Fréttablaðið - 06.02.2013, Blaðsíða 22
6. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR2 ● Vetrarhátíð
www.bilastaedasjodur.is
Vitatorg
KolaportRáðhúsið
Traðarkot
Vesturgata
Stjörnuport
Bílahúsin
Opin 7-24
alla daga
P
BÍLASTÆÐASJÓÐUR
Save the Children á Íslandi
Safnanæturstrætó flytur
gesti Vetrarhátíðar á milli
safna að venju. Í tveimur
strætisvögnum verður
listahópurinn S.L.Á.T.U.R.,
Samtök listrænt ágengra
tónsmiða umhverfis Reykjavík,
með innsetningu. Áki
Ásgeirsson, Jesper Pedersen
og Magnús Jensson eru
höfundar verksins.
„Við ætlum að koma fyrir bún-
aði, hátölurum og skjáum, aftast
í strætóunum og tengja þá þann-
ig saman með hljóði og mynd,“ út-
skýrir Áki. Vagnarnir verða því
nokkurs konar framhald hvor af
öðrum. „Maður sér úr einum vagn-
inum yfir í hinn og heyrir jafn-
framt hljóðið í báðum vögnunum
um leið. Við þetta verða til nokk-
urs konar ormagöng eða vítahring-
ur þar sem hljóðin fara inn í einn
strætó og síðan aftur yfir í hinn.“
Listahópurinn kemur því ekki
fram sem flytjandi heldur stend-
ur fyrir þessari mynd- og hljóðinn-
setningu. „Það er þó aldrei að vita
nema eitthvað óvænt gerist sem
við stuðlum að.“
Markmið S.L.Á.T.U.R. er að
kynda undir nýmælum í tón-
menningu Reykjavíkur og ná-
grennis. Samtökin hafa verið leið-
andi í nýsköpun tónlistar og verið
sameiginlegur vettvangur frum-
legustu tónskálda Íslands. Lista-
hópurinn hefur meðal annars verið
með uppákomur á ýmsum söfnum
og galleríum í gegnum tíðina og
tengist þannig vel Vetrarhátíðinni.
„Við teygjum anga okkar inn í
safnaheiminn gegnum hljóðlist
sem á rætur bæði í tónlistar- og
myndlistarheiminum. Ýmsir, bæði
með bakgrunn í tónlist og myndlist
hafa verið að fást við innsetningar,
hljóðgjörninga, hljóð skúlptúra, ný-
smíðar í hljóðfærum og gjörninga-
flutningslist,“ upplýsir Áki. Því
þótti hópnum til valið að kynna far-
þega Strætó fyrir þessu listformi.
„Í staðinn fyrir að koma með
hljómsveit inn í strætisvagn vild-
um við benda fólki á alla músík-
ina sem er í strætó,“ segir Áki og
bendir á að bæði myndlistar- og
tónlistarmenn vinni margir ötul-
lega að því að benda á listina sem
þegar er til staðar í umhverfinu.
„Það er jákvæð þróun. Öfugt við
að setja listina á einhvern stall
sem fólk þarf að horfa á úr fjar-
lægð, þá er maður inni í listinni
og partur af því að búa hana til.
Fólkið sem ferðast með þessum
tveimur strætisvögnum á Vetrar-
hátíð verður sjálfkrafa partur af
verkinu.“
Umhverfið myndar tónlist
Þeir Áki Ásgeirsson, Magnús Jensson og Jesper Pedersen undirbúa innsetningu sína í
Strætó með því að mæla fyrir tækjabúnaðinum. MYND/VALLI
Vetrarhátíð verður
að þessu sinni haldin
dagana 7.–10. febrúar,
eða frá fimmtudegi
til sunnudags. Yfir-
skrift hátíðarinnar í
ár er Magnað myrk-
ur og að venju lýsir
hátíðin upp vetrar-
myrkrið með viðburð-
um og uppákomum af
ýmsu tagi. Dagskrá-
in er fjölbreytt og gefst borgar-
búum og gestum tækifæri til að
taka þátt í henni sér að kostnað-
arlausu.
Vetrarhátíð í Reykjavík er
fjölskylduskemmtun sem ein-
kennist af sköpunargleði, hug-
kvæmni og listrænni tjáningu.
Hátíðin verður sett á Austurvelli
með verkinu „PIXEL CLOUD“
eftir arkitektinn Marcos Zotes
sem umbreytir Austurvelli í
stórbrotna upplifun ljóss, lita og
hreyfingar við tónlist frá „Cos-
mos“ sem er hugarfóstur Edda
Egilssonar úr Steed Lord.
