Fréttablaðið - 17.01.2013, Side 18
17. janúar 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og
í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Borgundarhólmsklukkur eru töfrandi
fyrirbæri. Stórar, virðulegar og fagur-
skreyttar tifa þær hikstalaust árum og
áratugum saman og minna mannfólkið
á framvindu tímans með þungum, takt-
föstum slætti á heila og hálfa tímanum.
Það er eitthvað heillandi, nánast dáleið-
andi, við að fylgjast með kólfinum í
slíkri klukku sveiflast hægt frá hægri til
vinstri, frá vinstri til hægri. Stoppi hann
í miðjunni þarf svo að trekkja klukkuna
upp eða koma henni í viðgerð.
Pendúll stjórnmálanna?
Myndlíkingar geta verið gagnlegar til
að skýra og draga saman flókinn veru-
leika. Stundum getur veruleikinn hins
vegar orðið nokkurs konar fórnarlamb
myndlíkingarinnar og farið að laga sig
að henni, orðið vanahugsun. Hægri og
vinstri í stjórnmálum er eitt skýrasta
dæmið um þetta: flokkunarkerfi sem búið
er til hægðarauka fyrir margt löngu en
fer að stýra innihaldi þess sem flokkað
er. Pendúll stjórnmálanna sveiflast sam-
kvæmt þessu kerfi til hægri eða vinstri
eins og óhagganlegt náttúrulögmál. Slík
tvíhyggja er ófrjó og varla lengur neinum
til gagns nema tímaskökkum stjórnmála-
mönnum, stjórnmálafræðingum og blaða-
mönnum sem eiga erfitt með að fóta sig
í breyttum heimi, minnir einna helst á
kaldastríðshugsunarháttinn sem nú er
sem betur fer kominn á ruslahauga mann-
kynssögunnar. Eða hvað?
Standklukkur í mannsmynd
Gömlu, stóru, þungu, virðulegu Borg-
undarhólmsklukkurnar með kólfi sem
sveiflast taktfast til hægri og vinstri
eru sannarlega töfrandi, en slíkar stand-
klukkur í mannsmynd, ég tala nú ekki
um í mynd stjórnmálamanns, eru pínleg
tímaskekkja. Þó eru furðu margir slíkir á
vappi í samfélaginu og sumir þeirra sitja
á Alþingi. En það er löngu tímabært að
breyta þessu, stilla þeim upp í stássstof-
unni með þökkum fyrir vel unnin störf
og uppfæra þjóðþingið okkar. Við lifum
nefnilega á margpóla fjölmenningartím-
um þar sem mun skilvirkara og frjórra er
að hugsa í raunverulegum lausnum en í
tvípóla, úreltum hugmyndakerfum hægri-
og vinstrimanna.
Uppfærum klukkurnar
STJÓRNMÁL
Friðrik
Rafnsson
þýðandi, í
fj órða sæti á
framboðslista
Bjartrar framtíðar í
Reykjavík norður
➜ Hægri og vinstri í stjórnmálum
er eitt skýrasta dæmið um þetta:
fl okkunarkerfi sem búið er til
hægðarauka fyrir margt löngu
en fer að stýra innihaldi þess sem
fl okkað er.
ORKA SEM ENDIST
Weetabix er frábær leið til að
byrja daginn. Veldu næringar-
ríkan morgunverð sem heldur
þér gangandi fram að hádegi.
Inniheldur mikilvæg
vítamín, steinefni og járn
sem eru nauðsynleg fyrir
vöxt og viðhald heilbrigðs
líkama.
Vítamín & steinefni
M
ál kynferðisbrotamannsins Karls Vignis Þor-
steinssonar hefur komið við þjóðina. Fólk er
slegið óhugnaði yfir því að maður skuli í skjóli
meðvirkni og þagnar hafa komist upp með að
níðast á börnum í marga áratugi.
Umfjöllun fjölmiðla um mál Karls Vignis hefur verið sett í
víðara samhengi, meðal annars í því skyni að stuðla að auk-
inni meðvitund almennings um kynferðisbrot gegn börnum,
um mikilvægi þess að hlusta á börn sem segja frá ofbeldi
og fræða þau án þess að hræða þau. Þannig hefur fjölmiðla-
umfjöllun um þetta tiltekna mál orðið til þess að auka þekk-
ingu og meðvitund um þessi alvarlegu brot.
Umfjöllunin hefur einnig
orðið til þess að fólk sem
burðast hefur eitt með mis-
notkun frá barnæsku hefur
öðlast kjark til að rísa upp
og segja frá. Þannig er ekki
aðeins óvenjumikið um að vera
hjá Stígamótum heldur hefur
lögreglan undanfarna daga
tekið við kærum og tilkynningum vegna brota sem mislangt
er síðan áttu sér stað.
