna á
aldrinum 12 til 80 ára lesa blaðið
og 71,4 prósent í sama aldurshópi
á höfuðborgarsvæðinu.
Mælingarnar eiga við um síðasta
ársfjórðung 2012. Fréttatíminn er
næstmest lesna blaðið með 41,3
prósenta lestur. Þriðja mest lesna
blað landsins er Morgun blaðið, en
32,6 prósent landsmanna á aldrin-
um 12 til 80 ára lesa það. Þess má
geta að lestur Bændablaðsins var
mældur í fyrsta sinn í desember og
reyndist þá 31 prósent. Þá les 19,1
prósent Monitor, 10,4 prósent DV
og 9,4 prósent Viðskiptablaðið.
Lestur allra blaða nema Frétta-
tímans og Morgunblaðsins dregst
saman milli ársfjórðunga, en hjá
þessum miðlum jókst hann um
tvö prósent. Mest dróst lestur
DV og Viðskiptablaðsins saman,
eða um 16 prósent. Samdráttur-
inn er þó minni sé aðeins litið til
höfuðborgar svæðisins.
Lestur prentmiðla dróst lítillega saman á síðasta fjórðungi ársins 2012:
Fréttablaðið áfram með yfirburði
233,7947
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,58 129,2
206,28 207,28
170,99 171,95
22,909 23,043
23,05 23,186
19,752 19,868
1,4587 1,4673
197,66 198,84
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
16.1.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
7. SKREF
GERÐU EITTHVAÐ Í MÁLINU
Kynntu þér nánar bæklinginn 7 skref til varnar börnum okkar
á vefnum www.blattafram.is
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Fremur stífur vindur.
ROK OG RIGNING Það kemur lægð upp að landi í dag með hvassri suðaustanátt og
úrkomu um allt sunnan og vestanvert landið. Áfram hvasst á morgun og má gera ráð
fyrir 20 m/s syðra og á miðhálendinu.
1°
5
m/s
2°
0
m/s
3°
7
m/s
7°
15
m/s
Á morgun
10-20 m/s.
Gildistími korta er um hádegi.
3°
1°
4°
1°
1°
Alicante
Basel
Berlín
18°
3°
1°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
-1°
0°
-4°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
-3°
-3°
20°
London
Mallorca
New York
0°
18°
5°
Orlando
Ósló
París
24°
-9°
-3°
San Francisco
Stokkhólmur
14°
-2°
5°
5
m/s
6°
2
m/s
1°
2
m/s
2°
2
m/s
0°
3
m/s
1°
4
m/s
0°
5
m/s
6°
5°
6°
4°
4°
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
D
V
Fr
ét
ta
tí
m
in
n
V
ið
sk
ip
ta
bl
að
ið
M
on
it
or
57,3 32,6 10,4 41,3 9,4 19,1
%HEIMILD: CAPACENT
➜ Lestur í lok árs
VIÐSKIPTI Sölvi Óskarsson hefur
selt tóbaksbúðina Björk, en hann
hefur rekið verslunina í 29 ár.
Þetta kemur fram í Viðskipta-
blaðinu sem kemur út í dag. Kaup-
andinn er Johan Thulin Johansen
en kaupverðið er ekki gefið upp.
Nokkur styr hefur staðið um
sölu tóbaks hér á landi og þurfi
úrskurð Hæstaréttar til að Sölvi
mætti hafa vörur sínar sýnilegar í
versluninni. Hann segir í samtali
við Viðskiptablaðið að hann ætli að
snúa sér að rabarbararækt á jörð
sinni í Borgarfirði en verða þó með
annan fótinn í Björk. - kóp
Hættir eftir 29 ár:
Sölvi seldi Björk