Fréttablaðið - 17.01.2013, Qupperneq 25
Ég var með manga-fígúru eftir japanska listakonu innan á hand-leggnum, sem var alls ekki nógu
vel gerð. Eins var ég ekki viss um að ég
yrði ánægð með manga-fígúru þegar ég
yrði áttræð og vildi fá eitthvað annað
yfir,“ segir Ragnheiður Ösp Sigurðar-
dóttir vöruhönnuður þegar hún er
spurð út í nýlega húðflúraðan upphand-
legginn.
„Mig langaði í einhvers konar
útfærslu á japanskri þjóðsagnafræði.
Thomas Asher húðflúrari er sérfræðing-
ur í japönskum stíl og ég sagði honum
bara að ég vildi blóm og trönu og hann
útfærði þetta á handlegginn á mér.“
Þrátt fyrir að nýja húðflúrið sé tals-
vert stærra og litskrúðugra hefur
Ragnheiður litlar áhyggjur af því að
það valdi henni hugarangri þegar hún
kemst á áttrætt, það eigi vel við hennar
karakter.
„Ég elska Japan og hef alltaf gert.
Sumir eru auðvitað ekki hrifnir af húð-
flúri og nokkrum í fjölskyldunni leist
ekkert á þetta.
Amma spurði mig einmitt hvað ég
ætlaði að gera þegar ég yrði gömul! En
húðflúr er svo mikið í tísku í dag að
þegar ég fer á elliheimilið verður þetta
bara „normið“.“
Alls tók sjö klukkutíma að fullgera
flúrið, sem Ragnheiður segir hafa tekið
á. Hún er með fjögur önnur húðflúr á
líkamanum en segir þau ekki standast
samanburð þegar kemur að sársauka-
stigi.
„Við tókum pásur á milli en þetta
var rosalegt. Ég hef aldrei fundið svona
mikið til. Mig langaði oft til að fara að
skæla en beit bara á jaxlinn og bölvaði
í hljóði. Ég hugsaði líka „aldrei aftur“
meðan á þessu stóð, en um leið og
þetta var búið var ég farin að hugsa
um að fá mér fleiri,“ segir Ragnheiður
hlæjandi.
Hún hefur þó lítinn tíma fyrir
húðflúrs vangaveltur þessa dagana því
Notknot-púðarnir hennar eru á leið á
sýningu í Danmörku. „Það á að kynna
púðana formlega í Skandinavíu á Form-
land-sýningunni nú í byrjun febrúar. Þar
verður þeim líka stillt upp af stílistum
í sérstökum sýningarherbergjum. Einn
stílistanna vinnur líka fyrir tímaritið Bo
Bedre og ætlar að mynda púðana fyrir
blaðið svo það eru mjög spennandi
hlutir að gerast.“
■ heida@365.is
EFTIRSÓTTAR HANDTÖSKUR
Brasilíski hönnuðurinn Serpui Marie hannar eftirsóttar
handtöskur sem frægar konur á borð við Madonnu og
Jennifer Aniston ganga með. Hönnuðurinn sækir inn-
blástur í sveitina í heimalandinu og blandar saman
skemmtilegum efnum. Fjallað hefur verið um Marie í
helstu tískublöðum heims. Sjá serpuimarier.com.
LANGAR Í MEIRA
Ragnheiður Ösp
Sigurðar dóttir vöru-
hönnuður harkaði af sér
sjö klukkustunda pínu
á bekknum og er strax
farin að hugsa um fleiri
húðflúr.
MYND/VALLI
ÖMMU LEIST EKKI Á
HÚÐFLÚR Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir vöruhönnuður beit á jaxlinn í sjö
klukkustundir meðan hún fékk húðflúr á handlegginn. Nú langar hana í fleiri.
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
Laugardaga frá kl. 10-14
NÝ SENDING - NÝR LITUR
teg 42027 - fæst í
C,D,E skálum á kr.
5.800,- buxur við
kr. 1.995,-
Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 5 69 3100 g.is eirber
Verð: 44.950 kr.
Blóðrásarörvun fyrir fætur
Ný kynslóð