Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 8
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 11 9 * M ið a ð v ið b la n d a ð a n a ks tu r n d a ð a n a ks tu r BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílasala Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 SHIFT_ SPARNEYTNIR NÝIR NÝIR SPARNEYTNIR BÍLAR Í E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 11 9 * M ið a ð v ið b la n SUBARU XV – 4x4 Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr. NISSAN QASHQAI – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. Eyðsla: 4,2 l/100 km* Eyðsla: 4,6 l/100 km* Eyðsla: 6,6 l/100 km* RENAULT MEGANE II SPORT TOURER 1.5 dísil, sjálfskiptur. Verð 3.890 þús. kr. DACIA DUSTER – 4x4 Dísil, beinskiptur. Verð 4.090 þús. kr. Eyðsla: 5,1 l/100 km* SKYNSAMLEG KAUP Hrikalega gott ver ð FER 1.428 KM Á EINUM TANKI M.v. blandaðan ak stur VINSÆLASTI SPORTJEPPINN Samkv. Umferðars tofu 2012 SPARNEYTINN SUBARU Ný vél, aukinn ben sínsparnaður SVEITARSTJÓRNIR „Ég hef vissar áhyggjur af verðmatinu sem lagt er til grundvallar,“ sagði Helga Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks, á bæjarstjórnar- fundi í Hafnarfirði í gær. Þar var ræddur samningur um kaup bæjar ins á 20 prósenta hlut Hauka í íþróttamannvirkjum á Ásvöllum. Samkvæmt samningnum, sem samþykktur var einróma í bæjar- ráði á 28. desember, eignast bær- inn Haukahlutinn smám saman á 25 árum og greiðir fyrir hann 271 milljón króna á núvirði. Geir Jónsson, fulltrúi minni- hluta Sjálfstæðisflokks, sem sat bæjarráðsfundinn 28. desem- ber sem varamaður, sagði á bæjar stjórnarfundinum í gær að ákvörðunin þá hefði verið tekin í tímapressu en hefði verið skásti kosturinn. Orðið hefði að taka trúan leg orð þeirra sem veittu bæjarráðinu upplýsingar. Enginn hefði viljað að Landsbankinn, sem er lánardrottinn Hauka, eignaðist hlut í Ásvöllum. „Það vorum við öll sammála um að væri mjög slæm- ur kostur í stöðunni,“ sagði Geir, sem eins og fleiri kvaðst hafa efa- semdir um verðmat mannvirkj- anna og bíða því nánari úttektar sem verið er að vinna. Gunnar Axel Axelsson, for- maður bæjarráðs úr Samfylk- ingu, undirstrikaði að ekki væri verið að færa skuldir Hauka yfir á bæjarsjóð því bærinn myndi eignast húsið fyrir sitt framlag. „Ég held að ég geti fullyrt að ekk- ert okkar hafi gert það með sér- stakri ánægju,“ sagði Gunnar þó um samþykkt samningsins. Hann bætti við að samkomulag Hauka um afskriftir á skuldum við Lands- bankann hefði „hangið á spýtunni“ því bankinn hefði gert aðkomu bæjarins að skilyrði fyrir afskrift- unum. Guðrún Ágústa Guðmunds dóttir, bæjarstjóri úr Vinstri grænum, sagði verðmatið á Ásvöllum byggja á kostnaðarverði og afskriftum. Eins og fleiri undirstrikaði Guð- rún að samningurinn væri upp- segjanlegur á hverju ári og því ekki endanlegur. Rósa Guðbjartsdóttir úr Sjálf- stæðisflokki sagði við Fréttablaðið að enginn hefði verið „sérstaklega ánægður“ með að þessi staða hefði komið upp. „Eftir ýtarlega umræðu í okkar hópi var niðurstaðan sú að skyn- samlegra væri að bærinn eignaðist þennan hlut með þessum hætti, en að þurfa að leigja fyrir sambærilega upphæð á hverjum mánuði,“ sagði Rósa. „Hefði þessi vandi ekki verið leystur þá hefði íþróttastarfsemi á þessu fjölmenna svæði verið sett í uppnám og þá sérstaklega íþrótta- kennsla.