Fréttablaðið - 17.01.2013, Síða 44
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 28
„Við höfum haldið nýárstónleika
í Salnum árlega frá 2004 en nú
færum við okkur í Kaldalóns-
sal Hörpu og efnum til dansleiks
eftir hlé,“ segir Sigurður Ingvi
Snorrason, klarínettuleikari og
stjórnandi hljómsveitarinnar
Salon Islandus.
„Við gerðum þennan sama hlut
í Miðgarði í Skagafirði í fyrra
með karlakórnum Heimi. Helga
Rós Indriðadóttir stjórnaði kórn-
um og söng ásamt Óskari Péturs-
syni. Það var svo vel heppnað að
við ákváðum að líkja eftir því
og fara í Hörpu til að hafa nóg
pláss,“ upplýsir Sigurður Ingvi.
„Diddú er með okkur og líka
Karlakór Reykjavíkur. Þar eru
miklir vinir okkar hjónanna,
Anna Guðný, kona mín, hefur
verið meðleikari í kórnum í yfir
20 ár og á ferðalögum og í öðrum
selskap hef ég verið eins og ein af
eiginkonunum!“
Hljómsveitina skipa, ásamt Sig-
urði Ingva, þau Sigrún Eðvalds-
dóttir og Zbigniew Dubik á fiðl-
ur, Bryndís Halla Gylfadóttir á
selló, Hávarður Tryggvason á
kontrabassa, Martial Nareau á
flautu, Anna Guðný Guðmunds-
dóttir á píanó og Pétur Grétars-
son á slagverk. „Við ætlum að
vera með um klukkutíma tón-
leika þar sem karlakórinn syngur
með okkur, meðal annars frum-
útgáfuna af Dónárvalsinum sem
Jóhann Strauss skrifaði upphaf-
lega fyrir karlakór en breyttist
síðan í þá mynd sem við heyrum
oftast í dag,“ lýsir Sigurður Ingvi.
„Svo spilar Sigrún Eðvaldsdóttir
alltaf einleik í einu verki á nýárs-
tónleikum og bregður ekki útaf
því nú.“
Í hléinu verður gólfið rutt.
„Fólk fær sér hressingu meðan
það gengur yfir,“ stingur Sig-
urður Ingvi upp á. „Síðan verður
stutt danssýning tveggja para,
annað þeirra er Íslandsmeistari í
samkvæmisdönsum. Svo verður
bara slegið upp balli og þá getur
almenningur svifið í vals, polka
og tangó undir okkar tónum.“
Spurður hvort karlakórinn
verði með hljómsveitinni líka
eftir hlé svarar Sigurður: „Kór-
inn verður auðvitað ekki langt
undan. Konur kórmanna verða í
salnum svo þeir skella sér örugg-
lega í dansinn. En hver veit nema
þeir gefi eitt númer undir lokin.“
Sigurður Ingvi segir ekki hafa
verið settar fram kröfur um sér-
stakan klæðnað á ballinu en
kveðst reikna með að fólk verði
prúðbúið. En hafa farið fram ein-
hverjar dansæfingar? „Nei, en ef
svona dansleikur verður að hefð
gæti það leitt af sér áhuga á slíku.
Það má ekki gleyma því að á þess-
um árstíma eru svona böll úti í
Evrópu, að minnsta kosti í Vínar-
borg þar sem ég þekki til, og eru
búin að vera í að minnsta kosti
í hundrað ár. Þeirra frægast er
auðvitað stóra ballið í ríkisóper-
unni í Vín þar sem austurríska
Fílharmónían spilar fyrir dansi.“
Sigurður Ingvi kveðst vona
að þessi nýbreytni heppnist vel
og tekur fram að Davíð Ólafs-
son söngvari ætli að stjórna sam-
komunni og leiða bæði tónlistar-
fólk og gesti í gegnum dagskrána.
gun@frettabladid.is
Á
þessum
árstíma eru
svona böll
úti í Evrópu,
að minnsta
kosti í
Vínarborg
þar sem ég þekki til, og
eru búin að vera í að
minnsta kosti í hundrað
ár.
Sigurður Ingvi Snorrason, stjórnadi
MENNING
Svifi ð um gólfi ð undir svellandi tónlist
Vínardansleikur verður í Hörpu nú á laugardaginn, 19. janúar, að undangengnum árlegum nýárstónleikum hljómsveitarinnar Salon
Islandus. Þetta er nýjung í reykvísku skemmtanalífi og það er Sigurður Ingvi Snorrason tónlistarmaður sem stendur fyrir henni.
