Fréttablaðið - 06.02.2013, Qupperneq 26
6. FEBRÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR6 ● Vetrarhátíð
19.00-22.00
Föndursmiðja sjóræningjanna
Komdu og búðu til þitt eigið sjóræn-
ingjaskip! Allt efni á staðnum.
19.00-22.00
Fjársjóðsleit í Sjóræningjasafninu
Ratleikurinn samanstendur af léttum
spurningum og þrautum um skipið fyrir
yngsta aldurshópinn. Hver veit nema
þar á meðal verði einn sjóræningi eða
svo?
19.00-24.00
Málverkasýning
Félag frístundamálara opnar málverka-
sýningu í Verbúð og Betri stofu.
SÖGUSAFNIÐ Í PERLUNNI,
ÖSKJUHLÍÐ
Kl. 19.00-24.00
Vígalegir víkingar
Víkingar frá Rimmugýg heimsækja
Sögusafnið, sýna vopn sín og fatnað,
spjalla við gesti og skemmta.
TÓNLISTARSAFN ÍSLANDS,
HÁBRAUT 2, 200 KÓPAVOGUR
19.00-24.00
… dans á eftir
Sýning með danstónlist þjóðarinnar allt
frá hringdönsum til forna fram á miðja
20. öld.
20.30 – 21.00
Gömludansalögin á harmonikkur
Félag harmonikkuleikara í Reykja-
vík kemur og leikur nokkur gömlu-
dansalög.
ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN, LANDS
BÓKASAFN ÍSLANDSHÁSKÓLA
BÓKASAFN, ARNGRÍMSGATA 3
20.00 - 22.00
Fjallkonan og Reykvíska eldhúsið
Sýning og örmálþing um matar- og
veitingahúsamenningu í Reykjavík á
fyrri hluta 20. aldar. Guðjón Friðriks-
son sér um leiðsögn um slóðir Krist-
ínar Dahlstedt í Kvosinni.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ,
HVERFISGATA 15
19.00-23.00
Skrifað á skinn
Gestum býðst að spreyta sig við
skriftir á kálfskinn með fjaðurpenna
og nýsoðnu jurtableki.
20.00-21.00
Ljós í myrkri I
Nemendur í Skapandi tónlistarmiðl-
un við Tónlistardeild Listaháskóla
Íslands leggja undir sig húsið og
magna tónlistargaldur.
20.30-21.00
Þjóðlög í myrkri
Þekkt íslensk þjóðlög í bland við frum-
samin lög útsett fyrir söng og selló
í flutningi Hringanóra, þeirra Unnar
Söru Eldjárn og Grétu Rúnar Snorra-
dóttur.
21.00-23.00
Ljós í myrkri II
Flutningur nemenda við Tónlistardeild
Listaháskóla Íslands á kammerverkum
og nýtónsmíðum. Einnig verða sýnd-
ar upptökur af flutningi verka við Tón-
listardeildina.
19.00-24.00
Þúsund ár
Sýning frá Listasafni Íslands með verk-
um eftir íslenska listamenn frá lokum
19. aldar til nútímans. Börn geta farið
í leiðangur um sýninguna út frá blaði
með náttúruþráðum sem rekja má um
verkin.
19.00-24.00
Lóan
Þjóðfugl Íslands, lóan, er í sérstöku
uppáhaldi hjá Eddu Heiðrúnu Back-
man sem sýnir munnmáluð olíumál-
verk og vatnslitamyndir.
19.00 – 24.00
Óskabarn – æskan og Jón Sig-
urðsson
Litrík sýning um sveitastrák í Arnar-
firði, búðarsvein, stúdent og stjórn-
málamann; unnustuna þolinmóðu,
fóstursoninn Sigga litla, bylting-
ar í Evrópu og baráttumál Íslend-
inga á 19. öld. Sjálfstæðishetjan Jón
Sigurðs son skoðuð frá sjónarhóli æsk-
unnar.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS,
SUÐURGATA 41
19.00-21.00
Listasmiðja
Fyrir börn á öllum aldri þar sem lögð
verður áhersla á himintunglin, gömlu
mánaðarheitin og tímann.
