Fréttablaðið - 06.02.2013, Síða 21
Annað árið í röð á spænski arkitektinn
Marcos Zotes opnunaratriði
Vetrarhátíðarinnar í Reykjavík. Eddi
Egilsson úr hljómsveitinni Steed Lord
semur tónlist við verkið en þetta er í
fyrsta sinn sem hann fram fram sem
sólólistamaður.
V
etrarhátíð í Reykjavík hefst
fimmtudaginn 7. febrúar og stend-
ur yfir til sunnudags. Borgar-
stjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr,
mun setja hátíðina með formlegum hætti á
Austurvelli á fimmtudegi kl. 19.30 og verð-
ur opnunaratriði hátíðarinnar sérstaklega
glæsilegt. Um er að ræða verkið „PIXEL
CLOUD“ eftir spænska arkitektinn Marcos
Zotes sem mun umbreyta Austurvelli í stór-
brotna upplifun ljóss, lita og hreyfingar við
tónlist Edda Egilssonar úr hljómsveitinni
Steed Lord sem þar kemur í fyrsta sinn fram
sem sólólistamaðurinn Cosmos.
VANN SAMKEPPNINA AFTUR
Höfuðborgarstofa, Orkusalan og Hönnunar-
miðstöð Íslands stóðu fyrir samkeppni um
opnunaratriði hátíðarinnar og er þetta annað
árið í röð sem Marcos Zotes vinnur sam-
keppnina. Í fyrra framkallaði hann kraft-
mikla og sjónræna upplifun þegar hann
breytti framhlið Hallgrímskirkju með eftir-
minnilegum hætti. Marcos Zotes starfar sem
arkitekt á arkitektastofunni Basalt arkitekt-
ar í Reykjavík. „Ég hef unnið að verkefninu
„PIXEL CLOUD“ undanfarna tvo mánuði
og hef nýtt kvöld og helgar í þá vinnu. Ég
rek hönnunarstúdíóið UNSTABLE í Topp-
stöðinni í Elliðaárdal og þar hef ég unnið
með mismunandi ljósatækni og ólík efni til
að varpa ljósum á. Það verður einnig mjög
spennandi að vinna með tónlistarmanninum
Edda Egilssyni. Hann kemur hingað til lands-
ins til að flytja sólóverkefni sitt sem passar
fullkomlega við verkið mitt. Það er einnig
mjög gleðilegt að vinna aftur með fyrirtæk-
inu Luxor, sem veitir mér frábæran tækni-
legan stuðning við gerð verkefnisins.“
MYND OG TÓNLIST KOMA SAMAN
Eddi Egilsson, meðlimur Steed Lord, hefur
verið búsettur í Bandaríkjunum undan-
farin ár ásamt öðrum meðlimum hljóm-
sveitarinnar. Hann hlakkar mikið til að
spila í fyrsta skiptið einn undir listamanns-
nafninu Cosmos. „Músíkin er mjög lifandi og
á því mjög vel við listaverkið hans Marcos
þar sem mynd og tónlist koma saman í gagn-
virkum þrívíddarheimi. Cosmos er rafræn
tónlistarsaga sem tekur áhorfandann á flug
út í alheiminn. Ég mun leiða tóna í gegnum
hljóðgervil, trommuheila og fleiri hljóðfæri.
Ég hvet alla til að mæta og upplifa þennan
skemmtilega heim með eigin augum.“
Vetrarhátíð í Reykjavík hefur verið hald-
in árlega frá árinu 2002 og er markmið henn-
ar að lýsa upp mesta skammdegið á þessum
dimma árstíma með ýmsum skemmtilegum
viðburðum og uppákomum. Fjölbreytt dag-
skrá er í boði þessa daga fyrir alla aldurs-
hópa og er ókeypis inn á alla viðburði. Nánari
upplýsingar má finna á www.vetrarhatid.is.
Glæsileg byrjun á Vetrarhátíð
Eddi Egilsson, meðlimur Steed Lord, semur tónlist-
ina við opnunaratriði Vetrarhátíðarinnar.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Spænski arkitektinn Marcos Zotes samdi opnunaratriði Vetrarhátíðarinnar í Reykjavík sem verður sett á
fimmtudaginn. MYND/VILHELM
Opnunaratriði Marcos Zotes mun umbreyta Austurvelli í stórbrotna upplifun ljóss, lita, hreyfingar og tónlistar.
MYND/ÚR EINKASAFNI
VETRARHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
7.–10. febrúar 2013
v etr a rhat i d . i s