Fréttablaðið - 17.01.2013, Qupperneq 26
FÓLK|TÍSKA
VELGENGNI
Tinna Alavis hefur verið
vinsæl fyrirsæta hér
á landi sem erlendis.
Hún vekur athygli fyrir
smekklegan klæðaburð,
enda hefur hún mikinn
áhuga á öllu er snertir
tísku.
MYNDIR/BRAGI KORT
ÚTSALA
Í FULLUM GANGI!
NÝ SENDING AF DRÖGTUM!
Skipholti 29b • S. 551 0770
Kjólar - ný sending á útsöluna
Fleiri myndir á Facebook
• Árshátíðarkjólar
• Hverdagskjólar
• Skokkar
• Túnikkur
St 36-48
Belladonna á Facebook
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Nýjar vörur
í hverri viku
Vor 2013
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
TÍSKUBLOGG | TINNA ALAVIS, FYRIRSÆTA OG BLOGGARI
■ Tinna Alavis er ein þekktasta fyrir-
sæta landsins þótt hún hafi að mestu lagt
þau störf á hilluna. Hún er tískubloggari
á netmiðlinum vinsæla secrets.is sem
fjallar um tísku, förðun og fleira. Spenn-
andi verkefni bíða Tinnu sem hún segir
fullsnemmt að ræða nú. Tinna varð í öðru
sæti í keppninni Ungfrú Ísland árið 2003
þegar Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
bar sigur úr býtum. Frá þeim tíma hefur
hún starfað sem fyrirsæta víða um heim,
meðal annars í París, Þýskalandi, Indlandi
og Los Angeles. Tinna var fús til að svara
nokkrum spurningum.
Hvað ert þú að starfa um þessar mundir
og hvar? Ég er að vinna að mjög spenn-
andi verkefni sem tengist tísku og kemur
í ljós síðar.
Hefur þú alltaf haft áhuga á tísku?
Já, ég er mikill fagurkeri og hef alltaf haft
mikinn áhuga á öllu sem snertir tísku.
Hvað leggur þú áherslu á þegar þú blogg-
ar? Ég legg aðaláherslu á heimsþekkta
hönnuði, hártískuna, förðun og götu-
tískuna. Ég fjalla einnig mikið um stóra
viðburði erlendis, núna síðast var ég að
blogga um fallegustu kjólana á Golden
Globe-hátíðinni, sem voru margir
hverjir glæsilegir að mínu mati.
Hvaða hönnuðir eru í uppáhaldi? Ég
er ástfangin af Rachel Roy, hún er
frábær hönnuður í alla staði. Einnig
er ég mjög hrifin af Roberto Cavalli,
hann er með mjög kvenleg og
elegant snið. Carolina Herrera er
frábær hönnuður. Mér finnst herra-
fötin frá Gucci einstaklega falleg.
Er einhver flík sem þú stenst ekki?
Ef ég sé einhverja flík sem heillar
mig upp úr skónum þá stenst ég
aldrei mátið og kaupi hana.
Einhver skemmtileg tískuupplifun?
Mér fannst mjög skemmtilegt og öðru-
vísi að sjá tískuna í Indlandi þegar ég
var að vinna þar.
Áttu þér uppáhaldsverslanir?
Uppáhaldsverslanirnar mínar
hérna heima eru Eva, Zara og
Kultur fyrir dömur og herra.
Eyðir þú miklu í föt? Já, ég geri það.
Hvort verslar þú meira á Íslandi eða
í útlöndum? Ég versla mikið á Ís-
landi og enn meira erlendis.
FAGURKERI MEÐ TÍSKUÁHUGA