Fréttablaðið - 17.01.2013, Síða 24

Fréttablaðið - 17.01.2013, Síða 24
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR Litlu-Eyri, Bíldudal, sem lést aðfaranótt sunnudagsins 13. janúar verður jarðsungin frá Bíldudalskirkju laugardaginn 19. janúar klukkan 14.00. Hannes Bjarnason Birna Jónsdóttir Helga Bjarnadóttir Úlfar B. Thoroddsen Sigríður Bjarnadóttir Guðmundur Sævar Guðjónsson Finnbjörn Bjarnason Theodór Agnar Bjarnason Ágústa Ísafold Sigurðardóttir Svanhvít Bjarnadóttir Ólafur Arnar Kristjánsson Jón Sigurður Bjarnason Heba Harðardóttir Arndís Bjarnadóttir Skarphéðinn Guðmundsson Jóhanna Bjarnadóttir Lúðvík Guðjónsson Hreinn Bjarnason Guðný Sigurðardóttir Erna Bjarnadóttir Gísli Ragnar Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÚSTAF ADOLF GUÐMUNDSSON, Skógarbæ, áður Fiskakvísl 1, lést sunnudaginn 6. janúar. Útförin fer fram frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn 19. janúar klukkan 14. Guðný Helga Björnsdóttir Guðmundur Viktor Gústafsson Birna S. Richardsdóttir Guðbjörg Gústafsdóttir Magnús Gústafsson Röfn Friðriksdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri, SKJÖLDUR TÓMASSON Furulundi 21, Akureyri, lést á heimili sínu föstudaginn 11. janúar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 21. janúar klukkan 13.30. Hulda Tómasína Skjaldardóttir Drífa Sól Sveinsdóttir Björk Nóadóttir og systkini hins látna. Elskulegur faðir okkar, BALDUR SVEINSSON húsasmiður frá Sveinsstöðum, lést 13. janúar á gjörgæsludeild Land- spítalans. Útför verður gerð frá Grafar- vogskirkju miðvikudaginn 23. janúar kl. 13. Fyrir hönd allra aðstandenda, Aðalbjörg og Þóra Björk Baldursdætur. JÓN ÞÓR PÁLSSON frá Skeggjastöðum í Fellum, lést þann 11. janúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá Áskirkju í Reykjavík föstudaginn 18. janúar kl. 15. Fyrir hönd aðstandenda, Páll Jónsson Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR KRISTINN KLEMENZSON bóndi, Presthúsum í Mýrdal, lést laugardaginn 12. janúar á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands, Selfossi. Útförin fer fram frá Reyniskirkju í Mýrdal laugardaginn 19. janúar kl 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hollvinasjóð Hjallatúns í Vík. Hrefna Finnbogadóttir Kristín Einarsdóttir Sigurjón Rútsson Elísa B Adolfsdóttir Klemens Árni Einarsson Finnbogi Einarsson Heiða Dís Einarsdóttir Snorri Snorrason Signý Einarsdóttir Flosi Arnórsson Haukur Einarsson Sóley Rut Ísleifsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Kær móðir okkar, HRAFNHILDUR EYGLÓ ÓLAFSDÓTTIR Höfða, Akranesi, áður til heimilis að Háteigi 1, andaðist 13. janúar. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju 22. janúar kl. 14.00. Jóhanna Margrét og Sigrún Guðjónsdætur og fjölskyldur þeirra. Okkar ástkæri, GRÉTAR ÓLAFUR SÍMONARSON bóndi, Goðdölum, Skagafirði, lést laugardaginn 12. janúar sl. á Heilbrigðis stofnuninni Sauðárkróki. Útförin fer fram frá Goðdalakirkju laugardaginn 19. janúar klukkan 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigþór Smári Borgarsson Sigríður Sveinsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, BJARNI DAGBJARTSSON Eirhömrum, Mosfellsbæ, lést á Hjartadeild Landspítalans við Hringbraut miðvikudaginn 2. janúar sl. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18. janúar nk. kl. 15.00. Aðalheiður Bjarnadóttir Kristján Þór Ingvarsson Dagbjartur Bjarnason Guðrún Steinþórsdóttir Guðbjörg Bjarnadóttir Viðar Sigurðsson Margrét Þyri Sigurðardóttir Jónas Eydal Ármannsson Jóhann Haukur Sigurðsson Guðrún Leósdóttir Hjálmtýr Dagbjartsson Hjördís Bogadóttir Jón Sverrir Dagbjartsson Þóra M. Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ÁRNA INGVARSSONAR Skipalóni 22, Hafnarfirði. Gerða T. Garðarsdóttir Elsa Aðalsteinsdóttir Björn Árnason Auðunn Gísli Árnason Fríða J. Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁGÚST GUÐJÓNSSON blikksmíðameistari, Ásgarði 4, Reykjanesbæ, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 18. janúar kl. 14.00. Hulda Guðmundsdóttir Guðmundur Svavarsson Sigríður V. Árnadóttir Margrét Ágústsdóttir Árni Ásmundsson Skúli Ágústsson Stella María Thorarensen barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN SIGURÐSSON leigubílstjóri, lést laugardaginn 29. desember á hjúkrunar- heimilinu Skjóli. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Elsa Sólveig Þorsteinsdóttir Ástkær fósturmóðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, INGVELDUR ÁSMUNDSDÓTTIR Höfða, Akranesi, áður Vesturgötu 80, lést laugardaginn 12. janúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 18. janúar klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, Guðmundur Garðarsson. Þjóðminjasafn Íslands heldur upp á 150 ára afmæli sitt á þessu ári en safnið var stofnað 24. febrúar 1863 og var þá fyrsta safn Íslendinga. Bryndís Sverris- dóttir, sviðsstjóri miðlunarsviðs safns- ins, segir mikla dagskrá vera áætlaða á afmælisárinu og hefst hún óformlega um helgina. „Viðburðum verður dreift yfir allt árið og að sjálfsögðu verður mikil hátíð haldin á afmælisdaginn sjálfan, 24. febrúar. Um helgina opnum við fyrstu þrjár sýningar ársins,“ segir Bryndís. Í stóra myndasal safnsins verður opnuð sýningin Íslensk ljósmyndun frá 1970 til 1990, þar sem fjórtán ljósmynd- arar sýna úrval ljósmynda frá þessu tímabili. Á Veggnum verður sett upp ljósmyndasýning Harðar Geirs sonar, safnvarðar Minjasafnsins á Akureyri, Nýjar myndir – gömul tækni. „Hörð- ur hefur síðustu tvö ár tekið myndir á votar plötur, en það er tækni sem var mikið notuð frá 1851 og fram undir alda- mótin 1900. Þetta er rosalega áhugaverð og skemmtileg tækni og það tekur til dæmis mjög langan tíma að taka hverja mynd. Maður skilur núna af hverju fólk er alltaf svona stíft á myndum frá því í gamla daga,“ segir Bryndís og hlær. Þriðja sýningin sem opnar um helgina er svo sýning á gripum sem Minjar og saga, vinafélag safnsins, hefur gefið á undanförnum árum. Félagið var einmitt stofnað á 125 ára afmæli Þjóðminja- safnsins og fagnar því 25 ára afmæli þetta árið. Í tilefni þess bjóða þau áhugasömum að ganga endurgjaldslaust í félagið þetta ár. Æskan og framtíðin er þema afmælisársins á Þjóðminjasafn- inu og er stefnt á að vekja áhuga ungs fólks á því. „Margir halda að hér sé bara að finna rykfallna gripi en það er svo fjarri lagi. Hér er margt skemmtilegt í gangi fyrir fólk á öllum aldri og við vilj- um vekja athygli yngri kynslóðarinnar á því, svo safnið lifi nú í önnur 150 ár og lengur,“ segir Bryndís. Einnig verða gefnar út þrjár stórar og veglegar bækur á árinu, auk þess sem afmælisbæklingur safnsins hefur verið gefinn út og verður dreift inn á öll heim- ili landsins á morgun. „Þar segjum við frá starfsemi safnsins, hvað sé á döfinni á árinu og stiklum á stóru varðandi sög- una. Auk þess verða nokkrir af starfs- mönnunum okkar teknir fyrir og þeir segja frá starfinu sínu og hvað þeim þykir mest heillandi og skemmtilegt við það. Við leyfum því fólki aðeins að gægjast á bak við tjöldin hjá okkur með þessum bækling,“ segir Bryndís. tinnaros@frettabladid.is Árslöng afmælishátíð Fyrstu þrjár sýningar 150. starfsárs Þjóðminjasafns Íslands eru opnaðar um helgina. ÍSLENSK LJÓSMYNDUN Á eini af sýningunum sem opnaðar verða um helgina er úrval ljós- mynda frá árunum 1970 til 1990. Bryndís er hér með mynd af sýningunni og í bakgrunni má sjá ljósmyndir eftir ljósmyndara Fréttablaðsins, Gunnar V. Andrésson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Verslun Guðlaugs A Magnússonar, Skólavörðustíg verður lokuð vegna jarðarfarar Magnúsar Hauks Guðlaugssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra og eiganda verslunarinnar, fimmtudaginn 17. janúar til kl. 14.00 og lokuð föstudaginn 18. janúar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.