Fréttablaðið - 06.02.2013, Síða 2
6. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
ATVINNUMÁL „Við vorum að fá
kvartanir frá einstaka félagsmönn-
um um að ágengni vímuefnasala
væri stundum til óþæginda fyrir þá
í vinnunni,“ segir Arnar Hjaltalín,
formaður Drífanda stéttarfélags,
um fíkniefnapróf sem Vinnslu-
stöðin í Vestmannaeyjum er að láta
starfsfólk sitt gangast undir.
Eins og kom fram í Fréttablaðinu
í gær voru ellefu sjómenn reknir af
þremur skipum Vinnslustöðvarinn-
ar eftir að hafa fallið á fíkniefna-
prófum. Allt starfsfólk fyrirtækis-
ins getur nú átt von á að þurfa að
undirgangast slíkt próf.
Arnar segir fíkniefnaneysluna
hafa verið falið vandamál. Komið
hafi skriður á málið eftir að starfs-
fólk kvartaði undan neyslu sumra
samstarfsmanna. Vinnslustöðin
hafi haft samráð við stéttarfélög-
in um hvernig standa ætti að lyfja-
prófunum. Drífandi hafi þótt full-
víðtækt að senda hvern einasta
starfsmenn í próf en sú aðferð hafi
þó orðið ofan á.
„Kannski er það líka sanngjarn-
ast að láta eitt yfir alla ganga,“
segir Arnar, sem kveður flesta í
Eyjum ánægða með að tekið sá á
málinu. „Það hefur ýmislegt komið
upp á yfirborðið eftir að þetta byrj-
aði. Þetta er rosaleg meinsemd en
umræðan er að opnast. Þetta er
nokkuð sem þarf að taka á og það
er verið að því.“
Að sögn Arnars hafa fíkniefna-
salar á köflum sótt hart að starfs-
fólki Vinnslustöðvarinnar, ekki síst
ungmennum sem fái frí á vertíðum
til að vinna í fiski og hafi þá nokk-
urt fé milli handa.
„Það var orðið þannig að sumir
foreldrar vildu ekki að börnin sín
væru að vinna þarna,“ segir Arnar.
„Það hafa ungmenni hætt þarna út
af því að þau fengu ekki frið fyrir
sölumönnum. Þegar það kom upp
var kýlt á að taka á því. Er Vinnslu-
stöðin ekki einfaldlega að sýna
samfélagslega ábyrgð með því að
taka á þessu?“
gar@frettabladid.is
Það hafa ungmenni
hætt þarna út af því að
þau fengu ekki frið fyrir
sölumönnum.
Arnar Hjaltalín, formaður verkalýðs-
félagsins Drífandi.
Eyþór, eru Dalvíkingar litl-
góðir söngvarar?
„Já. Þeir eru litl-daufu.“
Eyþór Ingi varð um helgina einn af mörgum
Dalvíkingum til að sigra í undankeppni
Eurovision. Orðfæri Dalvíkinga er oft með
þeim hætti að á fárra færi er að skilja þá.
Ungmenni sögð flýja
ágengni fíkniefnasala
Formaður Drífandi stéttarfélags í Vestmannaeyjum segir fíkn hafa verið vanda-
mál hjá Vinnslustöðinni. Fíkniefnasalar beini sjónum að ungmennum og sumir
foreldrar leyfi þeim ekki að starfa hjá fyrirtækinu. Starfsfólkið hafi kvartað.
Samkvæmt sjó-
mannalögum er þetta
bannað þannig að við
getum óskaplega lítið gert
í þessu.
Valmundur Valmundarson,
formaður Sjómannafélagsins Jötuns.
ATVINNUMÁL „Þegar kemur að
öryggi á sjó og í landi er klárt að
allir þurfa að vera allsgáðir,“ segir
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðv-
arinnar í Vestmannaeyjum. Ellefu
sjómönnum af þremur skuttogurum
fyrirtækisins var sagt upp störfum
eftir að þeir féllu á lyfjaprófi.
Sigurgeir segir að fyrir um
einu og hálfu ári hafa verið farið
í gegnum ýmis starfsmannamál
hjá Vinnslustöð-
inni, þar á meðal
mál tengd notk-
un fíkniefna. Ný
stefna hafi þá
verið mörkuð.
„Við gripum
til aðgerða í síð-
ustu viku og
um helgina sem
leiddu til þess
að við sögðum
upp starfsmönn-
um vegna brota á reglum um með-
ferð fíkniefna,“ upplýsir Sigurgeir.