“ gar@frettabladid.is Bæjarfulltrúar efast um verðmat Ásvalla Kaup Hafnarfjarðar á hlut Hauka í Ásvöllum voru samþykkt í tímapressu, segir bæjar- fulltrúi. Hann hafi enn efasemdir um verðmatið en að orðið hafi að taka þá trúanlega sem veittu upplýsingar. Áhersla lögð á að samningurinn sé uppsegjanlegur. BÆJARSTJÓRN HAFNARFJARÐAR Farið var yfir umdeildan samning um kaup bæjarins á hlut Hauka í Ásvöllum á bæjarstjórnarfundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMFÉLAGSMÁL Mikill munur er á andlegri líðan barna og unglinga eftir því hvort þau hafa verið beitt kynferðislegu ofbeldi eða ekki. Um 70 prósent stúlkna sem orðið hafa fyrir slíku ofbeldi eru oft eða nær alltaf einmana. Þá eru dreng- ir sem hafa verið beittir ofbeldi þrisvar til fjórum sinnum líklegri til að finnast framtíð sín vonlaus en þeir sem ekki hafa verið beittir kynferðisofbeldi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu UNICEF á Íslandi um ofbeldi gegn börnum. UNICEF óskaði eftir niðurstöð- um úr eldri rannsóknum meðal 9. og 10. bekkja þar sem svör við spurningum um kynferðislegt ofbeldi eru borin saman við and- lega líðan og ýmsa áhættuþætti. Forsvarsmenn UNICEF á Íslandi segja afar mikilvægt að rannsaka þessi mál í þaula og að slíkar rann- sóknir séu á hendi eins aðila. - sv Nauðsynlegt að rannsaka afleiðingar ofbeldis gegn börnum mun betur: Vonleysi einkennir fórnarlömb Framtíðin vonlaus eftir ofbeldið Ég held að ég geti fullyrt að ekkert okkar hafi gert það með sérstakri ánægju. Gunnar Axel Axelsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. 70% stúlkna sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofb eldi af hálfu fullorðins eru oft eða nær alltaf einmana. 50% stúlkna sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofb eldi fi nnst framtíðin vera vonlaus oft eða nær alltaf. 3 sinnum líklegra er að stúlkum fi nnist framtíðin vonlaus ef þær hafa orðið fyrir kynferðislegu ofb eldi. 70% drengja sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofb eldi eru frekar eða mjög sammála þeirri fullyrðingu að stundum eigi ofb eldi rétt á sér. 5 sinnum líklegra er að drengjum sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofb eldi líði oft eða nær alltaf illa í skólanum en öðrum drengjum DÓMSMÁL Héraðsdómur Vestur- lands hefur dæmt 27 ára karlmann af Akranesi í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum árið 2011. Honum er gert að greiða þeim 800 þúsund og eina milljón króna í miskabætur. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í tvígang brotið gegn annarri stúlkunni, sem þá var fjórtán ára gömul, með því að káfa á henni, kyssa hana og láta hana fróa sér. Hann hafði kynnst henni við störf sín í skólanum sem stúlkan gekk í. Hinni stúlkunni, sem þá var þrett- án ára, kynntist hann fyrst þegar hann lék trúð í ungmennastarfi og tók reglulega að sér að mála and- lit krakka á skemmtunum. Eftir að kynni tókust með honum og stúlk- unni braut hann gegn henni átta sinnum, strauk henni innan klæða, kyssti hana og áreitti kynferðislega. Maðurinn var sakfelldur fyrir allt sem honum var gefið að sök þrátt fyrir að neita að hafa gert nokkuð af sér. Framburður hans var metinn ótrúverðugur. - sh Kynntist unglingsstúlkum í skólanum og ungmennastarfi og braut á þeim: Braut gegn tveimur stúlkum Þetta er í annað sinn sem Héraðsdómur Vesturlands dæmir í málinu. Hæstiréttur ógilti fyrri dóminn þar sem láðst hafði að þýða nauðsynleg málsskjöl fyrir sakborninginn, sem er frá Palestínu, yfir á arabísku. Í fyrra skiptið fékk hann einnig tveggja ára dóm. Hæstiréttur ógilti fyrri dóminn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.