Fréttablaðið - 06.02.2013, Qupperneq 4
6. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SJÁVARÚTVEGUR Steingrímur J. Sig-
fússon atvinnuvegaráðherra hefur á
grundvelli tillagna Hafrannsókna-
stofnunar ákveðið að heimila veið-
ar á 150 þúsund tonnum af loðnu
til viðbótar við áður útgefnar afla-
heimildir.
Rannsóknarskipið Árni Friðriks-
son hefur að undanförnu verið við
mælingar á stærð loðnustofnsins
úti af Austfjörðum, Norðurlandi og
allt að Vestfjörðum. Enda þótt mæl-
ingunum sé ekki lokið þykir ljóst að
magn kynþroska loðnu á svæðinu
sé nokkuð meira en fyrri mælingar
sýndu. Niðurstöður benda til þess
að hrygningarstofninn sé um 200
þúsund tonnum stærri en mæling-
ar frá því í október 2012 bentu til.
Í kjölfar þeirra mælinga yrði
hrygningarstofn loðnu á vetrar-
vertíð 2013 um 720 þúsund tonn.
Hafrannsóknastofnun lagði því til
í samræmi við aflareglu að leyfðar
yrðu veiðar á 300 þúsund tonnum á
vertíðinni 2012/2013.
Búast má við að leiðangri
Árna Friðrikssonar ljúki síðar í
lok þessarar viku og mun Haf-
rannsóknastofnun í kjölfarið meta
niður stöðurnar og veita stjórn-
völdum ráðgjöf um heildaraflamark
vertíðarinnar. - shá
SLYS „Ég held hreinlega að við séum allmörg-
um árum á eftir okkur sjálfum. Fjöldi ferða-
manna og þeirra sem stunda þessa afþrey-
ingu er orðinn svo mikill að þróunin og
ramminn utan um það er tíu til fimmtán árum
á eftir,“ segir Jónas Guðmundsson, verkefna-
stjóri slysavarna hjá Landsbjörg. Hann telur
að búa þurfi til einhvers konar ramma utan
um ferðaþjónustu og ferðafélög hér á landi.
Fjöldi slysa að undanförnu hefur vakið
upp umræðu um öryggismál í ferðamennsku
og útvist. Nú síðast lést kona í Esjunni um
helgina, en taka skal fram að hún var mjög
vel búin og í skipulagðri ferð. Lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tildrög
slyssins.
Jónas bendir á að hver sem er geti stofnað
ferðaklúbb og auglýst gönguferðir án þess að
því fylgi nokkrar skyldur, nema ætlast sé til
þess að fólk útvegi sér ferðaskipuleggjenda-
leyfi. Engin krafa er gerð um búnað, reynslu,
menntun eða neitt slíkt. „Það er kannski þetta
sem við þurfum að stíga stærri skref í.
Það sem er auðvitað aðalmálið er að það
þarf að útbúa ramma um þetta. Sá rammi
þarf að vera bæði í atvinnugreininni ferða-
þjónustu og líka í því sem við getum kallað
hálfatvinnugrein, ferðafélög og göngu-
klúbbar. Alls staðar þar sem þú kaupir þig inn
í eitthvað og færð einhverja þjónustu á móti.
Er fólkið að kaupa gæðaþjónustu? Í flestum
tilvikum er það svo, en við verðum samt að
opna á þessa umræðu.“
Jónas segir það skjóta skökku við að senda
fólk á erfið fjöll við oft erfiðar aðstæður, og
þeir sem bera ábyrgðina þurfi ekki neitt leyfi
til þess. „Þú ferð ekki að nudda fólk án þess
að hafa til þess leyfi og færð ekki að keyra
fólk í leigubíl innanbæjar án þess að hafa
menntun.“
Stór hluti af útköllum Landsbjargar tengist
ferðaþjónustu, að sögn Jónasar. „Við erum
virkur aðili í ferðaþjónustu, ef það má orða
það þannig, og við teljum okkur geta komið
með ýmislegt inn í þá umræðu.“
Landsbjörg heldur úti vefnum Safe travel
þar sem hægt er að fræðast um ýmislegt
er viðkemur útivist. Ferðamálastofa hefur
einnig stigið skref í átt að auknu öryggi með
gæða- og öryggiskerfinu Vakinn. Til að fá
gæðaviðurkenningu frá Ferðamálastofu
þarf því að uppfylla ákveðnar kröfur, meðal
annars um öryggisáætlanir og menntun og
reynslu starfsmanna.
Þá er til umfjöllunar í þinginu frumvarp að
lögum um skipan ferðamála, þar sem tekið er
á einhverjum þessara mála. thorunn@frettabladid.is
232,265
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,40 127,00
199,51 200,47
171,16 172,12
22,943 23,077
23,081 23,217
19,999 20,117
1,3593 1,3673
194,34 195,50
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
05.02.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
LEIÐRÉTT
Í dálknum Frá degi til dags í Frétta-
blaðinu á föstudaginn var farið rangt
með nafn og titil Sigurðar Harðarsonar.
