Fréttablaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 34
KYNNING − AUGLÝSINGNýir bílar FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 20136
Mercedes-Benz kynnir á næstunni nýjan sendibíl sem fengið
hefur nafnið Citan. Mikil eftirvænting hefur verið eftir bílnum,
bæði vegna þess að Daimler hefur ekki verið með sendibíl um
nokkurt skeið í þessum stærðarflokki og þá mun Citan vera sér-
lega hagkvæmur í rekstri. Citan er nettur en öflugur sendibíll og
er ætlað að efla sölu Mercedes-Benz enn frekar í flokki atvinnu-
bíla, en Daimler AG, framleiðandi Mercedes-Benz er stærsti fram-
leiðandi atvinnubíla í heiminum í dag. Aukinn markaður er
fyrir bíla í þessum geira á mörgum markaðssvæðum og stefnir
Mercedes-Benz á aukna markaðshlutdeild með tilkomu Citan.
Fyrir er þýski lúxusbílaframleiðandinn með breiða línu sendi-
bíla, s.s. Vario, Sprinter og Vito. Sprinter hefur til að mynda verið
afar vinsæll og traustur bíll hér á landi, og einn mest seldi bíllinn í
sínum flokki um árabil.
Citan verður í boði með eyðslugrönnum dísil- og bensín vélum
sem allar hafa frekar lága koltvísýringslosun. Citan verður vel
búinn m.a. með Blue EFFICIENCY-búnaði, eins og nýir lúxusbílar
Mercedes-Benz eru búnir, en búnaðurinn eykur á sparneytni bíla
og minnkar útblástur skaðlegra lofttegunda frá þeim. Citan verð-
ur einnig boðinn í ýmsum útgáfum, m.a. sem fjölnotabíll. Hægt
verður að panta Citan í mismunandi lengd og hæð sem býður
upp á fjölmarga notkunarmöguleika. Nýr Mercedes-Benz Citan
kostar frá 3.590.000 kr. með virðisaukaskatti.
Nýr og nettur sendibíll
Mercedes-Benz Citan
Kia heldur áfram mikilli sókn hér á landi og á árinu sem er að líða seldust alls 775 nýir Kia-bílar. Kia er komið í þriðja
sæti yfir mest seldu bíla landsins með um
110% söluaukningu frá síðasta ári og er Kia
nú með 9,6% markaðshlutdeild í sölu nýrra
bíla á Íslandi, sem jafnframt er sú hæsta í Evr-
ópu. Mercedes-Benz var í öðru sæti yfir mest
seldu lúxusbíla ársins en alls seldust 203 nýir
bílar frá þýska lúxusbílaframleiðandanum
hér á landi á árinu 2012, fólks- og atvinnu-
bílar.
„Við hjá Öskju getum verið mjög sátt við
árangurinn því fyrirtækið hefur bætt við sig
markaðshlutdeild. Mercedes-Benz hefur átt
góðu gengi að fagna hér á landi þrátt fyrir erf-
iða tíma í bílasölu og á mjög dyggan aðdá-
endahóp. Hinn nýi A-Class var valinn Bíll
ársins af íslenskum bílablaðamönnum sem
er frábær viðurkenning. Einnig komu nýir
og endurbættir B-Class, M-Class og GLK
en allir þessir bílar hafa verið vinsælir hjá
okkur. Það eru spennandi tímar fram undan
hjá Mercedes-Benz og nýr GL og CLA-Class
eru væntan legir á fyrri hluta ársins,“ segir Jón
Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju.
Kia-bílarnir mjög vinsælir
Kia-bílarnir hafa verið mjög vinsælir og er
merkið komið í þriðja efsta sæti yfir mest
seldu bílanna á Íslandi. „Þetta eru mjög
ánægjulegar fréttir en koma raunar ekk-
ert mjög á óvart þar sem Kia hefur verið að
koma fram með spennandi og fallega endur-
hannaða bíla á árinu. Þá eru bílarnir einn-
ig sparneytnir og umhverfismildir og það
er það sem bíleigendur leita í mjög auknum
mæli eftir,“ segir Jón Trausti.