Ekki er nóg með það heldur hafa kynferðisbrot gegn
börnum verið tekin á dagskrá og rædd bæði í allsherjar- og
menntamálanefnd Alþingis og í borgarstjórn Reykjavíkur.
Allsherjarnefnd kallaði til sín fulltrúa meðal annars frá
Barnaverndarstofu, Stígamótum, lögreglu og Ríkis-
saksóknara. Meginumræða þess fundar snerist um auknar
heimildir lögreglu til að nota tálbeitur í því skyni að hafa uppi
á kynferðisbrotamönnum.
Í umræðu undangenginna daga hefur ríkt talsverð með-
vitund um mikilvægi þess að umræða um barnaníðinga sé
ekki vægðarlaus vegna þess að slík vægðarlaus umræða geti
orðið til þess að börn segi síður frá ofbeldi af því að þau óttist
um afdrif þess sem brotið hefur á þeim, sem í flestum til-
vikum eru menn sem eru þeim venslaðir.
Þögnin sem hjúpað hefur kynferðisbrot gegn börnum alltof
lengi hefur ekki bara verið vörn barnaníðinganna og það
skjól sem þeir hafa þurft til að halda brotum sínum áfram.
Hún hefur líka gert afleiðingar brotanna enn óbærilegri fyrir
þolendur en þær hefðu orðið ef þeir hefðu sagt frá reynslu
sinni og fengið viðhlítandi meðferð.
Hreyfing eins og sú sem orðið hefur síðustu daga er þannig
afar mikilvæg. Hún eykur þekkingu og vitund um mála-
flokkinn auk þess sem hún dregur fram og minnir á þau
býsna mörgu úrræði sem standa bæði þolendum og gerendum
til boða. Auk þess vekur hún almenning til umhugsunar um
ábyrgð borgara sem telja sig vita um barnaníð og þær leiðir
sem almenningi eru færar til að gera viðvart um slíkar
grunsemdir.
Hver flóðgátt sem opnast verður þannig varða á leiðinni til
að fækka ofbeldisglæpum gagnvart börnum og draga úr þeim
miska sem þolendur verða fyrir. Auk þess má leiða að því
líkur að umræðan skili fleiri brotamönnum í meðferð. Þá er
þó til nokkurs unnið.
Umfjöllun um kynferðisbrot opnar flóðgáttir:
Til mikils að vinna
Steinunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is
Kaldar kveðjur
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, var á heim-
spekilegum nótum á þingi í gær þegar
hann velti fyrir sér hvað ylli því að
þingmenn skiptu um flokka. „Er það
ekki valdabrölt í sinni skýrustu mynd
þegar menn annaðhvort skipta um
flokka, eða stofna nýja, til þess að
komast til valda, til að fá völd,“ spurði
hann á þingi. Þetta eru kaldar kveðjur
til félaga hans í þingflokknum og
á framboðslista flokksins í Norð-
vesturkjördæmi, Ásmundar Einar
Daðasonar, sem kom einmitt í
Framsókn úr Vinstri grænum á
kjörtímabilinu.
Spjaldtölvur fyrir alla!
Guðmundur Franklín Jónsson
og félagar í Hægri grænum
eru stórhuga fyrir komandi kosn-
ingar. Á vef þeirra má finna langan
lista af stefnumálum og eitt þeirra
hljóðar svo: „XG ætlar að útvega öllum
grunn-, fjölbrauta- og menntaskóla-
nemendum ásamt öllum kennurum
spjaldtölvur eftir næstu kosningar
þeim að kostnaðarlausu. Spjaldtölvur
spara bókakostnað og létta töskuburð
skólabarna og beinan kostnað skatt-
borgaranna.“ Þetta er frábær hugmynd.
Spjaldtölvur eru skemmtileg tæki og
rannsóknir benda til þess að þær
geti nýst vel í kennslu.
Þrír milljarðar
Lítum samt nánar á
dæmið. Á Íslandi eru
um 42 þúsund grunn-
skólanemar. Framhalds-
skólanemarnir eru um
30 þúsund og háskólanemarnir 19
þúsund. Það gerir 91 þúsund nemend-
ur, eða hér um bil. Þá eru kennararnir
eftir. Þeir eru samtals um níu þúsund.
Til að standa við þetta loforð munu
Hægri grænir því þurfa að kaupa
100 þúsund spjaldtölvur strax eftir
kosningar. Ímyndum okkur að keyptar
yrðu sæmilegustu spjaldtölvur á magn-
afslætti og að hver þeirra kostaði 30
þúsund krónur. Það er líklega ekki svo
óraunhæft. Það mundi
þýða þriggja milljarða
útgjöld í einu vet-
fangi. Mikið má
sparast í bókakostnaði
á móti til að það gangi
upp.
kolbeinn@frettabladid.is
stigur@frettabladid.is