Fréttablaðið - 17.01.2013, Side 19
FIMMTUDAGUR 17. janúar 2013 | SKOÐUN | 19
Brosum við athafnir borgarstjóra
í Reykjavík hefur fjölgað síðan
Jón Gnarr varð borgarstjóri.
Það er kynlegt, að minnsta kosti
stundum, að sjá mann, sem gegnir
formlegu embætti, í Star Wars-
búningi, skátabúningi, draggi, á
kanó, með tattú og sjá hann senda
frá sér jólakveðju íklæddur apa-
grímu.
Kjósendur treystu á að þeir
fengju eitthvað nýtt með kosningu
Jóns. Besti flokkurinn lofaði
ýmsu sem allir vissu að væri tóm
vitleysa. Jón gaf þó eitt risastórt
loforð sem var forsenda fram-
boðsins í sjálfu sér en það var
loforðið um óhefðbundna stjórn-
málaflokkinn. Ef til vill er ekki
alveg skýrt hvað felst í slíku lof-
orði. Í því felst þó einhvers konar
loforð um traust, samstarf, sann-
girni og að segja satt og rétt frá
þegar mál eru kynnt fyrir borgar-
búum. Þetta er jú allt hegðun sem
hefðbundnir stjórnmálamenn áttu
fyrir löngu að hafa týnt.
Nú þegar kjörtímabil Jóns
Gnarr er hálfnað er fróðlegt að
velta fyrir sér hvernig þessu eina
raunverulega loforði Besta flokks-
ins hefur reitt af. Við slíka skoðun
er rétt að líta fyrst til þess, að
þegar kemur að málefnum borgar-
innar tjá stjórnmálamenn Besta
flokksins sig lítið. Í fjölmiðlum
fer mest fyrir borgarstjóranum
íklæddum búningum eða í fylgd
með frægu fólki af ýmsu tagi.
Sjaldnar heyrist borgar stjórinn
ræða skólamál, velferðarmál
eða fjármál borgarinnar. Aðrir
borgar fulltrúar meirihlutans tjá
sig lítið en beita þess í stað fyrir
sig embættismönnum borgarinnar
í fjölmiðlum þegar umdeild mál
komast á dagskrá. Kannski er
þetta óhefðbundin leið en aumt er
það að senda embættismenn út af
örkinni til að verja óvinsælar póli-
tískar ákvarðanir.
Úr hægri vasa í vinstri
Nýlega tilkynntu Besti flokkur-
inn og Samfylking að Reykvík-
ingar hefðu eignast Perluna fyrir
tæpan milljarð króna. Seljandi
byggingarinnar var Orkuveita
Reykjavíkur en Reykjavíkurborg
á nánast allar eignir og skuldir
Orkuveitu Reykjavíkur. Með
þessu voru fjármunir því færðir
úr hægri vasanum í þann vinstri.
Engin raunveruleg sala átti
sér stað. Stjórn Orkuveitunnar
gengur nefnilega ekkert að selja
eignir eins og stefnt var að. Í stað
þess að upplýsa heiðarlega um þá
staðreynd eins og óhefðbundinn
stjórnmálaflokkur hefði eflaust
gert valdi Besti flokkurinn bók-
haldsbrelluleið og setti á fót leik-
rit um að búið væri að selja Perl-
una. Fyrir tveimur árum hefði
Jón Gnarr lýst þessu sem hefð-
bundnum stjórnmálum.
Besti flokkurinn hefur raunar
aldrei rætt um að létta byrðar
fjölskyldna í Reykjavík. Flokkur-
inn hefur þó fullyrt að velferð og
þjónusta eigi að njóta forgangs við
ráðstöfum fjármuna. Þegar fjár-
hagsáætlun 2013 er skoðuð sést
að fjölskyldur njóta sannarlega
ekki forgangs hjá meirihlutanum.
Á tímabilinu sem um ræðir, frá
árinu 2010-2013, hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 13% en
hækkanir á þjónustu borgarinnar
nema um 20% á sama tíma. Sleppt
var að upplýsa af hverju gjöld
sem fjölskyldur verða að greiða
hafa hækkað 7% umfram vísitölu.
Afleiðing þessa er að meðalstór
fjölskylda í Reykjavík með börn
í grunnskóla og leikskóla mun á
næsta ári greiða 330.000 krónum
meira fyrir grunnþjónustu hjá
Reykjavíkurborg en árið 2010.
Hugsanlega hefði verið óhefð-
bundið að upplýsa um þetta á
mannamáli, en Jón Gnarr kaus að
láta það ógert.