Hið rétta er að hann er stjórnarmaður
í Sjálfstæðisfélaginu í Grafarvogi, ekki
formaður. Formaðurinn heitir Emil Örn
Kristjánsson. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Föstudagur
10-15 m/s NV-lands og hlýnar.
KAFLASKIPT Í dag hvessir um tíma suðvestan- og vestanlands með úrkomu en í
öðrum landshlutum verður hægari vindur, nokkuð bjart fram eftir degi en skýjað
síðdegis. Á morgun lítur út fyrir hæglætisveður víða og á föstudaginn hvessir á ný V-til.
-2°
4
m/s
0°
11
m/s
0°
6
m/s
6°
10
m/s
Á morgun
Strekkingur syðst, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
6°
4°
2°
0°
1°
Alicante
Aþena
Basel
16°
15°
9°
Berlín
Billund
Frankfurt
2°
2°
3°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
2°
1°
1°
Las Palmas
London
Mallorca
20°
6°
13°
New York
Orlando
Ósló
3°
24°
-2°
París
San Francisco
Stokkhólmur
6°
14°
-2°
0°
2
m/s
3°
3
m/s
-3°
2
m/s
-3°
4
m/s
0°
4
m/s
0°
6
m/s
-6°
4
m/s
2°
0°
0°
1°
-2°
Íslendingar eru mörgum
árum á eftir í öryggismálum
Ferðamenn og þeir sem stunda fjallgöngur og þess konar útivist eru orðnir svo margir að ramminn utan um
iðjuna er tíu til fimmtán árum á eftir. Skoða þarf öryggismálin segir verkefnastjóri hjá Landsbjörgu.
VIÐ BJÖRGUNARAÐGERÐIR Stór hluti af útköllum
Landsbjargar tengist ferðaþjónustu og félagið er virkur
aðili í ferðaþjónustu, að sögn Jónasar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Milford Track í Nýja-Sjálandi er leið sem er mjög áþekk Laugaveginum, 55 kílómetrar og fjórar
dagleiðir. Þar má bara ganga aðra leiðina, það verður að gista í skálum, það verður að kaupa leyfi til
að ganga leiðina og aðeins ákveðinn fjöldi má fara hana á hverjum degi. Svipað á við ef fara á um
Inkaslóðir í Perú. Þessi stýring er alls staðar. Hún er góð svo fremi sem hún skerðir ekki frelsi manna.
Stýringin er komin til að vernda fólkið sjálft, tryggja öryggi og vernda náttúruna.“
Stýring til að vernda fólk og náttúru
Þú ferð ekki að
nudda fólk án þess að
hafa til þess leyfi og
færð ekki að keyra fólk í
leigubíl innanbæjar án
þess að hafa menntun.
Jónas Guðmundsson
verkefnastjóri slysavarna hjá Landsbjörg
Atvinnuvegaráðherra fylgir ráðgjöf Hafró og bætir við loðnukvótann:
Bætt við 150.000 loðnutonnum
MIÐ-AMERÍKA Í vetur hefur ryð-
sveppur herjað af miklu kappi á
kaffiplöntur í Mið-Ameríku með
þeim afleiðingum að þriðjungur
kaffiuppskerunnar er í hættu.
Þar með er lifibrauði fjölda
fólks í álfunni í voða stefnt, en
um ein og hálf milljón manna
starfar við kaffirækt í ríkjum
Mið-Ameríku.
Ryðsveppur er kenndur við
ryð vegna þess að blöð kaffi-
plöntunnar verða ryðbrún í stað-
inn fyrir græn. - gb
Kaf iræktendur örvænta:
Sveppur herjar
á kaffiplöntur
GLÍMT VIÐ RYÐSVEPPINN Verka-
maður á kaffiplantekru í Hondúras
gróðursetur kaffiplöntu. NORDICPHOTOS/AFP
SVÍÞJÓÐ Sænskir neytendur eru
hvattir til að gæta varúðar við
kaup á innfluttum notuðum bílum.
Glæpasamtök í Evrópu kaupa bíl-
garma, oft frá Bandaríkjunum, og
gera þá upp.
Sænska lögreglan telur að
þessir bílar geti verið hættulegir
í umferðinni þar sem oft hafi ekki
verið gert nægilega vel við þá.
Í fyrra voru 65 þúsund bílar frá
Bandaríkjunum í Svíþjóð. Af þeim
höfðu 12 þúsund orðið fyrir tjóni
áður en þeir voru fluttir inn. - ibs
Glæpasamtök selja bíla:
Bílgarmar í
umferðinni
450.000
tonn er heildarloðnukvóti
eft ir að afl aheimildar voru
auknar í gær..
LÖGREGLUFRÉTTIR
Eldur í Álftamýri
Hús að Álftamýri var rýmt eftir klukkan
þrjú í gær þegar eldur kom upp í
uppþvottavél. Slökkvilið var kallað á
staðinn en búið var að slökkva mestan
eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang.
Slökkvistarf gekk greiðlega og lauk með
því að húsið var reykræst.