Fréttablaðið - 17.01.2013, Page 62
17. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
DRYKKURINN
Kvikmyndin XL verður frumsýnd
á föstudaginn. Hún fjallar um
örlagakafla í ævi þingmanns sem
er skikkaður í vímuefnameðferð.
Í aðalhlutverki er Ólafur Darri
Ólafsson og leikstjóri er Mar-
teinn Þórsson, sem leikstýrði Ólafi
Darra einmitt líka í Roklandi. Með
önnur helstu hlutverk fara María
Birta Bjarnadóttir, Þorsteinn
Bachmann, Helgi Björnsson og
Elma Lísa Gunnarsdóttir.
Aðspurður segir Marteinn það
hafa verið yndislegt að vinna með
Ólafi Darra. „Við náum rosalega
vel saman. Við erum báðir óþol-
andi smámunasamir og viljum
báðir prófa að gera eitthvað nýtt
og ögra okkur,“ segir leikstjórinn.
„Við viljum búa til bíó sem okkur
finnst spennandi og er kraftur í.
Maður hefði getað tekið mynd um
stjórnmálamann og alkóhólista og
gert leiðinda Bergman-drama sem
enginn hefði nennt að horfa á,“
segir hann. „Í staðinn vildi ég gera
hálfgerða „aksjón“-mynd úr þessu
þar sem alltaf er eitthvað í gangi.
Við erum inni í hausnum á honum
[þingmanninum Leifi Sigurðar-
syni] allan tímann. Það mun
engum leiðast á þessari mynd.“
Stikla myndarinnar er sukksöm
í meira lagi þar sem áfengi og
kynlíf fá stóran sess. Marteinn
segir XL vissulega ekki vera fyrir
börn en að unglingar og fullorðn-
ir eigi að geta notið hennar. „Það
eru djarfar senur í henni. Það
fylgir þessu. Maðurinn er svo-
lítill hömluleysingi. Hann er ekki
bara fíkill í áfengi, heldur kynlíf,
mat, völd, peninga og bara allt.
Hann er svolítið rómverskur,“
segir hann og hlær. „Hann er líka
að glíma við skilnað, er með hjá-
konur og svo er ljótt í fortíð hans
sem er rauði þráðurinn í einu aðal-
plottinu.“
Ólafur Darri og Elma Lísa
Gunnarsdóttir komu að máli við
Martein þegar þau léku í Roklandi
um að þau vildu gera mynd um
alkóhólista. Nokkru síðar gerðu
þau saman stuttmyndina Prómill
og í framhaldinu byrjaði Marteinn
að skrifa handritið ásamt
Guðmundi Óskarssyni, höfundi
verðlaunaskáldsögunnar Bankster.
„Þessi mynd er með stærri vísun.
Hún er svolítið um íslenskt sam-
félag og hrun á siðferði. Hún er
dæmisaga alkóhólískrar þjóðar.
Leifur er svolítill samnefnari fyrir
þetta feðraveldi, þá karla sem hafa
verið við völd hér og eru hroka-
fullir, eiga peninga og er dálítið
skítsama um fólkið í kringum sig.“
freyr@frettabladid.is
XL er dæmisaga
alkóhólískrar þjóðar
Kvikmyndin XL fj allar um örlagakafl a í ævi þingmanns sem er á leið í meðferð.
LEIKSTJÓRI Marteinn Þórsson leikstýrði kvikmyndinni XL sem fjallar um þingmanninn Leif Sigurðarson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Upptökur á XL stóðu yfir í aðeins nítján daga í Reykjavík. Það er óvenju
stuttur tími þegar um heila kvikmynd er að ræða. „Við vildum brjótast úr
þessu hefðbundna ferli, þessu langa þróunarferli á bíómyndum. Með nýrri
tækni er þetta mögulegt. Það er svo mikið sem verður til þegar maður
gerir hlutina aðeins hraðar,“ segir Marteinn. „Meiri spenna, meiri æsingur,
meiri gredda og allir eru meira á tánum. Það skilar sér alveg í myndinni.
Þetta mætti alveg gera oftar. Við getum gert myndir sem eru flottar og
„kúl“ og meira okkar, heldur en að apa eftir öðrum, hvort sem það eru
Hollywood- eða evrópskar staðalmyndir.“
Tekin upp á aðeins nítján dögum
„Hann var búinn að vera veikur,
með tannsýkingu og sýkingu í
beinum, og hættur að borða eins
og dýr gera þegar þau gefast
upp. Dýralæknar voru búnir að
meðhöndla hann eins og hægt
var og að lokum tókum við þá
erfiðu ákvörðun um að láta svæfa
hann,“ segir Halldóra Björk
Ragnarsdóttir, rekstrarstjóri
Kattholts, um heimilisköttinn
Bjart sem kvaddi þennan heim á
þriðjudag. Bjartur var mörgum
vel kunnur, enda sinnti hann hlut-
verki móttökustjóra Kattholts.