Klassískur leikur
Á mánudaginn síðasta kvitt-
aði borgarstjórinn upp á grein
í Fréttablaðinu sem sagði frá
verkefni um virkjun hugmynda
borgarbúa að bættum hverfum í
Reykjavík. Svo má skilja að verk-
efnið hafi byrjað í fyrra og tekist
afar vel. Látið er liggja milli hluta
að verkefnið hófst fyrir rúmlega
fjórum árum, eða árið 2009, þegar
borgarbúar tóku í fyrsta sinn þátt
í netkosningunni „Kjóstu verkefni
í þínu hverfi“. Greinarhöfundur
gleymir af ásettu ráði að minnast
á þetta enda iðka hefðbundnir
stjórnmálamenn víst oft þann leik
að eigna sér verkefni sem ganga
vel þótt þeir eigi í raun ekkert í
þeim. Klassískur leikur í pólitík-
inni sem enginn vill að sé við lýði.
Einnig er í fersku minni skil-
greining meirihlutans á samráði
og samstarfi. Kennarar og nem-
endur finna enn fyrir því að farið
var í stórtækar sameiningar á
skólum þrátt fyrir mikla andstöðu
foreldrafélaga og samtaka kenn-
ara. Hvorki meira né minna en
12.000 foreldrar skrifuðu undir
mótmæli. Forsenda verksins, hag-
ræðingin, hefur líka heldur betur
látið á sér standa enda lá fyrir að
lítið sem ekkert sparaðist við alla
þessa vinnu og allt þetta brölt.
Lofað var að hlusta á sjónarmið
foreldra en þau voru virt að vett-
ugi við fyrsta tækifæri. Í kosn-
ingabaráttu Besta flokksins árið
2010 hefði þetta vafalítið flokkast
undir hefðbundin og gamaldags
stjórnmál.
Þegar litið er fram hjá leikbún-
ingum og húðflúri er Jón Gnarr
og meirihlutinn í Reykjavík í
besta falli hefðbundinn. Þetta er
ekki það sem kjósendur Besta
flokksins vildu. Jón Gnarr bauð
sig fram með það að leiðarljósi
að tími væri kominn til að skipta
út hefðbundnum stjórnmála-
mönnum. Stjórnmálamennirnir
sem Besti flokkurinn gerði gys að
aðhafðist nefnilega lítið annað en
að svíkja loforð og setja verk sín í
búninga sem villtu um fyrir fólki.
Þá list virðist Jón sjálfur hins
vegar hafa fullkomnað á síðustu
tveimur árum. Bókstaflega.
Besti flokkurinn
hefur raunar aldrei
rætt um að létta byrðar
fjölskyldna í Reykjavík.
Flokkurinn hefur þó fullyrt
að velferð og þjónusta eigi
að njóta forgangs...
Leikbúningar stjórnmálamanns
Í DAG
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
Eins og fram
hefur komið í
fréttum hefur
ekki verið stað-
ið við endur-
skoðun stofn-
anasamnings
við lífeinda-
fræðinga innan
Landspítala, en
þeir er önnur
stærsta stétt
háskólamanna
á spítalanum
og leggur vinna þeirra grunn að
miklum hluta sjúkdómsgrein-
inga innan deilda spítalans.
Markmið stofnanasamninga í
kjarasamningi er m.a.
• að skapa betri starfsskilyrði.
• að auka gæði þjónustu með efl-
ingu samstarfs starfsmanna og
stjórnenda.
• að gefa starfsmönnum mögu-
leika á að þróast og bæta sig í
starfi og auka möguleika á bætt-
um kjörum.
Stofnanasamning skal endur-
skoða innan eins árs frá stað-
festingu kjarasamnings og eigi
sjaldnar en annað hvert ár.
Lífeindafræðingar hafa sýnt
mikla stillingu og kurteisi við
að reyna að knýja á um endur-
skoðun stofnanasamnings, við
höfum fundað reglulega og
boðað velferðarráðherra og for-
stjóra spítalans á okkar fund og
átt fund með fjármálaráðherra,
en ekkert þokast.
Nýjasta útspil yfirmanna
okkar er bann við starfsmanna-
fundum á vinnutíma. Væri ekki
nær að yfirstjórn spítalans tal-
aði máli mannauðsins á stofnun-
inni, að meira fjármagn þurfi
inn til að halda í gott starfsfólk
til að auka gæði þjónustunnar
með ánægðum starfsmönnum
í stað þess að auka á reiði og
óánægju allra? Er góður starfs-
andi og samheldni ekki betri til
árangurs?
Mannauður
og fundabann
KJARAMÁL
Halla
Hauksdóttir
lífeindafræðingur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Nú eru þeir
kaldir hjá Eirvík
Bjóðum takmarkað magn af kæli- og frystiskápum frá Liebherr.
Þeir eru búnir nýjustu tækni, hannaðir af alúð og framleiddir af
þýskri nákvæmni. Einstök framtíðareign.
SÉRVERÐ
Nr. litur Hæð Stærð í ltr. Orkufl. Sérverð
CUsl 3503 grár 181,7 cm K 232 F 91 A+ 183.440
CPesf 3523 stál 181,7 cm K 230 F 91 A++ 209.995
CP 3523 hvítur 181,7 cm K 230 F 91 A++ 190.045
Ces 4023 stál 201,1 cm K 281 F 91 A+ 204.745
C 4023 hvítur 201,1 cm K 281 F 91 A+ 164.845