Fréttablaðið - 06.02.2013, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2013 7Vetrarhátíð ●
● HÆGT AÐ VINNA
MÁLTÍÐ Nokkrir af bestu veit-
ingastöðum borgarinnar bjóða
upp á spennandi Vetrarhátíðar-
matseðla á tilboðsverði þá fjóra
daga sem Vetrarhátíð stendur
yfir. „Við fengum þá hugmynd
að fá veitingastaði til liðs við
okkur svo fólk gæti slegið tvær
flugur í einu höggi; notið dag-
skrár Vetrarhátíðar og gætt sér
á ljúffengum réttum á þessum
frábæru stöðum,“ segir Guð-
mundur Birgir Halldórsson hjá
Höfuðborgarstofu. Hann bendir
einnig á að leikur verður í gangi
á Facebook-síðu Vetrar hátíðar
Reykjavíkur. „Fólk getur farið á
síðuna, líkað við hana, sett inn
skilaboð og þannig átt tækifæri
á að vinna máltíð á einum af
eftir töldum veitingastöðum.“
Café Loki
Fiskfélagið
Fiskmarkaðurinn
Grillmarkaðurinn
Hótel Holt – Gallery Restaurant
Laundromat cafe
Rub 23
Sjávarbarinn
Sjávargrillið
Tapashúsið
Uno
Við Tjörnina
● VETRARHÁTÍÐ LÝKUR
Á KÆRLEIKUNUM Lokaat-
riði Vetrarhátíðar eru Kærleikar
Bergljótar Arnalds sem haldnir
eru í fimmta sinn. „Markmið Kær-
leikanna er að efla samkennd,
hlýju og kærleika og um leið
minna okkur á að við erum öll
mikilvæg í samfélaginu. Við
búum saman sem hópur einstak-
linga með mismunandi skoðanir
og samvinnan gerir okkur sterk-
ari en flestar aðrar dýra tegundir,“
segir Bergljót. Komið verður
saman fyrir framan Alþingis-
húsið og þaðan gengin Kærleiks-
ganga sem Lúðrasveitin Svanur
leiðir. Gangan endar við Iðnó þar
sem boðið verður upp á heitt
súkkulaði og Vocal Project undir
stjórn Matta Sax.
„Febrúar er einn erfiðasti
mánuður vetrarins og við ætlum
að kveikja smá ljós í lífinu. Kyndil-
berar verða í göngunni og eld-
gleypar mæta á svæðið. Pólfarinn
Vilborg Arna Gissurardóttir mun
fara nokkrum orðum um það
hvernig henni tókst að komast
í mark þrátt fyrir mikla áskorun.
Þá mun Sóla sögukona mæta,
björgunarsveitirnar, leikhópurinn
Perlan og Sönglist auk þess sem
krökkum verður boðin andlits-
málning. Ásta Valdimars verður
með hláturjóga og við ætlum
að senda fingurkoss og góða
strauma til Alþingishússins.“ Litur
Kærleikanna er rauður og er fólk
hvatt til að taka eitthvað rautt
með. Kærleikarnir eru sunnu-
daginn 10. febrúar og hefjast kl.
17 á Austurvelli.
● KÓRSTUND Í SUNDI
Boðið verður upp á kórtónleika í Laugardalshöll í
tengslum við Sundlauganótt laugardaginn 9. febrúar.
Þar munu fimm hundruð kórmeðlimir úr hinum ýmsu
kórum og á öllum aldri raða sér upp í stúkuna og
syngja fyrir sundlaugagesti. Stjórnendurnir eru ekki
af verri endanum en það eru þau Þorgerður Ingólfs-
dóttir, stjórnandi Hamrahlíðakóranna, Jón Stefáns-
son, stjórnandi kórs Langholtskirkju, Graduale Nobili
og Gradualekórins, Magnús Ragnarsson, stjórnandi
Söngsveitarinnar Fílharmóníu og Kórs Áskirkju og
Þóra Marteinsdóttir, stjórnandi Kórs Vatnsendaskóla.
Flutt verða fjögur lög og mun hver stjórnandi stjórna
einu lagi.
„Sundlauganótt var haldin í fyrsta skipti í fyrra en
hugmyndin er að nýta rými sem við erum vön að
nota á ákveðinn hátt einhvern vegin öðruvísi. Í fyrra
var boðið upp á fimleika og dans en í ár datt ein-
hverjum snillingnum í hug að fylla stúkuna af kór-
söngvurum og hafa áhorfendurna í lauginni,“ segir
Heiðrún Hákonardóttir, skrifstofustjóri Höfuðborgar-
stofu. „Vetrarhátíð snýst um ljós og myrkur og munu
kórmeðlimir vera upplýstir. Þeir verða sömuleiðis
búnir vasaljósum og sjálflýsandi ljósaprikum sem þeir
munu beita með mismunandi hætti í hverju lagi fyrir
sig. Þetta verður því án efa tilkomumikið.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 18:00 og hvetur Heiðrún
fólk til að mæta og njóta flutningsins ofan í lauginni.
Opnunaratriði Vetrarhátíðar í Reykjavík 2013 „PIXEL CLOUD“
er eftir listamanninn Marcos Zotes, með tónlist eftir Eðvarð
Egilsson (Cosmos). Marcos Zotes lýsti á magnaðan hátt upp
Hallgrímskirkju á Vetrarhátíð í fyrra og setur nú upp ógleyman-
legt rafmagnað verk.
Ekki missa af stórfenglegu sjónarspili á Austurvelli
fimmtudaginn 7. febrúar, klukkan 19:30.
Orkusalan — lýsir upp Vetrarhátíð í Reykjavík 2013.
OPNUNARATHÖFN
VETRARHÁTÍÐAR
Í REYKJAVÍK
Br
an
de
nb
ur
g
/ M
yn
d:
M
ar
co
s Z
ot
es
SKJÓL FYRIR
SKAMMDEGI
Náðu þér í svolitla auka birtu á Vetrarhátíð.
Orkusalan hefur kveikt á sumrinu í nokkrum
strætóskýlum í borginni. Nánar á solskyli.is.