Hann vill ekki segja nánar frá mál-
inu en staðfestir þó að mennirn-
ir hafi verið látnir undirgangast
fíkniefnapróf. „Þetta eru viðkvæm
málefni sem við ætlum ekki að tjá
okkur meira um.“
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins mega starfsmenn í öllum
öðrum deildum Vinnslustöðvarinn-
ar eiga von á því að verða sendir í
fíkniefnapróf. Meðal annars á eftir
að athuga áhafnir tveggja af alls sjö
skipum félagsins. Allir starfsmenn
hafa skrifað undir yfirlýsingu um
að fyrirtækinu sé heimilt að láta
gera slíka próf.
Bæði voru yfirmenn og undir-
menn í hópnum sem fékk reisu-
passann. Meðal þess sem mældist
voru ópíumefni, samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins. Fimm
sjómannanna eru af Drangavík VE
og er það um helmingur áhafnar
þess skips. Síðan voru þrír af Jóni
Vídalín VE og þrír af Brynjólfi VE.
Nokkrir þessara manna leituðu til
Sjómannafélagsins Jötuns í gær til
að kanna rétt sinn í málinu.
„Samkvæmt sjómannalögum er
þetta bannað þannig að við getum
óskaplega lítið gert í þessu. Neysla
eiturlyfja er náttúrulega lögbrot
og mönnum var kynnt í sumar og í
haust að það stæði til að gera þessi
próf,“ segir Valmundur Valmund-
arson, formaður Jötuns, sem kveð-
ur Persónuvernd hafa gefið sína
heimild.
Sumir þeirra sem féllu á lyfja-
prófinu rengja niðurstöðuna. Að
sögn Valmundar fara sýnin því
öll að kröfu Jötuns til skoðunar á
rannsóknarstofu Háskóla Íslands.
„En þessi próf eiga að vera 99,99
prósent örugg,“ bendir formaður
Jötuns á. Hann kveðst sjálfur vera
gamall skipstjóri. „Ég myndi ekki
kæra mig um að hafa menn undir
áhrifum fíkniefna eða áfengis um
borð hjá mér.“ gar@frettabladid.is
Féllu á fíkniefnaprófi
og misstu skiprúmið
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum rak
ellefu sjómenn sem féllu á fíkniefnap
rófi.
Spurning um öryggi segir framkvæm
dastjórinn. Gera á lyfjapróf á öllu star
fsfólki
Vinnslustöðvarinnar sem áður hafði s
amþykkt að gangast undir slíkar rann
sóknir.
f
a
Gildistími korta er um hádegi
ingarfólks og 14,3 prósent stuðning
p
DRANGAVÍK VE Um helmingur áhafnar sk
uttogarans Drangavíkur féll á fíkniefna-
prófi og var strax látinn taka pokann sinn.
MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
SIGURGEIR B.
KRISTGEIRSSON.
■ ■
■
■ ■
DÓMSMÁL Egill Einarsson hefur stefnt þremur ung-
mennum fyrir meiðyrði og krafið hvert þeirra um
eina milljón króna í miskabætur. Málin eru höfðuð
vegna ummæla sem féllu um meint kynferðisbrot
hans, sem ríkissaksóknari felldi niður í fyrra.
Málin eru höfðuð á hendur tveimur stúlkum, 19
og 23 ára, og 21 árs pilti, sem tjáðu sig á Facebook-
síðu sem Nemendafélag Menntaskólans við Hamra-
hlíð kom upp í mótmælaskyni við það að Egill skyldi
prýða forsíðu tímaritsins Monitor í nóvember síðast-
liðnum.
Stúlkurnar fullyrtu að Egill væri sekur um kyn-
ferðisbrot og pilturinn birti mynd af Agli og með-
fylgjandi skilaboð á ensku um að hann væri nauðg-
ari.
Málunum var stefnt fyrir dóm í desember og
þau hafa öll verið þingfest, tvö í Reykjavík og eitt á
Egilsstöðum þar sem önnur stúlkan býr.
Egill var kærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur
stúlkum í lok árs 2011 en málin voru felld niður hjá
ríkissaksóknara. Hann hefur kært aðra stúlkuna og
vinkonur hennar fyrir rangar sakargiftir og stendur
rannsókn þess máls enn yfir hjá lögreglu. - sh
Egill Einarsson stefnir þremur fyrir meiðyrði í kjölfar Monitor-viðtals:
Egill vill þrjár milljónir í bætur
KALLAÐUR NAUÐGARI Þessi mynd, og meðfylgjandi skila-
boð, er ástæða einnar málshöfðunarinnar.
