Fréttablaðið - 06.02.2013, Qupperneq 8
6. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
EcoFuel-tæknin nýtir bensín og metangas og sparar þannig allt að 46% af eldsneytis-
kostnaði. Metanbílar eru umhverfisvænir og bera því engin aðflutningsgjöld. Þeir sem
kaupa verksmiðjuframleiddan Volkswagen Passat metanbíl í febrúar fá frítt metangas
í eitt ár*. Að auki fá eigendur Passat EcoFuel frítt í stæði í Reykjavík ásamt því að njóta
hagstæðari kjara á lánum hjá fjármögnunarfyrirtækjum.
Passat Variant kostar aðeins frá
4.690.000 kr.
Passat Variant EcoFuel Comfortline Plus, 150 hestafla, beinskiptur.
www.volkswagen.is
Lækkaðu eldsneytiskostnaðinn
um allt að 46%
Metan 9.843 kr.
Dísil 13.801 kr.
Bensín 18.242 kr.
**Miðast við eldsneytisverð eins og skráð er hjá Olís og Metan
31. janúar 2013.
Eldsneytiskostnaður
Volkswagen Passat
á hverja 1.000 km**
*Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu var meðalakstur fólksbíla
12.255 km árið 2011. Miðað við 6,6 m3 meðaleyðslu Passat EcoFuel er árlegur
eldsneytiskostnaður því 120.000 kr. miðað við verð á metani 31. janúar 2013.
Tilboð í febrúar.
Frítt metan í eitt ár!
DÓMSMÁL Almennir borgarar
hafa í auknum mæli freistað þess
að taka lögin í sínar hendur síð-
ustu misseri, að mati lögreglu, og
jafnvel beitt ofbeldi til að rétta
sinn hlut eða annarra sem þeim
finnst hafa verið brotið á. Þetta
eigi þó aðeins við um kynferðis-
afbrotamál. Fræðimaður segir
þróun til aukins hömluleysis í
þessum málum mega rekja aftur
til áranna fyrir hrun.
„Við erum með tvö nýleg tilfelli
sem tengjast kynferðisafbrota-
málum, annars vegar á Skaga-
strönd og hins vegar á Eyrar-
bakka, en svo kom líka upp svipað
mál í okkar umdæmi á Þórs-
höfn í fyrra. Þetta veldur okkur
áhyggjum og að okkar mati er
þetta ótækt. Þó svo að einstak-
lingar hafi talið á sér brotið eða
telji að þeir hafi verið beittir mis-
rétti er þetta ekki lausnin,“ segir
Gunnar Jóhannsson, yfirmaður
rannsóknardeildar lögreglunnar
á Akureyri, í samtali við Frétta-
blaðið.
Gunnar bætir því við að
almenningur verði að átta sig
á því að til séu réttar leiðir til
úrlausnar, meðal annars í gegn-
um dómskerfið. Hefndaraðgerðir
séu aldrei til bóta og geti haft víð-
tækar og slæmar afleiðingar auk
þess sem sumir sem grípa til slíks
koma til með að dauðsjá eftir öllu.
„Við hvetjum fólk til að halda ró
sinni og forðast það að taka ger-
ræðislegar ákvarðanir sem verða
til þess að maður gerir eitthvað
sem erfitt er að taka aftur síðar.“
Helgi Gunnlaugsson, prófessor
í félagsfræði við Háskóla Íslands,
rekur aukningu í þessum málum
til tveggja meginþátta. Annars
vegar er það fráhvarf frá þöggun
um kynferðisafbrot og hins vegar
aukið hömluleysi í viðbrögðum
Brot gegn börnum hafa
kallað á hömlulaus viðbrögð
Lögregla verður vör við að fólk reyni að taka lögin í sínar hendur. Félagsfræðingur rekur ástandið aftur til
samfélagsbreytinga frá því fyrir hrun. Nauðsynlegt sé þó að beisla reiðina og treysta á að kerfið virki.
Allnokkur tilfelli hafa komið upp á síðustu misserum þar sem ofbeldisverk
tengjast kynferðisbrotamálum auk þess sem nafngreint fólk hefur verið
sakað opinberlega um kynferðisbrot.
