Fréttablaðið - 17.01.2013, Síða 29

Fréttablaðið - 17.01.2013, Síða 29
NÝIR BÍLAR FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2013 Kynningarblað Tækninýjungar, rafmagnsbílar, fjölskyldubílar, sendibílar, framtíðarbílar og bílasmíði Bílabúð Benna frumsýndi nýlega Chevrolet Volt, sem er langdrægur rafmagnsbíll með bensínrafal. Það leysir þau vandamál sem fylgja bílum sem eingöngu eru knúnir rafmagni og hafa stutt ökudrægi. „Volt er í stuttu máli þann- ig gerður að hann er knúinn raf- magni, en þegar rafmagns hleðslan nær lágmarki tekur bensín rafall við og framleiðir rafmagn inn á rafhleðsluna,“ segir Benedikt Eyjólfs son hjá Bílabúð Benna. „Þetta er lykilatriðið, fólk lend- ir því aldrei í þeim leiðindum sem fylgja því að verða stopp einhvers staðar vegna rafmagnsleysis, hvort sem það er innan- eða utan- bæjar. Rafmagnið getur klárast í öðrum rafmagnsbílum og þá þarf að draga þá í burtu – slíkt gerist aldrei í Volt,“ segir Benedikt. Chevrolet Volt er fyrsti lang- drægi rafbíll sögunnar og kemst um 500 km á einni rafhleðslu og fullum bensíntanki. „Á rafhleðsl- unni einni saman kemst hann um 60 km. En 60 km drægi dugir í flestum tilvikum fyrir allan dag- legan akstur og menn geta því jafnvel sagt bless við bensínið fyrir fullt og allt. Chevrolet Volt er því mjög raunhæfur möguleiki hér og nú og áhugi markaðarins er sam- kvæmt því,” segir Benedikt. Volt er langdrægur rafmagnsbíll Sparnaðarráð fyrir heimilið Hluti af staðalbúnaði Spark LT: Verið velkomin í reynsluakstur og kaffi FRÍTT Í STÆÐI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.