BRETLAND Vísindamenn hafa notað hauskúpuna af Ríkharði III til að
gera eftirmynd af andliti hans, eins og það gæti hafa litið út.
Á mánudaginn var skýrt frá því að rannsóknir á erfðaefni beina-
grindar sem fannst undir bílastæði í Leicester staðfestu að þarna
væru komnar jarðneskar leifar Ríkharðs III.
Meðal annars var erfðaefni úr einum afkomenda hans, Michael
Ibsen, borið saman við erfðaefni úr beinagrindinni. Ibsen mætti þegar
eftirgerð andlitsins var sýnd fjölmiðlum í gær og má sjá greinilegan
ættarsvip með þeim.
„Þetta lítur ekki út fyrir að vera andlit harðstjóra,“ hafði frétta-
vefur BBC eftir Philippu Langley, sem upphaflega hvatti til þess að
leitað yrði að beinagrindinni. „Hann er mjög laglegur.“ - gb
Vísindamenn hafa gert eftirmynd Ríkharðs III:
Líkist varla harðstjóra
RÍKHARÐUR OG AFKOMANDINN Michael Ibsen, einn af afkomendum Ríkharðs III,
virðir fyrir sér hinn umdeilda forföður sinn. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra vinnur nú að sinni eigin samantekt
um komu fulltrúa FBI til Íslands sumarið
2011. Tilefnið er samantekt ríkislögreglu-
stjóra og ríkissaksóknara um málið sem birt
var í fyrradag.
Ögmundur er staddur í Kína og hyggst ekki
tjá sig frekar um málið opinberlega. Hann
sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis í gær og
áréttaði þar að FBI-fulltrúarnir hefðu ekki
komið til landsins með vilja hans og vitund.
Katrín Jakobsdóttir, starfandi innanríkis-
ráðherra, greindi ríkisstjórn frá því í gær
að Ögmundur ynni nú að greinargerð um
málið eins og það horfði við
honum. Greinargerðinni
verður skilað til ríkisstjórn-
ar og utanríkismálanefndar
Alþingis í næstu viku.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, fulltrúi
Sjálfstæðis flokksins í alls-
herjar- og menntamála-
nefnd, sagðist í fréttum
Stöðvar 2 í gær ætla að
óska eftir fundi í nefndinni
um málið og almennt verklag við lögreglu-
samvinnu milli landa.
FBI-mennirnir komu hingað í því skyni að
ræða við ungan pilt sem hafði boðist til að
veita upplýsingar um samtökin Wikileaks.
Þrátt fyrir að Ögmundur
og Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra
hefðu hlutast til um að
íslensk lögregla tæki
ekki þátt í aðgerð-
inni ræddu full trúar
FBI við piltinn í
fimm daga á hótel-
herbergjum í borg-
inni. - sh
Innanríkisráðherra ítrekar að fulltrúar FBI hafi ekki verið hér á landi með vitund hans og vilja:
Ögmundur gerir sína eigin FBI-samantekt
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
F
DÓMSMÁL Héraðsdómur Norður-
lands eystra úrskurðaði í gær tvo
unga menn í gæsluvarðhald fram
til morgundagsins vegna árásar á
afa annars þeirra á Skagaströnd
á sunnudagsmorgun. Lögreglan á
Akureyri hafði farið fram á viku-
langt varðhald en ekki var fallist
á nauðsyn þess.
Árásina má rekja til kynferðis-
brota sem afinn er grunaður um
gegn barnabörnum sínum. Pilt-
arnir tveir, átján og nítján ára,
brutust inn á heimili mannsins
og veittu honum alvarlega höfuð-
áverka. Hann hvílir enn á Sjúkra-
húsinu á Akureyri en er ekki í
lífshættu. - sh
Ekki fallist á varðhald í viku:
Í tveggja daga
gæsluvarðhald
ICESAVE Ólafur
Ragnar Gríms-
son, forseti
Íslands, hyggst
ekki veita nein
viðtöl um niður-
stöðu EFTA-
dómstólsins í
Icesave-málinu.
Þetta kom fram
í fréttum Stöðv-
ar 2 í gær.
Ólafur hefur engin viðtöl veitt
þrátt fyrir beiðnir frá íslenskum
og erlendum fjölmiðlum. Frétta-
stofa Stöðvar 2 fékk það svar frá
Bessastöðum að hann hefði tjáð
sig nóg um málið. - sh
Forsetinn hefur sagt nóg:
Mun ekki tjá
sig um Icesave
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
SPURNING DAGSINS