19.00-19.30
Drengjakór Reykjavíkur
Kórinn flytur nokkur lög undir stjórn
Friðriks S. Kristinssonar.
20.00-22.00
Kvikmyndin Agnes
Kvikmyndin fjallar um þá atburði
sem leiddu til síðustu aftökunnar á
Íslandi árið 1830.
22.00-23.00
Morðgáta
Morð hefur verið framið á Þjóðminjasafn-
inu! Komið og leitið vísbendinga. Hver er
sá seki?
23.00-23.30
Hljómsveitin Árstíðir
Hljómsveitin Árstíðin leikur fyrir dansi í
Myndasal Þjóðminjasafnsins.
ÞJÓÐSKJALASAFN ÍSLANDS,
LAUGAVEGI 162
19.30-22.30
Kynning á starfsemi og ferð um
skjalageymslur
Farið er kl. 19.30, 20.30 og 22.30. Um 20
manns komast í hverja skoðunarferð.
Skráning á vef Þjóðskjalasafns og á staðn-
um.
21.15-21.45
Sólborgarmálið frá 1893
Sólborgarmálið frá 1893 rifjað upp í
máli og myndum. Sagt frá örlögum
hálfsystkin anna Sólborgar og Sigurjóns á
Svalbarði í Þistilfirði.
21.45-22.15
Barnastand og lausaleikur
Fjallað verður um aðstæður og þjóð-
félagsstöðu einstæðrar konu sem um
aldamótin 1800 eignaðist tvö börn í
lausaleik með þekktum dönskum kaup-
manni.
laugardaginn 9. febrúar frá 20.00-24.00
Sundlauganótt
HEIMSDAGUR
BARNA LAUGARDAGINN 9. FEBRÚAR
MENNINGARMIÐSTÖÐIN
GERÐUBERG OG FRÍSTUNDA
MIÐSTÖÐIN MIÐBERG
13.00-16.00
Listsmiðjur – Í allra kvikinda líki
Hani, krummi, hundur, svín eða
kannski bara beinagrind eða upp-
vakningur. Nornadætur galdra þig í
hvaða dýr sem er með andlitsmáln-
ingu.
Svífum hærra í töfraham
Viltu fljúga með seiðkörlum og
nornum á vit myrkra ævintýra í
töfraham? Smiðja í gerð norna- og
seiðkarlabúninga.
Origami – Bréfbrot fyrir alla
Bréfbrjótar hjá Origami Ísland kenna
einfaldar og skemmtilegar aðferðir
við að skapa fjölbreytt og listræn
bréfbrot.
Öskupokar og bolluvendir
Höldum í gamlar hefðir og flengjum
með bolluvendi og hengjum ösku-
poka á fólk án þess að það verði
þess vart. Komdu og gerðu þinn
eigin litríka öskupoka og skraut-
legan bolluvönd.
Hljóðfærasmiðja
Útbúa má spennandi hljóðfæri úr
ótrúlegasta efniviði og framkalla
með þeim fögur og framandi hljóð
– búmm, saka búmm búmm búmm.
Hipphopp
Dansarar úr hópnum Swaggerific í
Dans dans dans kenna hipphopp
með blöndu af þeirra eigin stíl.
Seiðkarla- og nornaklær
Hvað er óhuggulegra en ískur í
krafsandi nöglum á dimmu vetrar-
kvöldi? Vertu með og gerðu þér
þínar eigin ógnvekjandi seiðkarla-
eða nornaneglur.
Vísindasmiðja
Langar ykkur að aðstoða við efna-
fræðibrellur þar sem tilraunaglös og
dularfullir vökvar koma við sögu?
Nornakaffihús
Þorir þú að gæða þér á grænum og
göldróttum veitingum og rjúkandi
seiðum nornanna í Miðbergi?
Eldað yfir eldi
Dýrindis brauð grillað yfir opnum
eldi. Kynjaverur bjóða til útieldun-
ar á torginu.
Lokahátíð kl. 16
Hátíð íss og myrkurs
Heimsdegi barna lýkur með því
að þátttakendur hópast út á torg-
ið á milli Gerðubergs og Miðbergs.