Bjartur fagnaði fjórtán ára
afmæli sínu í október síðastliðn-
um og náði því hárri elli.
Bjartur fannst á vergangi
í Mosfellsbæ fyrir rúmum
sjö árum og var þá fluttur í
Kattholt. Þar kom í ljós að hann
var örmerktur, en þegar haft
var samband við eiganda hans
vildi sá ekkert með köttinn
hafa. Úr varð að Bjartur sett-
ist að í Kattholti og tók við hlut-
verki heimilis kattar samtakanna.
„Það er mikill sjónarsviptir að
honum Bjarti og við söknum hans
mikið. Hann var alveg einstakur
persónuleiki, ljúfur og góður, og
aldrei neitt vesen á honum. Hann
var hvers manns hugljúfi,“ segir
Halldóra.
Bjartur bjó á Kattholti í sjö
ár og tók við hlutverki heimilis-
kattar samtakanna af Emil. Hall-
dóra segir að tíminn muni leiða í
ljós hvort nýr köttur finnist í þetta
starf. „Það þarf alveg sérstakan
kött í þetta starf, næsti heimilis-
köttur gæti þess vegna verið læða,
þetta erfist ekki í karllegg.“
Fréttablaðið flutti síðast frétt
af Bjarti í október þegar hann
var viðstaddur kynjakatta-
sýningu í þeim erindagjörðum
að safna fé til styrktar Kattholti
sem hefur glímt við nokkra fjár-
hagsörðugleika. Fólk borgaði þá
hundrað krónur fyrir að fá að
klappa Bjarti og á tveimur dögum
safnaði hann yfir hundrað þúsund
krónum með þolinmæðinni einni
saman. - sm
Alveg einstakur
persónuleiki
Bjartur, heimilisköttur Kattholts, kvaddi þennan
heim á þriðjudag. Halldóra Björg Ragnarsdóttir,
rekstrar stjóri Kattholts, segir mikinn söknuð í Katt-
holti enda hafi Bjartur verið ljúfur og góður köttur.
HEIMILISKÖTTURINN Bjartur, heimilisköttur Kattholts, kvaddi þetta líf á þriðjudag.
Hann var titlaður móttökustjóri samtakanna og var mörgum vel kunnur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Í Reykjavík er fullt af góðum
hönnunarverslunum en samt er
smá kimi sem vantar inn í,“ segir
Gunnar M. Pétursson myndlistar-
maður, sem opnar vefverslunina
Skekk innan skamms. Í versluninni
fást helst handunnar hönnunar-
vörur úr náttúrulegum efnivið.
„Ég einblíni á handgerðar vörur
úr náttúrulegum efnivið, ég vildi
bjóða upp á vöru sem unnin er af
vandvirkni og kemur ekki beint
af færibandi. Mér er sérstaklega
í nöp við það sem kallast „throw
away-ismi“ og vil sjálfur helst
kaupa eigulegar vörur
sem börnin mín gætu
erft,“ útskýrir Gunn-
ar. Flestar vörurnar
fann hann á netinu
og segist hann aðeins
selja vörur sem hann
er sjálfur hrifinn af.
Nafn vefverslunar-
innar er viður nefni
sem festist við Gunn-
ar fyrir mörgum árum
síðan. Nafnið er röng stafsetning
orðsins „skegg“. „Við erum margir
Gunnararnir og Skekk var notað
til að aðgreina mig
frá hinum og fest-
ist svo á endanum.“
Sjá má mynd-
ir af vörunum á
facebook.com/
skekkhome. „Síðan
er fyrst og fremst
til að láta fólk vita
hvaða vörur verða
fáanlegar. Ég hef
bara fengið jákvæð
viðbrögð, þeir neikvæðu
hafa greinilega haldið sínum skoð-
unum fyrir sig,“ segir Gunnar. - sm
SKEKK Gunnar M. Pétursson opnar
vefverslunina Skekk innan skamms. Þar
fást handunnar vörur úr náttúrulegum
efnivið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vörur sem börnin geta erft
Gunnar M. Pétursson opnar vefverslun sem selur eigulegar hönnunarvörur.
„Uppáhellt svart kaffi, helst frá
Kaffismiðjunni.“
Hjörtur Matthías Skúlason, nemi í vöru-
hönnun.
HARPA 09.02.13
HOF 16.03.13
HEIÐURS
TÓNLEIKAR
Miðasala á midi.is, harpa.is
og menningarhus.is