ÞAU SJÁ UM TÓNLISTINA Salon Islandus, Karlakór Reykjavíkur og Diddú leika og syngja sívinsæla Vínartónlist fyrir hlé.
INNKÖLLUN Á
VATNSVÉLUM
Kæru viðskiptavinir.
BYKO hefur innkallað tvær gerðir
af vatnsvélum. Er þetta gert
af öryggis ástæðum, en komið
hefur í ljós að við ákveðnar
aðstæður geta vélarnar
ofhitnað og skapað hættu.
BYKO biður þá sem hafa
keypt slíkar vatnsvélar
hjá okkur að skila þeim í
næstu verslun BYKO gegn
endurgreiðslu.
ÍTREKUN
Vnr. 65105790
Borðvatnsvél.
Vnr. 65105795
Vatnsvél.
MYNNDLIST ★★★ ★★
Aðdráttarafl – hringlaga
hreyfing
Björk Viggósdóttir
HAFNARBORG
Það var líf í tuskunum á opnun
sýningar Bjarkar Viggósdóttur
í Hafnarborg um síðustu helgi.
Sýningin ber heitið Aðdráttar-
afl – hringlaga hreyfing, og börn
og fullorðnir sveifluðu sér í tólf
stórum eins konar hengirólum úr
nælonefni, sem hanga í fjórum
reglulegum röðum í aðalsal safns-
ins. Aðrir reyndu sig við svera og
brakandi nýja kaðla í hliðarsaln-
um uppi, og reyndu að klifra eins
hátt upp og þeir gátu, enda hvetur
listamaðurinn til þess að fólk leiki
sér í verkinu: „Gestum er velkomið
að nota rólurnar og klifra í köðl-
unum. Farið varlega og gætið að
börnunum,“ segir í skilaboðum á
sýningunni.
Daginn eftir opnun var rólegra
um að litast, undirritaður var einn
í salnum og yfirbragðið ólíkt. Nú
var maður eins og Palli sem var
einn í heiminum og gat rólað sér
óáreittur í öllum rólunum og klifr-
að í öllum köðlunum.
Kaðlarnir eru átta talsins og
hengdir upp í hring í salnum. Þeir
eru langir, og neðri endi þeirra
hringast upp á gólfinu, eins og
kóbraslanga hjá slöngutemjara.
„Hringlaga hreyfingin“ heldur
áfram í myndbandi í stóra salnum
þar sem hringlaga form úr pappír
hreyfast hægt í hringi undir seið-
andi tónlist með austrænu ívafi.
Til viðbótar má segja að í hinu
myndbandsverkinu, í hliðar-
salnum hjá köðlunum, sé Björk í
hringlaga hreyfingu einnig. Hún
fer ofan í jörðina í hellaskoðun og
upp í háloftin í flugvél, með við-
komu á jörðinni, hjá sjávarkletti og
blaktandi fánaborg rauðra fána, en
þessar svipmyndir eru síðan spil-
aðar í lúppu, hring eftir hring.
Hér er því í reynd um tvær inn-
setningar að ræða þar sem hlutir,
hljóð og myndir spila saman. Sýn-
ingin er þó ekki eingöngu fyrir
augað, því listamaðurinn er hér
að vinna með hugmyndina um
aðdráttarafl jarðar og togkraft-
ana sem í því felast. Þetta vill
Björk að maður upplifi með því að
róla sér í rólunum og hífa sig upp
á köðlunum, og myndböndin spila
með á ljóðrænan hátt og tákna
m.a. hreyfingu jarðar og augna-
blik í tíma og rúmi. „Aðdráttar-
afl jarðar er öryggisfesting sem
heldur heiminum saman og okkur
á jörðinni. Það þarf tvo krafta til
að halda hlutum á hreyfingu og
togstreitan á milli átaks og hvíld-
ar verður að leiðarstefi hér,“ segir
í texta Klöru Þórhallsdóttur í sýn-
ingarskrá.
Það er heilmikill leikur í þess-
ari sýningu. Hún er áferðarfalleg
og formræn og að mörgu leyti má
segja að verið sé að teikna inn í
rýmið.
Helsti ókosturinn við sýninguna
er að of margir kraftar eru að
verki í einu, sem verður til þess að
meginhugmyndin um togið verður
veikari en ella. Þóroddur Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Það er leikur í sýning-
unni, hún er falleg fyrir skynfærin,
en hugmyndalega skortir upp á
slagkraftinn.
Leikið með togið