Sigur vegararnir úr Breiðholt Got Tal-
ent og Söngkeppni Breiðholts stíga
á svið.
BREIÐHOLTSLAUG, AUSTUR
BERGI 3
19.00-24.00
Sýning á verkum nemenda í FB
Sýndur verður afrakstur nemenda
við fata- og textílsvið í anddyri Breið-
holtslaugar.
19.30-20.15
White Signal
Leikin verða diskólög frá sjöunda og
áttunda áratugnum í bland við eigin
lög.
20.30-20.40
Danshópurinn Swaggerific
Þau tóku þátt í DansDansDans og
unnu einnig 1. sæti í Street Dans-
keppni Brynju Péturs.
21.00-21.45
Aqua Zumba
Aqua Zumba® er hressandi líkams-
þjálfun sem sameinar Zumba® form-
úluna við vatnsleikfimi á skemmtileg-
an hátt.
22.10-22.20
Sigurvegarar í Söngvakeppni
Breiðholts
Ingi Þór, Sölvi Steinn og Bjarni Sævar
taka lagið en þeir munu taka þátt í
Söngkeppni Samfés 2013.
22.30-22.55
Jóga í vatni
Jógaæfingar í vatni og hugleiðsla
ásamt samsöng við gítarundirspil í
heitu pottunum á eftir.
22.55-23.15
Gongslökun í vatni í boði Jóga-
sals Ljósheima
Fljótandi slökun við undirspil tveggja
gong hljóðfæra. Heilandi tónar færa
djúpa slökun og endurnæringu.
23.15-23.45
Stuttmyndir
Sýndar verða nokkrar stutt myndir
ásamt svipmyndum frá fjölbreyttu
starfi barna og unglinga í hverfinu.
LAUGARDALSLAUG, SUND
LAUGAVEGI 30
15.00-16.00
Undirheimar Laugardalsins skoð-
aðir með Stefáni Pálssyni
Svæðið frá gömlu sundlaugunum í
Laugardal og út að Höfða hefur að
geyma fjöldann allan af merkilegum
sögum sem tengjast vexti Reykja-
víkur, tækniþróun, draugum og sirk-
usfólki.
18.00-18.30
Kórastund í sundi
Fjölmargir kórar taka sig saman og
syngja hressileg lög í stúku við úti-
laugina.
20.00-22.00
Stelpuskákmót Íslensku Skákaka-
demíunnar
Teflt í lauginni, 5-7 umferðir.
19.00-19.40
Jóga í vatni
Jógaæfingar í vatni og hugleiðsla
ásamt samsöng við gítarundirspil í
heitu pottunum á eftir.
19.40-20.00
Gongslökun í vatni í boði Jóga-
sals Ljósheima
Fljótandi slökun við undirspil tveggja
stórkostlegra gong hljóðfæra. Heil-
andi tónar gongsins færa djúpa slök-
un og endurnæringu.
19.45-21.15
KR Super Challenge
Tryllt tónlist, sund og stórbrotinn
ljósagangur! Mikill hraði – Mögnuð
stemning! Allir fá happdrættismiða.
Kyndlar á bökkum og ljúfir tónar
til miðnættis
YLSTRÖNDIN NAUTHÓLSVÍK
18.00-24.00
Notalegheit i heitapottinum
Kyndlar lýsa upp ströndina með hjálp
norðurljósa og stjarna.
19.00-19.30
Kvartettinn KVIKA syngur
20.30-21.00
Ljóðatónleikar – Frá myrkri til
ljóss
Sigfríð Þórisdóttir les úr bók sinni
„Ópera sálarinnar“.
23.00-23.30
Kvartettinn Kvika með drunga-
legheit.
VESTURBÆJARLAUG, HOFS
VALLAGÖTU
19.00-19.30
Ljóðatónleikar – Frá myrkri til ljóss
Sigfríð Þórisdóttir les úr bók sinni
„Ópera sálarinnar“.
20.00-24.00
Norðurljósa - Sundlaugarpartý
Fjöllistakonan Kitty Von-Sometime
nær upp stemmingu í lauginni ásamt
gestum með sjálflýsandi staukum
undir tónlist fjögurra plötusnúða.