Fréttablaðið - 06.02.2013, Blaðsíða 19
DÝRUSTU BORGIRNAR
Economist hefur birt lista yfir dýrustu og ódýrustu
stórborgirnar. Dýrast er að vera ferðamaður í Tókýó
í Japan, þá Osaka þar í landi og í þriðja sæti er
Sydney í Ástralíu. Ódýrasta stórborgin er Karachi í
Pakistan. Sjá nánar á turisti.is.
Við ætlum að finna gott gil, fullt af snjó, og gera þar alls konar snjóhúsatilraunir; athuga hvort
manni verði kalt eða heitt inni í snjó-
húsi og ímynda okkur hvort hægt sé að
sofa í því,“ upplýsir leiðsögumaðurinn
Brynhildur Ólafsdóttir, sem ætlar í snjó-
húsaferð og ljósagöngu með Ferðafélagi
barnanna á föstudaginn kemur.
Ferðafélag barnanna er deild innan
Ferðafélags Íslands og er ferðin hluti af
Vetrarhátíðinni Magnað myrkur. Hún
tekur um þrjár til fjórar klukkustundir.
„Tilgangur Ferðafélags barnanna er
að stuðla að skemmtilegri útivist og að
fjölskyldan eigi gefandi stundir saman.
Ferðirnar eru gríðarlega skemmtilegar
og ætíð skapast mikil og góð stemning
meðal barna og fjölskyldna þeirra,“ út-
skýrir Brynhildur um ferðirnar sem eru
mislangar og aldrei erfiðar.
„Við höfum farið í villibað í Reykja-
dal, ratleik sem endaði á Nesja völlum,
gengið inn í Búrfellsgjá þar sem allir
prófuðu klifur í línu, hellaferðir, grasa-
ferðir, fuglaferðir og fleira. Í hverri
ferð hægjum við á göngunni til að gera
eitthvað skemmtilegt saman og fáum
iðulega fræðslu frá grasalækni, fugla-
fræðingi, formanni Hellarannsókna-
félagsins eða öðrum sem veitt geta
fræðslu í samræmi við þema ferðanna,“
segir Brynhildur.
Ferðafélag barnanna fer einnig í
lengri ferðir og mýmargt áhugavert er
fram undan á nýja árinu.
„Í sumar ætlum við meðal annars í
fjölskyldugöngu yfir Laugaveg og aftur
yfir gamla Kjalveg, sem er sannkölluð
ævintýraferð. Þá er siglt á Hvítárvatni,
gengið á milli þriggja skála og endað á
Hveravöllum,“ útskýrir Brynhildur
BARNAGULL Í SNJÓ
SNJÓHÚSAFERÐ OG LJÓSAGANGA Á föstudaginn ætlar Ferðafélag barnanna
í rannsóknarleiðangur með skóflur og ljós í ægifagurt vetrarríkið við Bláfjöll.
FARARSTJÓRINN
Brynhildur Ólafsdóttir.
ÍSLENSKT FÖNN Flestir krakkar hafa gaman af því að leika sér í snjó eins og sjá má á snjóugri og ofsakátri Láru Róbertsdóttur í einni
af vetrarferðum Ferðafélags barnanna. MYND/FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
KOMDU MEÐ!
Farið verður á einkabílum
frá skrifstofum Ferða-
félags Íslands í Mörkinni
6 á föstudaginn klukkan
15. Allir mæta með
skóflur og ljós. Þátt-
taka er ókeypis og allir
velkomnir.
Sjá nánar á www.ferda-
felagbarnanna.is
Af hverju D Lux 1000?
Eins og náttúran hafði í hyggju
Áríðandi tilkynning! D vítamín birgðir
Íslendinga eru í lágmarki nú í skammdeginu
DLUX1000 er byltingarkennt D-vítamín í munnúðaformi
Tryggir hámarksnýtingu !
D vítamín til daglegra nota
Hentar öllum aldri
Náttúrulegt piparmyntubragð
3
mánaða
skammtur
magnaða
sólarvíta-
mínið
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Margar gerðir af búningasilfri.
Þetta er ódýrasta mynstrið. Allt sem þarf á upphlutinn,
settið frá 90.530, kr.
Allar upplýsingar um hefð og
gerðir búninga eru veittar á staðnum.
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Sérverslun með
kvensilfur
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Hugsaðu vel um fæturna
Sími 551 2070
Opið mán.-fös. 10-18.
Í meira en hálfa öld hafa milljónir manna
um allan heim notað BIRKENSTOCK®
sér til heilsubótar. Hvað um þig?
Teg: Arisona. St. 35 – 48. Verð: 12.885,-