Segja má að fjórar styrkar
stoðir beri hátíðina uppi í ár.
Þar ber fyrst að nefna Safna-
nótt sem nær yfir sex sveitar-
félög og fjörutíu söfn. Á Safna-
nótt gengur safnastrætó á milli
safnanna til að auðvelda gestum
að heimsækja söfnin. Þá er það
Sundlauganótt þar sem borgar-
búum verður boðið frítt í sund
og að upplifa magn-
aða listviðburði sem
verða í ýmsum form-
um í sundlaugunum.
Heimsdagur barna
verður í Gerðubergi
og þar verða margar
spennandi listasmiðj-
ur fyrir börn og ung-
linga. Hátíðinni lýkur
svo með Kærleik-
um á Austurvelli á
sunnudag. Kærleikarnir minna
okkur á samkenndina og allt það
fallega sem tengir okkur saman.
Um alla borg verða svo almenn
dagskráratriði þar sem sjá má
þverskurð af spennandi við-
burðum. Sem dæmi má nefna að
fluttur verður snjór úr Bláfjöll-
um í Grasagarðinn og finnski
umhverfislistamaðurinn Timo
Jokela mun útbúa úr honum ís-
listaverk. Það verður skemmti-
legt að fylgjast með því.
Að lokum hvet ég alla til að
mæta á Vetrarhátíð og njóta alls
þess sem okkar góða borg hefur
upp á að bjóða. Hátíðin hentar
ungum jafnt sem öldnum og ég
vona að sem flestir nýti tæki-
færið til samveru og skemmt-
unar.
Sjáumst hress og kát á
Vetrarhátíð!
Jón Gnarr
borgarstjóri í Reykjavík
Góðir Reykvíkingar
● SPILAVINIR VERÐA Í RÁÐHÚSINU Spila-
vinir er verslun með spil og púsluspil á Langholtsvegi.
Síðustu ár hafa Spilavinir mætt á bekkjarkvöld og
kennt börnum og foreldrum þeirra aragrúa af spilum.
Kvöldin hafa vægast sagt slegið í gegn. Mark miðið
með spilakvöldum er að skapa gleði hjá foreldrum
og börnum og kenna þeim að njóta samverunnar yfir
skemmtilegu spili.
Spilavinir verða nú í Ráðhúsinu á Vetrarhátíð 9. og
10. febrúar frá 13 til 17. Hinir stórskemmtilegu og
reyndu starfsmenn Spilavina mæta á svæðið með úrval
borðspila og smáspila sem þeir munu kenna gestum
og gangandi.
Spil eru ódýr og skemmtileg afþreying sem kyn-
slóðirnar geta auðveldlega sameinast um.
Spilavinir hvetja alla – börn, foreldra, afa, ömmur
og góða vini, til að taka þátt í þessum skemmtilega
viðburði sem sameinar alla í fjölskylduvænum borð-
spilum.
● SKUGGASKÓGUR Í ÖSKJUHLÍÐ Massimo
Santanicchia, kennari í arkitektúr við Listaháskóla Íslands,
fékk þá hugmynd að lýsa upp skóginn í Öskjuhlíðinni og
gefa fólki færi á að upplifa hann í nýju ljósi. „Ég hef oft
farið í skóginn í Öskjuhlíð í vetur og þar er aldrei neinn á
ferli. Fólk fer ekki inn í hann í myrkri, svo mér datt í huga
að gefa því færi á því að njóta skógargöngu í myrkrinu
með því að planta litlum ljósum hér og þar og búa til
skuggaskóg,“ segir Massimo.
Það er Osram sem styrkir verkefnið og lætur til
LED-perur sem fá orku sína úr rafhlöðum. Leiðsögufólk
frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur mun svo bjóða upp á
leiðsögn um svæðið og er fólk hvatt til að hafa vasaljós
með sér. „Við búum í borg þar sem ljósmengun er mikil
en í skóginum er myrkur. Með ljósunum langar mig
að undirstrika náttúru skógarins betur, en ljósin skapa
skugga sem stækka hann, ýkja og draga fram náttúruna.“
Föstudag, laugardag og sunnudag frá 18 til 19 og
frá 20 til 21 verða farnar ævintýraferðir um kynjaveröld
Öskjuhlíðar með leiðsögn. Hver ganga hefst við kaffi-
húsið Nauthól Bistro, Nauthólsvegi 106, og endar við
Perluna.