Fréttablaðið - 06.02.2013, Page 39
MIÐVIKUDAGUR 6. febrúar 2013 | MENNING | 19
TÓNLIST ★★★ ★★
Nordic Affect
Mykrir músíkdagar
HÖRPA, 2. FEBRÚAR.
Nútímatónlist fyrir barokkhljóð-
færi hljómar kannski nýstárlega
en er það í rauninni ekki. Barokk-
fiðlur, semball og klavíkord koma
stundum fyrir í poppinu, menn leita
allra leiða til að skapa nýstárlegan
hljóðheim. Semballinn hefur líka
oft komið fyrir í íslenskri samtíma-
tónlist. Leifur Þórarinsson heitinn
samdi t.d. margt fyrir hljóðfærið. Á
tónleikum á Myrkum músíkdögum
í Kaldalóni í Hörpu á laugardaginn
var þetta þema ríkjandi.
Flytjendur voru Nordic Affect,
sérlega skemmtilegur hópur sem
hefur haldið líflega og fróðlega
tónleika. En fyrsta atriði dagskrár-
innar olli vonbrigðum. Það var
verk sem bar nafnið Kortamel og
var eftir Guðmund S. Gunnarsson.
Verkið byrjaði með síendurteknum
tónahendingum sem voru leiknar
á sembal, auk nokkurra annarra
hljóðfæra. Hendingarnar voru ekki
sérlega áhugaverðar og urðu því
fljótt þreytandi. Framvinda verks-
ins var sömuleiðis ekki spennandi.
Það gerðist fátt. Útkoman var ótta-
lega þunn.
Svipaða sögu er að segja um ein-
leiksverk fyrir sembal eftir Hróð-
mar Inga Sigurbjörnsson. Guð-
rún Óskarsdóttir spilaði að vísu
listavel á sembalinn en tónlistin
sjálf var hálfgerður leirburður,
ófrumleg og andlaus. Hún skiptist
í nokkra stutta kafla. Þar af leið-
andi var ekki mikið pláss fyrir að
gera eitthvað flókið og margbrotið
úr tónefniviðinum. Þeim mun mikil-
vægara var að grunnhugmyndirnar
væru góðar. Því miður var ekki svo.
Sem betur fer rættist úr dag-
skránni því næsta tónsmíð, INNI
eftir Þuríði Jónsdóttur, var veru-
lega áhrifamikil. Halla Steinunn
Stefánsdóttir lék á fiðlu síendur-
teknar, óljósar tónahendingar,
afar veikar. Hún gerði það prýði-
lega. Úr hátölurum heyrðist af og
til veikt hjal í kornabarni. Mikið
var um þagnir. Í rauninni var fiðlu-
leikurinn og barnshjalið eins konar
rammi utan um þögnina. Fyrir
bragðið varð þögnin þrungin merk-
ingu. Það var magnað að upplifa.
Couleur neige eftir Sophie Dufeu-
trelle, sem Georgia Browne spilaði
afar fallega á þverflautu, var líka
hrífandi. Tónlistin var í fyrstu
leitandi en varð smám saman að
grípandi laglínu, sem var nánast
rómantísk og einkar fögur.
Lokatónsmíðin var svo eftir Önnu
Þorvaldsdóttur og hét Hljóða hvarf.
Eins og títt er um tónlist henn-
ar byggðist hún mikið á löngum,
myrkum tónum. Þeir voru brotnir
upp með alls konar banki og krafsi
í sembalinn, sem hér var magnað-
ur. Krafsið hefði mátt vera aðeins
hærra. Að öðru leyti var tónlistin
áheyrileg, að vísu ekki sérlega ris-
mikil, en hún var skemmtileg og
rann ljúflega niður. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Tónleikarnir byrjuðu
ekki vel en svo rættist úr þeim.
Krafsað í sembal
Gerður Bolladóttir sópran og
Rúnar Þórisson gítarleikari flytja
úrval íslenskra dægurlaga í Frí-
kirkjunni annað kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 7. febrúar. Lögin eru
eftir Gunnar Þórðarson, Sigfús
Halldórsson, Jón Múla Árnason,
Valgeir Guðjónsson, Megas og
fleiri og eiga það sammerkt
að lýsa hugljúfri stemningu í
Reykjavík í gegnum tíðina.
Þar má heyra margar þekktar
perlur sem höfða til Reykvíkinga
á öllum aldri.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30 við opnun Vetrarhátíðar.
Lýsa ljúfri
stemningu
GERÐUR OG RÚNAR Stilla saman
strengi sína í Fríkirkjunni annað kvöld.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2013
Tónlist
21.00 Adda og Dísa Heiðars skemmta
á Café Rosenberg. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Útvarps
þátturinn
Snorri með
Orra
frá hádegi
alla virka
daga