Hann segir að nýr og spennandi Kia
Carens sé nú á leiðinni en bíllinn á að marka
tímamót fyrir Kia í flokki stærri fjölskyldubíla
eða svokallaðra margnotabíla sem kallaðir
eru MPV á ensku. Carens er stór og rúm góður
sjö manna bíll með mikið farangursrými.
„Carens verður í boði með eyðslugrönnum og
umhverfismildum dísilvélum þannig að um
hagkvæman fjölskyldubíl er að ræða. Þessi
nýi bíll er framleiddur og hannaður með
þarfir fjölskyldunnar í huga þannig að hann
nýtist vel fyrir ferðalög og öll áhugamálin,“
segir Jón Trausti.
Askja með mestan hlutfallslegan vöxt
Bílaumboðið Askja, umboðsaðili Mercedes-Benz og Kia Motors, er með mestan hlutfallslegan vöxt í sölu milli ára af öllum bílaumboðum á Íslandi. Askja var með 11,3%
markaðshlutdeild af sölu nýrra bíla hér á landi árið 2012 og jók markaðshlutdeild sína um 2,5% frá 2011.
GLÆSILEGUR OG KRAFTMIKILL GL JEPPI
SJÖ ÁRA ÁBYRGÐ Á KIABÍLUM
Kia Motors býður upp á 7 ára verksmiðjuábyrgð á öllum
nýjum bílum sínum og er eini bílaframleiðandinn í heiminum
sem býður svo langa ábyrgð.
Kia er einn mest vaxandi bílaframleiðandi heims og hefur
undanfarna mánuði sent frá sér hvern endurhannaðan bílinn á
fætur öðrum. Kia-bílarnir hafa undanfarið fengið mikið lof fyrir
flotta og nútímalega hönnun og hafa sópað til sín hönnunar-
verðlaunum víða um heim. Kia-bílarnir teljast einnig einstak-
lega góðir í endursölu, sérlega sparneytnir og umhverfismildir.
Kia-bílarnir hafa verið
mjög vinsælir og er
merkið komið í þriðja
efsta sæti yfir mest
seldu bílana á Íslandi.
Mikil eftirvænting ríkir eftir hinum nýja og kraftmikla Mercedes-Benz GL jeppa. Nú styttist óðum í þennan sjö
sæta glæsivagn því hann verður frumsýndur hjá Öskju í febrúar. Nýr GL verður búinn nýjum og endurbættrum
vélum, bæði fyrir dísel og bensín, sem munu bjóða upp á aukinn kraft samfara minni eyðslu og gerir jeppann
sérlega umhverfisvænan. GL350 BlueTEC 4MATIC verður með þriggja lítra V6 díselvél sem skilar 258 hestöflum
og 620 Nm í togi. Eyðslan er aðeins um 7,4 lítrar í blönduðum akstri samkævmt upplýsingum frá framleiðanda.
GL500 verður með 4,7 lítra V8 bensínvél sem skilar 435 hestöflum og 700 Nm í togi. Hinn magnaði GL 63 AMG
4MATIC er sannkallað villidýr en hann skilar 557 hestöflum og togið er gríðarlegt eða alls 760 Nm. Jeppinn er
aðeins 4,9 sekúndur í hundraðið sem eru ótrúlegar tölur miðað við svo stóran bíl.
Mercedes-Benz leggur mikið upp úr því að gera þennan glæsivagn sem bestan úr garði og er hvergi slegið af
vandaðri hönnun og gæðum. Meðal staðalbúnaðar má nefna sérlega þægilegt Artico leðuráklæði, loftpúða-
fjöðrun, rafdrifinn afturhlera og sóllúgu. Þá er rafdrifin uppsetning á öftustu sætaröð. Mikið er lagt upp úr öryggi
og má nefna Assist Plus og Crosswind Assist kerfi sem auðveldar m.a. akstur í hliðarvindi.