➜ 11. febrúar 2012– Þórshöfn Ungur maður gengur í skrokk á eldri manni.
Segist vera að hefna fyrir kynferðisbrot mannsins gagnvart sér.
➜ 12. janúar 2013– Stokkseyri Skemmdir unnar á íbúð manns sem er í
haldi lögreglu, grunaður um kynferðisbrot gegn þremur ungum börnum.
➜ Janúar 2013– Kópavogur Íbúi í Kópavogi dreifir blaði með mynd og
nafni nágranna síns, þar sem hann er sakaður um kynferðisbrot gegn
stúlku mörgum áratugum áður.
➜ 2. febrúar 2013– Eyrarbakki Skotið af byssu inn um glugga hjá konu
sem sakaði áður fyrrverandi stjúpföður sinn um kynferðisbrot gegn sér.
➜ 3. febrúar 2013– Skagaströnd Ungur maður misþyrmir afa sínum við
annan mann. Afinn hefur verið kærður fyrir brot gegn öðru barnabarni.
➜ 2013 Stofnaðar hafa verið síður á Facebook þar sem birtar eru myndir af
mönnum sem sakaðir eru um kynferðisbrot gegn börnum. Í athugasemd-
um er talað um að vinna mönnunum mein á ýmsan hátt.
Sex nýleg dæmi um hömluleysi?
REIÐINA SKYLDI HEMJA Lögreglan
hefur orðið vör við aukna tíðni þess að
fólk taki lögin í sínar hendur í kynferðis-
afbrotamálum. Fræðimaður segir
hömluleysi ríkja en það að svara harm-
leik með öðrum harmleik geri málin
enn verri. Myndin er sviðsett.
fólks, sem hann tengir breyting-
um og uppgjöri í samfélaginu sem
reka má til aðdraganda hrunsins.
„Þessi umræða um kynferðis-
brot gegn börnum undanfarið
hefur losað um eitthvað í þjóð-
arsálinni og viðbrögðin hafa oft
verið hömlulaus. Þar er fólk að
fara fram úr sér og gerir einungis
illt verra með því að svara harm-
leik með öðrum harmleik og það
er dapurlegt að horfa upp á.“
Helgi segir að í slíkum tilfellum
sé nauðsynlegt að beisla reiðina og
beina henni inn í eðlilegan farveg.
„Ef við leyfum reiðinni að ná
stjórninni getur það haft ófyrir-
séðar afleiðingar. Kerfið er
kannski illa búið eins og er en þá
verðum við, sem samfélag, að taka
á því. Samfélaginu verður að vera
ljóst að kerfið megni að sjá um
þessi mál.“
thorgils@frettabladid.is
KÍNA Dómstóll í Peking hefur
veitt bandarískri konu skilnað
á grundvelli heimilis ofbeldis
og skipað fyrir um að konan
fái þriggja mánaða vernd gegn
manninum. Málið hefur vakið
mikla athygli, enda í fyrsta skipti
sem konu er veitt þessi vernd í
borginni.
Konan, Kim Lee, greindi opin-
berlega frá ofbeldinu sem hún
varð fyrir af hendi eiginmanns
síns, Li Yang. Li er þekktur millj-
arðamæringur í Kína.
Litið er á dóminn sem jafn-
réttis sigur, þar sem skilnaður
er enn sjaldan veittur vegna
heimilis ofbeldis í Kína. - þeb
Fékk vernd frá eiginmanni:
Skilnaður í
Kína tímamót
STJÓRNSÝSLA Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra er nú staddur
í Kína til að sinna hinum ýmsu
málefnum. Meðal annars ætlar
ráðherrann ásamt liði sínu að eiga
fundi með kínverskum ættleið-
ingarfélögum til að efla tengsl og
samskipti milli landanna.
Kristinn Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar ættleið-
ingar, fagnar ferð Ögmundar og
segir afar mikilvægt að styrkja
samstarfið milli landanna. „Það
er nauðsynlegt að eiga gott sam-
starf við upprunalöndin og
partur af því sem við vorum að
kvarta yfir í fyrra að við hefðum
ekki möguleika á. Svo þetta er
alveg frábært,“ segir hann. - sv
Innanríkisráðherra í Kína:
Efla tengsl fyrir
ættleiðingarnar